Fiskifréttir - 15.06.1990, Blaðsíða 11
föstudagur 15. júní
11
Fréttir
(((•))) Kockum Sonics
GLÆSILEGT 2JA ÁRA FISKISKIP TIL SðLU
- Á MJÖG HAGKVÆMU VERfll
M.S. Lisa Maria T-12-T Tromsö, Noregi, DNV +1A1,
37,5 metra línu og netaveiðiskip, byggt 1988, Portúgal,
með 32.000 króka autoline-búnaði, frystingu 24 tonn/24
tíma, fullkominri vinnslubúnaður (Baader) fyrir heilfryst-
ingu, flakafrystingu og saltfiskvinnslu. Aðalvél 1100 hest-
öfl. Skipsskrokkur hannaður til breytinga í togveiðiskip.
Nánari upplýsingar gefa:
Halfdan Eilertsen, Tromsö, Noregi, sími 9047-83-85530,
Úlfar Ármannsson, Vélorka, Reykjavík, sími 621222, hs.
52245.
Christiania Bank og kredidkasse,
Grönnegt 80, Tromsö, Norge.
Masaji Kawada, Jóhann Ólafur Ársælsson, N. Kobayaski og M. Shimot-
ori.
Merkúr hf. selur
Yanmar bátavélar
Jóhann Ólafur Ársælsson, sem sá
um sölu á YANMAR - bátavélum
fyrir Bílaborg hf., hefur nú tekið
við umboði fyrir YANMAR - báta-
vélar hér á landi. Samstarfsaðili
Jóhanns um sölu á vélunum er
Merkúr hf. og mun það fyrirtæki
jafnframt sjá um varahlutaþjón-
ustu. VÆS hf., sem sá um viðgerð-
ir fyrir Bílaborg, mun eftir sem
áður sjá um viðgerðaþjónustu
fyrir YANMAR - bátavélar.
Svo sem kunnugt er var Bfla-
borg hf. tekin til gjaldþrotaskipta
og í framhaldi af því sótti Jóhann
Ólafur um YANMAR - umboðið.
Gengið var frá yfirtöku hans á um-
boðinu í Hollandi fyrir skömmu og
í framhaldi af því var komið á sam-
starfi við Merkúr hf.
Merkúr hf. mun nú selja allar
bátavélar frá YANMAR, frá 1
hestafli og upp í 1100 hestöfl, en
það þýðir m.ö.o. að fyrirtækið sel-
ur vélar í vatnabáta og allt upp í
300 til 400 brúttórúmlesta skip. Að
sögn Jóhanns Ólafs verður Merkúr
hf. einnig með rafstöðvar frá
YANMAR fyrir skip og einnig til
nota í landi. Jóhann Ólafur fékk
einnig umboðið fyrir Sleipner
Motor a/s en það fyrirtæki fram-
leiðir skrúfur fyrir skip og báta,
öxla og hliðarskrúfur fyrir minni
skip. Fyrir var Jóhann Ólafur með
umboð fyrir Tsurumi - dælur.
— Helsta nýjungin frá YANM-
AR nú er nýr fullkominn dísel ut-
anborðsmótor, 18, 27 og 36 hest-
afla. YANMAR hefur ekki áður
framleitt slíka díselmótora en
þessir nýju mótorar ættu að gagn-
ast sem trillumótorar, sagði Jó-
hann Ólafur en þess má geta að um
200 YANMAR - bátavélar eru nú í
notkun í íslenska flotanum. Stærð
þeirra er frá 9 hestöflum og upp í 12
hestöfl.
Ferskfisksölur:
Höfum fyrirliggjandi
þokulúðra og stjórntæki
fyrir merkjagjöf frá
Kockum Sonics.
Vélarog skiphf.
Eyjaslóð 7 — P.O. Box 47 — Seltjarnarnes,
lceland - Sími 11040/11077
Hátt verð í Englandi
þrátt fyrir mikið framboð
Töluvert hefur verið um landanir
íslenskra fískiskipa í Englandi að
undanförnu. Sex skip hafa t.a.m.
landað þar afla á tímabilinu 4. til
11. júní sl., alls rúmlega 700 tonn-
um af fiski. Fiskverð hefur heldur
hækkað í Englandi og t.a.m. hafa
skipin verið að fá þetta 120 til 130
krónur fyrir þorskkflóið. I Þýska-
landi hefur aðeins eitt skip landað
afla nýverið, Óskar Halldórsson
RE, og fékk það ágætt verð fyrir
karfa.
Þau skip sem landað hafa í Eng-
landi að undanförnu eru eftirtalin:
Páll ÁR landaði 110 tonnum í Hull
4. júní sl. Verðmæti aflans var 11.1
milljón króna en það samsvarar
101.51 kr/kg í meðalverð. Uppi-
staða aflans var ýsa á 106.71 kr/kg
en 79.60 kr/kg fengust fyrir 13 tonn
af karfa. Börkur NK seldi 190 tonn
Þýskaland
Sem fyrr segir var aðeins ein
skipasala í Þýsklandi í sl. viku.
Óskar Halldórsson RE seldi 84
tonn fyrir 8.9 milljónir króna og
fékk því 106.09 kr/kg í meðalverð.
Uppistaða aflans, 61 tonn, var
karfi á 113.56 kr/kg.
af fiski í Grimsby 6. júní sl. Verð-
mæti aflans var 23.5 milljónir
króna eða 123.84 kr/kg. Uppistaða
aflans var þorskur, 160 tonn, og
var meðalverðið 123.38 kr/kg en
136.83 kr/kg fengust fyrir 23 tonn
af ýsu. Náttfari HF landaði sama
dag í Hull, alls 112 tonnum fyrir
11.3 milljónir króna. Meðalverð
var 100.47 kr/kg. Náttfari var með
58 tonn af ýsu á 115.94 kr/kg og 32
tonn af ufsa á 60.05 kr/kg. Katrín
VE landaði 96 tonnum í Hull 7.
júní sl. og fékk 11.1 milljón króna
fyrir ómakið. Meðalverð var 115.01
kr/kg en aflinn var aðallega þorsk-
ur og ýsa. Fyrir 45 tonn af þorski
fengust að jafnaði 130.20 kr/kg og
fyrir 33 tonn af ýsu fengust 116.47
kr/kg. Ottó Watne NS átti mjög
góða sölu í Grimsby sama dag.
Seld voru 117 tonn af fiski á 14.6
milljónir króna og var meðalverð-
ið 125.09 kr/kg. Togarinn var með
104 tonn af þorski og fór þorskur-
inn á 131.18 kr/kg. Loks má nefna
að Sighvatur Bjarnason VE seldi
afla í byrjun vikunnar, nánar til-
tekið 11. júní sl, alls 96 tonn fyrir
10.9 milljónir króna. Meðalverðið
var 113.96 kr/kg en uppistaða afl-
ans var þorskur á 126.75 kr/kg.
Gámasölur
Framboð af gámafiski var held-
ur minna en í vikunni á undan er
seld voru tæp 1400 tonn að verð-
mæti tæpar 150 milljónir króna. I
vikunni 4. til 8. júní sl. voru hins
vegar seld 1078 tonn fyrir 118.2
milljónir króna eða sem svarar
109.59 kr/kg. Mest var selt af ýsu,
392 tonn, og var meðalverðið
114.37 kr/kg. Seld voru 306 tonn af
þorski á 122.59 kr/kg, 137 tonn af
kola á 95.66 kr/kg og 40 tonn af
grálúðu á 100.69 kr/kg.