Fiskifréttir


Fiskifréttir - 15.06.1990, Blaðsíða 2

Fiskifréttir - 15.06.1990, Blaðsíða 2
2 SKIN15KÓRVR VW Aflabrögðin Umsjón: Halldóra G. Sigurdórsdóttir og Þorsteinn G. Gunnarsson Hin rólegasta vika Síðasta vika var með rólegasta móti um allt land hvað aflabrögðin varð- ar. Trillur voru í banni, þ.e. þær sem ekki hafa netaleyfi, en þær sem máttu róa fóru flestar í fáa róðra og fengu frekar lítinn afla. Flestir togarar komu inn fyrir Sjó- mannadaginn og var mikið um land- anir í lok vikunnar. Mikið bar á grál- úðu hjá togurunum en einnig voru nokkrir með ufsa að uppistöðu. Þeir sem reyndu ekki við gráiúðuna komu flestir með mikinn ufsa að landi eftir stutta útiveru. Mikið hefur dregið úr afla humar- bátanna og voru margir að koma með undir 300 kg í róðri í vikunni. Von manna er að humarveiðarnar muni aukast eitthvað aftur en ekki er óþekkt ástand að vel veiðist í byrjun en síðan dragi geysilega úr og loks glæðast humarveiðarnar á ný. En hér koma aflatölur fyrir vikuna 4. -10. júní: V estmannaeyj ar Togarinn Breki landaði 139.1 tn þann 7. júní eftir tíu daga túr. Mest var af grálúðu í aflanum eða 106.7 tn en 25.4 tn voru af ufsa. Sindri land- aði 128.5 tn eftir viku túr en þar af var sett í tvo gáma. Ufsi var uppistaða þess sem fór til vinnslu í landi eða 97.4 tn en þorskur og ýsa voru uppi- staða annars gámsins en karfi og ufsi hins gámsins. Halkion landaði um 40.0 tn þann 8. júní en rúmur helm- ingur aflans var settur í gáma. Mest var af þorski, eða 15.5 tn, af þeim afla sem fór til vinnslu í landi en mest var af ýsu, karfa og ufsa í gámunum. Bergey landaði 100.6 tn þann 6. júní eftir viku túr. Mest var af grálúðu í aflanum eða 73.0 tn en 10.9 tn voru af karfa, 9.4 tn af þorski og 2.6 tn af ufsa. Eftirtaldir trollbátar réru í vik- unni: Sigurfari landaði tvisvar sinn- um í vikunni, þann 5. og 8. júní, sam- tals um 70.0 tn en þar af var sett í einn gám. Frigg landaði rúmum 60.0 tn þann 5. júní og var sett í einn gám þar. Stefnir landaði 36.0 tn þann 7. júní og voru 4.0 tn þar af sett í gám. Sama dag landaði Heimaey 36.0 tn og voru 6.0 tn þar af sett í gám. Bjarnarey landaði 30.0 tn þann 7. júní og voru 9.0 tn þar af sett í gám. Suðurey landaði 43.0 tn þann 8. júní og voru 10.0 tn þar af sett í gám. Sama dag landaði Álsey 38.0 tn en 6.0 tn þar af voru sett í gám. Suðvesturland Þorlákshöfn: Fjórir bátar voru með lúðulóð í vikunni og lönduðu eftir- taldir einu sinni hver: Freyja landaði 12.0 tn, Smári RE 1.4 tn og Auðunn 1.3 tn. Hafbjörg landaði tvisvar sinn- um samtals 1.3 tn. Þrír netabátar réru í vikunni; Egill SH landaði 4.5 I tn úr þremur róðrum, Jón Pétur RE landaði 1.0 tn úr tveimur róðrum og Kristján S SH landaði 0.9 tn úr einni sjóferð. Tveir dragnótabátar réru í vikunni og fór hvor um sig í einn róður; Jóhann Gíslason landaði 17.3 tn og Friðrik Sigurðsson 21.3 tn. Flestir færabátar voru í banni í vik- unni en þrír gátu róið þar sem þeir eru með netaleyfi; Ýr landaði 1.8 tn úr þremur róðrum, Sunna landaði 1.7 tn úr tveimur róðrum og Særós NK landaði 0.1 tn úr einni sjóferð. Mikið hefur dregið úr afla humarbát- anna en eftirtaldir humarbátar réru í vikunni og fór hver í eina sjóferð: Jóhanna landaði 0.7 tn af humri og 1.8 tn af bolfiski, Litlanes landaði 0.7 tn af humri og 3.0 tn af bolfiski, Sær- ós landaði 0.3 tn af humri og 0.5 tn af bolfiski, Dalaröst landaði 0.3 tn af humri og 2.1 tn af bolfiski, Jósep Geir landaði 0.5 tn af humri og 1.3 tn af bolfiski, Reynir GK landaði rúm- um 0.3 tn af humri og 4.3 tn af bol- fiski, Aron landaði 0.5 tn af humri og 2.8 tn af bolfiski, Njörður landaði 0.7 tn af humri og 4.5 tn af bolfiski, Fróði landaði 0.4 tn af humri og 4.6 tn af bolfiski, Greipur landaði 0.3 tn af humri og 3.6 tn af bolfiski og Snæt- indur landaði 0.7 tn af humri og 3.3 tn af bolfiski. Togarinn Þorlákur landaði 78.0 tn þann 8. júní eftir níu daga túr. Mest var af grálúðu í aflan- um eða 54.0 tn en 17.0 tn voru af karfa og 6.0 tn af ufsa. Jón Vídalín landaði 91.0 tn þann 9. júní og var mest af karfa í aflanum eða 33.0 tn en 25.0 tn voru af þorski, 15.0 tn af ufsa, 15.0 tn af ýsu og 3.0 tn af löngu. Grindavík: „Þessi vika var með þeim rólegri hvað aflabrögðin snertir, bát- ar réru sjaldan og humarveiðin var treg,“ sagði heimildarmaður blaðs- ins er slegið var á þráðinn í upphafi viku. Tíu humarbátar réru í vikunni og fóru eftirtaldir í tvo róðra hver: Jóhannes Jónsson landaði 0.5 tn af humri og 7.0 tn af bolfiski, Þorsteinn Gíslason landaði 0.6 tn af humri og 12.0 tn af bolfiski, Sigrún landaði 0.6 tn af humri og 8.0 tn af bolfiski, Geirfugl landaði 1.0 tn af humri og 12.0 tn af bolfiski, Þorbjörn II land- aði 0.7 tn af humri og 3.0 tn af bol- fiski, Már landaði 0.4 tn af humri og 4.0 tn af bolfiski og Reynir landaði 1.0 tn af humri og 6.2 tn af bolfiski. Eftirtaldir humarbátar réru einu sinni hver í vikunni: Harpa landaði 0.8 tn af humri og 8.0 tn af bolfiski, Ósk landaði rúmum 0.3 tn af humri og 0.9 tn af bolfiski og Þröstur land- aði 4.0 tn af bolfiski. Þann 6. júní landaði trollbáturinn Þórshamar 11.0 tn, Þuríður Halldórsdóttir landaði 54.0 tn þann 1. júní og Oddgeir land- aði 33.0 tn úr tveimur róðrum en landað var 1. og 7. júní. Aðrir troll- bátar lönduðu sem hér segir: Faxavaík landaði 12.4 tn úr fjórum róðrum, Sandvík landaði 10.7 tn úr fjórum róðrum, Ólafur landaði 2.0 tn úr tveimur róðrum, Vörðufell landaði 13.7 tn úr fjórum róðrum og Sigurþór landaði 1.0 tn úr einni sjó- ferð. Mest var af þorski í aflanum eða töluvert var af ufsa. Freyjan var á lúðulóð í vikunni og landaði einu sinni samtals 3.2 tn. Grindvíkingur landaði 45.5 tn af frosinni rækju þann 8. júní eftir þriggja vikna túr. Fjórir netabátar réru í vikunni; Hafl- iði landaði 4.8 tn úr fimm róðrum, Diddó landaði 0.4 tn úr einni sjóferð, Selma landaði 1.6 tn úr þremur róðr- um og Ágúst landaði 0.3 tn úr einni sjóferð. Eftirtaldir færabátar máttu róa í vikunni; Þórarinn landaði 1.5 tn úr þremur róðrum, Sunna landaði 1.3 tn úr einni sjóferð, Rósa landaði 0.8 tn úr einni sjóferð, Jóhannes Gunnar landaði 3.4 tn úr þremur róðrum, Hófí landaði 2.8 tn úr tveimur róðrum, Hegri landaði 0.7 tn úr einni sjóferð, Borgar landaði 1.0 tn úr tveimur róðrum, Klemma landaði 0.4 tn úr einni sjóferð, Askur landaði 1.5 tn úr þremur róðrum og Inda landaði 0.3 tn úr einni sjóferð. Fimm línubátar réru í vikunni; Bjarni landaði 4.2 tn úr einni sjóferð, Hlíf landaði 1.3 tn úr tveimur róðr- um, Ýr landaði 2.6 tn úr einni sjó- ferð, Arnar landaði 0.9 tn úr tveimur róðrum og Gná landaði 1.2 tn úr einni sjóferð. Tveir dragnótabátar réru í vikunni; Farsæll landaði 24.0 tn úr fimm róðrum og Sandafell landaði 7.1 tn úr einni sjóferð. Tveir rækjubátar lönduðu í vikunni; Höfr- ungur landaði 12.6 tn af rækj u og 13.7 tn af bolfiski og Ágúst Guðmundsson landaði 7.8 tn af rækju og 23.5 tn af bolfiski. Unnið var 15.3 tn af rækju úr Háberginu. Sandgerði: Heildarafli báta á tíma- bilinu 1. - 8. júní var 254.5 tn úr 132 sjóferðum en auk þess landaði togar- inn Sveinn Jónsson 140.0 tn þann 7. júní eftir viku túr og var mest af ufsa og karfa í aflanum. Togarinn Hauk- ur landaði einnig í vikunni alls um 80.0 tn þann 6. júní eftir viku túr og var grálúða uppistaða aflans. Átta dragnótabátar réru í vikunni; Arnar landaði 22.1 tn úr tveimur róðrum, Eyvindur landaði 6.5 tn úr tveimur róðrum, Haförn landaði 15.7 tn úr fjórum róðrum, Rúna RE landaði 13.3 tn úr tveimur róðrum, Sæljón landaði 13.6 tn úr þremur róðrum, Þór Pétursson landaði 10.1 tn úr einni sjóferð, Aðalbjörg RE landaði 11.9 tn úr þremur róðrum og Aðalbjörg II RE landaði 7.6 tn úr þremur róðr- um. Netabáturinn Vonin landaði fimm sinnum í vikunni samtals 13.7 tn. Eftirtaldar trillur réru í vikunni en hver landaði einu sinni: Agnar- ögn landaði 0.3 tn, Auður 0.5 tn, Bogi 1.0 tn, Brynhildur 1.8 tn, Dags- brún 0.6 tn, Einsi Sveins 0.2 tn, Elsa KE 0.9 tn, Guðrún 0.5 tn, Gunnar 0.3 tn, Grunnvíkingur 0.9 tn, Helgi 0.4 tn, Hringur 0.5 tn, Hrollur 1.4 tn, Kristján 1.1 tn, Litli Jón 0.9 tn, Lundi 0.9 tn, Nói0.2tn, Ríkey 2.4 tn, Skar- fakletturl.7 tn, Sólbjört2.7 tn, Sóley 2.2 tn, Snotra 1.6 tn, Sæljómi 3.2 tn, Vöggur 2.8 tn, Vörðunes 2.8 tn, Kristbjörg RE 0.3 tn, Össur 0.5 tn, Nökkvi 0.7 tn og Sleipnir KE 0.2 tn. Eftirtaldar trillur réru tvisvar sinnum hver: Askur landaði 1.5 tn, Ársæll 3.5 tn, Birgir 7.6 tn, Bjargey 0.3 tn, Guðjón 3.6 tn, Hlýri 2.7 tn, Her- steinn 0.6 tn, Hólmar 3.3 tn, María KE 1.9 tn, Skúmur 3.5 tn, Sleipnir 5.8 tn, Ver 1.2 tn, Víðir 3.3 tn, Ösp 5.5 tn og Glampi 7.4 tn. Trillan Ebba landaði 1.9 tn úr þremur róðrum, Funi landaði 4.2 tn úr fjórum róðr- um, Gullfiskur landaði 3.1 tn úr þremur róðrum, Jenný KÓ landaði 3.6 tn úr fjórum róðrum, Nonni land- aði 1.6 tn úr þremur róðrum, Reykj- anes landaði 3.9 tn úr þremur róðr- um, Sandvík landaði 2.4 tn úr fimm róðrum, Æsa landaði 3.3 tn úr þrem- ur róðrum, Herjólfur Jónsson land- aði 1.3 tn úr fjórum róðrum, Siggi Jóns landaði 2.0 tn úr þremur róðr- um og Ásdís landaði 1.3 tn úr þremur róðrum. Keflavík: Togarinn Ólafur Jónsson landaði um 160.0 tn þann 4. júní eftir viku túr. Þrír netabátar réru í vikunni; Óli landaði 1.2 tn úr þrem- ur róðrum, Elín landaði 4.2 tn úr þremur róðrum og Hafborg KE 54 landaði 5.0 tn úr fjórum róðrum. HUsfen FRETTIR Útgefandí; Ljósmyndarar: Auglýsingastjórar: Fróöi hf. Grimur Bjarnason Guölaug Guömundsdóttir Reykjavík Gunnar Gunnarsson Vaka Haraldsdóttir Kristján E. Einarsson Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Áskrift og innheimta: Guöjón Einarsson Ritstjórn og auglýsingar: Ármúla 18, sími 82300 Bildshöfða 18, sími 685380 Pósthólf 8820 Ritstjórnarfulltrúi: Telefax: 689982 128 Reykjavík Eiríkur St. Eiriksson Prentvinnsla: G. Ben. prentstofa hf. Áskriftarverð: 2.160 Maí - ágúst innanlands Hvert tölublað í áskrift: 135 Lausasöluverð: 169 kr.

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.