Fiskifréttir


Fiskifréttir - 15.06.1990, Blaðsíða 8

Fiskifréttir - 15.06.1990, Blaðsíða 8
Texti: GE föstudagur 15. júní Er útflutningskvóti einhver lausn? Útflutningskvóti er hugtak sem aiitaf skýtur upp koliinum sem iausn- arorð, þegar vandræði skapast vegna stjórnar á ísfiskútflutningi. Síðast komst þessi hugmynd í hámæli, þegar nokkrir ísfiskútfiytjendur huns- uðu fyrirmæli Afiamiðlunar og fiuttn út meira en þeir máttu. Af þessu varð mikifl hvellur og I kjölfarið lýsti Jón Baldvin Hannibaisson utan- ríkisráðherra því yfir t útvarpinu, að hann myndi leggja fram í ríkis- stjórninni tillögu um, að núverandi fyrirkomulag á þessum málum yrði afnumið. í stað þess fengi hvert skip í flotanum sérstakan útflutnings- kvóta, þ.e. leyfi tii þess að flytja út tiltekinn hluta af afla sínum eða selja leyfið öðrum, ef viðkomandi útgerð kærði sig ekki um að flytja út ferskfisk sjálf. Þótt andstaðan við hugmynd- ina um útflutníngskvóta sé mikil meðal útgerðarmanna, er langt frá því að utanríkisráðherra sé einn á báti í þessu máli. Forsvars- menn útgerðar- og fiskvinnslufyr- irtækja víða úti um land, sem lítiö hafa sinnt útfiutningi á ferskum fiski, hafa lýst stuðningi við út- flutningskvóta. Breytt flutningatækni — breyttar forsendur „Eg hef lengi verið þeirrar skoðunar að setja ætti á útflutn- íngskvóta,“ sagði Ólafur Gunn- arsson framkvæmdastjóri Hrað- frystihúss Ólafsvíkur í samtali við Fiskifréttir. ..Það er engin sann- girni í því. að þeir sem á sínum RENOLD keðjur, tannhjól girar ílj,' 4 v Þekking Reynsla Þjónusta FÁLKIN N SUOURfANDSBRAUT 8. SIMI 84670 4 tíma höfðu meiri möguleika en aðrir til þess að nýta sér ferskfis- kmarkaðina ytra, eígi að sitja að þeim um aldur og ævi. Bættar skipasamgöngur og breytt flutn- ingatækni gerir fleirum kleift að stunda þennan útflutning en áður og þvf ættu allir að sitja við sama borð.“ Ólafur kvaðst telja að útflutn- ingskvóti ætti að ná yfir fiskiskip sem stunduðu siglingar ekkert síður en yfir gámaútflutninginn. „Sum þessara skipa selja allan sinn afla eriendis og gætu því allt eins verið gerð út frá Hamborg. Afkoma þeirra er betri en annarra skipa, og þessar útgerðir eiga þar af leiðandi auðveldar með að bæta við sig skipum en önnur út- gerðarfélög. Það er fráleit staða, að þeir sem eru að basla við að halda uppi fiskvinnslu í þessu landi skuli standa verr að vígi að þessu ieyti en hinir sem stundað hafa það að selja afla sinn óunn* inn til útlanda. Þessi fiskvinnslu- fyrirtæki gætu þá fengið einhverj- ar tekjur af þvf að seija þennan útflutningsrétf, ef þau kærðu sig ekki um að nýta sér hann sjálf.“ „Ættu að iíta í eigin barm“ Gísli Jón Hermannsson hjá Ög- urvtk hf. í Reykjavík er ekkí hrif- inn af þessurn röksemdum, en fyrirtæki hans hefur um áratuga- skeið stundað sigiingar með afla, ekki síst til Þýskalands. „Fiskvinnslumenn úti á landi ættu heldur að iíta í eigin barm en að vera að kroppa augun úr þeim mönnum hér syðra. sem stunda siglingárnar. Hvernig má það til dæmis vera, að fiskvinnslumenn á Suðvesturlandi skuli geta keypt hráefni til vinnslu á helmingi hærra verði en fiskverkendur úti á landi? Þessir menn úti á landi eru hreinlega ekki samkeppnisfærir innan greinarinnar. Og eina ráðið sem þeir sjá er að afla sér tekna með því að selja okkur útflutn- ingslevfi.“ En hver eru rök Gísla Jóns fyrir því að sum skip eigi að fá leyfi til að flytja út meira en önnur? „Jú, fiskveiðistjórnun okkar er öll grundvölluð á ákveðinni reynslu, sem menn hafa aflað sér. Þannig var aflakvótum úthlutað á öll skip samkvæmt aflareynsiu ár- anna 1981-83. Á sama hátt er sanngjarnt að við, sem höfum stundað siglingar í 20 ár og haldið ferskfiskmörkuðunum við, njót- um okkar reynslu. Ef ekki, — þá er búið að kolivarpa kerfinu. Þetta skilur utanríkisráðherra ekki, enda held ég að hann viti h'tið um hvað hann er að tala, manngreyið. Vilja menn kannski umbylta skiptingunni milii norð- ur- suðursvæðis. Ég hefði ekkert á móti því að fá meiri þorsk og láta norðanmenn fá karfa í staðinn til að sigla með. Ef breyta á þessu kerfi, þarf að gera það í öllum þáttum en ekki bara í sambandi við siglingamar.“ „Sjá auð í eigin garði“ Formaður Landssambands ís- ienskra útvegsmanna hafnar hug- myndinni um útflutningskvóta al- gjörlega. „Það eru aðallega þeír, Ólafur Gunnarsson Gísli Jón Hermannsson sem sjá auð í annars garði, sem hrifnir eru af þessari hugmynd,“ sagði Kristján Ragnarsson í sam- tali við Fiskifréttir. „Mér finnst hins vegar eðiilegast, að þeír aðil- ar sem mesta reynslu hafa af þess- um útflutningi stundi hann öðmm fremur, enda skiptir miklu máli að kunnugleiki og þekking á með- ferð aflans sé í fyrirrúmi, ef vel á til að takast.“ Sjómannasamband Islands er einnig á mótí útflutningskvótan- um, en af nokkuð öðram ástæðum en LÍÚ. „Okkur finnst nóg komið af kvótabraski, þótt þetta bætist ekki við,“ sagði Hólmgeir Jónsson framkvæmda- stjóri SSÍ í samtaii við Fiskifréttir. „Það eru ákveðnir aðilar sem einkum stunda þennan útflutn- ing. Ég sé enga ástæðu til þess að úthluta leyfum til annarra, sem ætia sér ekki að flytja út, heldur vilja einungis fá verðmæti til þess að seija. Ekki jafnar það neitt kjör sjómanna, því sú sala kemur aldrei til hlutaskipta. Nær væri að gefa Aflamiðiun tíma til að sanna gildi sitt.“ „Allir hafí sama rétt“ í síðasta tölubiaði SJÁVAR- FRÉTTA lýsir Soffanías Ceciis- son útgerðarmaður og fiskverk- andi í Grundarfirði fylgi við út- flutningskvóta m.a. á þeirri forsendu, að úr því að menn þurfi að búa við hið „illræmda“ kvóta- kerfi, sé eðlilegt að allir hafi sama rétt til þess að drýgja tekjur sfna með ísfiskútflutningi. Þau skip sem haldi upp atvinnu á lands- byggðinni geti þá bætt sér upp minni tekjur með því að selja þennan rétt. Tryggvi Finnsson framkvæmdastjóri Fiskiðjusam- lags Húsavíkur tekur í sama streng og teiur eðliiegt, að virðis- aukinn af því að selja útflutnings- kvótann kæmi til skipta tii sjó- manna. Gámaútfiytjendur í Vest- mannaeyjum era að sjálfsögðu á annarri skoðun í þessu máli, enda er fjárhagsgrundvöllur nýrra skipa í Eyjum algjörlega byggður á þessum útflutningi. Kristján Óskarsson skipstjóri og útgerðar- maður Emmu VE gengur reyndar svo langt að segja, að réttast væri að sjáifstæðir útgerðarmenn ættu einir að sitja að ísfiskútflutning- um. „Hvers vegna eiga skip í eigu frystihúss að vera að senda út óunninn fisk? Voru skipin ekki keypt til þess að halda uppi at- vinnu í viðkomandi byggðarlög- um?“ spyr Kristján. Hvað verður? En er útht fyrir að útflutnings- kvóti verði settur á? Eða er þetta bara snakk um eitthvað sem aldrei gerist? Það var að skilja á utanríkisráðherra í útvarpsviðtali fyrir skömmu, að hann vildi að útflutningskvóti yrði að veruleika strax næsta haust og myndi hann leggja fram tiílögu þar að iútandi á ríkísstjórnarfundi. Sj ávarútvegs- ráðherra hefur lýst því yfir að hann sé andvígur hugmyndinni og telur reyndar að búið hafi verið að hafna henni síðastliðinn vetur, þegar hún var til umræðu. „Ég hef engar áhyggjur af því að þessi hugmynd verði að veruleika,“ sagði Kristján Ragnarsson við Fiskifréttir. „Þessi síðasta tillaga utanríkisráðherra er bara liður í áframhaldandi stríði við okkur, sem enginn mun gera neitt með nema hann sjálfur.“

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.