Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.11.2021, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 17.11.2021, Qupperneq 4
Fyrirtæki eru betur tengd með Vodafone Það þarf trausta tengingu til að vinna hreina orku LANDSVIRKJUN ER HJÁ VODAFONE því stjórnkerfi okkar er með víðtækustu öryggisvottun íslenskra fjarskiptafélaga. mhj@frettabladid.is FERÐAÞJÓNUSTA Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna hefur nú aftur skil- greint Ísland sem rautt þegar kemur að stöðunni hvað varðar Covid-19. Samkvæmt því er ferðalöngum ráð- lagt frá því að heimsækja Ísland. Bandaríkjamenn voru fjölmenn- asti hópur ferðamanna til Íslands í október en óvissa ríkir nú um hvaða áhrif þessi ákvörðun Bandaríkja- manna mun hafa. Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar, segir að það sé erfitt að segja til um nákvæm áhrif akkúrat núna. „Það hefur alltaf áhrif þegar þessi tölfræðiviðmið breytast hvort sem það er í Bandaríkjunum eða Evrópu. Þegar það eru gefnar út við- varanir þá fylgist fólk almennt með þessu,“ segir Jóhannes. Hann býst þó við að áhrifin verði svipuð og síðast þegar Ísland var rautt en þá var meira um að nýbókunum fækkaði fremur en að fólk sem átti þegar bókaða ferð til Íslands af bókaði. „Við erum alltaf að vinna með þann hóp ferða- manna sem er tilbúinn að ferðast þrátt fyrir ástandið í heiminum. Hann stækkar og minnkar eftir því hvernig ástandið er heima fyrir og á áfangastað,“ segir Jóhannes. Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsinga- fulltrúi Icelandair, tekur í sama streng og segir of snemmt að segja til um áhrifin núna en að það muni koma í ljós á næstu vikum. n Áhrif rauðs Íslands eiga eftir að koma í ljós Hingað til hefur verið losara- bragur á því hvað skuli gera ef þvottabjörn eða snákur finnst á förnum vegi. Nú verður leyst úr því með Villidýrateymi sem stýrir því hvernig eigi að taka á framandi hugsanlegum smitberum. kristinnhaukur@frettabladid.is UMHVERFISMÁL Verið er að koma á fót sérstöku Villidýrateymi fimm stofnana til þess að taka við öllum leðurblökum, slöngum, þvotta- björnum, broddgöltum og öðrum framandi kvikindum sem almenn- ingur kynni að f inna. Nokkur losarabragur hefur verið á þessu hingað til en málið er mikilvægt til þess að halda erlendum pestum í skefjum. „Það getur verið smithætta af þessum dýrum og mikilvægt að fólk viti hvert það getur snúið sér,“ segir Auður Lilja Arnþórsdóttir, sér- greinadýralæknir smitsjúkdóma og faraldsfræði hjá Matvælastofnun, sem er ein þeirra stofnana sem koma að Villidýrateyminu. Hinar eru Umhverfisstofnun, Tilraunastöðin að Keldum, Náttúrufræðistofnun og Hafró. Sjúkdómarnir geta verið ýmiss konar sem geta endað bæði í mannfólki og búfénaði. Samkvæmt nýrri áætlun er búið að lista allt ferlið frá því að framandi villidýr finnst á förnum vegi þar til það er aflífað, rannsakað og hræinu eytt eða þá varðveitt. Hér er ekki um flækingsfugla að ræða, sem koma mýmargir á hverju ári, né fiska, skordýr eða hvítabirni sem sérstök áætlun gildir um. Algengustu kvikindin sem hér finnast og Villidýrateymið þarf að hafa afskipti af eru leðurblökur, kannski ein á ári. Grunur er um að leðurblaka hafi einmitt verið kveikjan að Covid-19. Það er hins vegar ekki það sem Villidýrateymið er mest að hugsa um. „Mikilvægast Villidýrateymið tekur til starfa Skriðdýr hafa margoft fundist á Íslandi en af þeim stafar salmonelluhætta. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Fékk að fljúga á kvöldin Ein af fyrstu frásögnum af komu leðurblöku til landsins var á bænum Hvoli í Mýrdal, í október árið 1943. Bóndasonur- inn fann hana í kartöflugarði og var hún sett í kassa. Blakan fékk ánamaðka að éta og mjólk að drekka og fékk að fljúga laus á kvöldin. Hún dafnaði ágætlega, en þegar bóndinn fór með hana til Reykjavíkur veslaðist hún upp og drapst. Skutu þvottabjörn í lýsisverksmiðju Í janúar árið 1976 fann rafvirki ferfætt loðið kvikindi í verk- smiðju Lýsis og mjöls í Hafnar- firði. Vissi hann ekki hvers konar dýr þetta væri og kallaði á félaga sinn sem skaut dýrið til bana. Um var að ræða þvottabjörn, gjöf frá Sápugerðinni Frigg til Sædýrasafnsins, keyptan frá Dýragarðinum í Kaupmanna- höfn en hann hafði sloppið. er að hundaæði komi ekki til lands- ins,“ segir Auður en sá válegi sjúk- dómur hefur aldrei fundist hér á landi. „Fólk þarf að fara mjög var- lega ef það finnur leðurblöku. Þær koma oft til landsins með gámum.“ Auður segir að sem betur fer hafi ekki enn komið upp alvarlegt til- felli hvað varðar smit af framandi villidýri. Flest dýr sem sniglast um á gáma- svæðum í erlendum höfnum, skrið- dýr og lítil spendýr, eru líkleg til þess að komast óséð til landsins. Oft eru það einmitt sjómenn á frakt- skipum sem finna þessi dýr og hafa ekki alltaf haft vitneskju um hvert á að skila þeim. Finni einhver á höfuðborgar- svæðinu leðurblöku eða annað framandi dýr á sá hinn sami að til- kynna það til Matvælastofnunar, í síma 530-4800. Á landsbyggðinni skal hafa samband við héraðsdýra- lækna, í síma 894-0240 í Suðvest- urumdæmi, 858-0886 í norðvestri, 858-0860 í norðaustri og 839-8300 í suðri. n Mikilvægast er að hundaæði komi ekki til landsins. Auður Lilja Arnþórsdóttir sérgreinadýra- læknir birnadrofn@frettabladid.is COVID-19 Íslendingar vörðu 1.089 milljónum króna í tónleika, leik- hús, kvikmyndasýningar og aðra viðburði í október síðastliðnum samkvæmt tölum um kortaveltu frá Rannsóknarsetri verslunar- innar. Í sama mánuði á síðasta ári, þegar samkomutakmarkanir voru í hámarki, nam kortavelta í sama flokki 61 milljón. Innlend kortavelta bendir til þess að miðasala á jólatónleika hafi náð sér aftur á strik eftir kórónaveirufar- aldurinn en veltan nálgast nú tölur frá því í september 2018 þegar hún nam tæpum 1.300 milljónum. „Þessar tölur sýna hvað er mikil þörf fyrir svona viðburði hjá fólki. Það er í spreng að koma,“ segir Ísleif- ur Þórhallsson, formaður Bandalags íslenskra tónleikahaldara. Miðasala og smittölur haldist í hendur. „Við sjáum að þegar smitum fjölgar þá dregur úr miðasölunni og þegar þeim fækkar þá eykst hún. Þetta gerist áður en tilkynnt er um hertar takmarkanir, fólk virðist vita í hvað stefni með fjölgun smita,“ segir Ísleifur. n Yfir milljarður í miða á viðburði Ísleifur Þórhalls- son, formaður Bandalags íslenskra tón- leikahaldara helenaros@frettabladid.is COVID-19 Óánægja ríkir meðal nem- enda Háskóla Íslands vegna stað- prófa. „Mér finnst með öllu óábyrgt að stefna lífi stúdenta í hættu,“ segir Lenya Rún Taha Ka rim nemandi. Jón Atli Benediktsson rektor segir misjafnt eftir námskeiðum hvernig prófum verði háttað. „Við höfum verið að ræða þetta við fulltrúa stúdenta og ég hef nú ekki orðið var við annað en að þetta mæti skiln- ingi,“ segir hann. „Nú eru f lestir bólusettir og við uppfyllum allar kröfur sóttvarna- yfirvalda svo þetta á nú ekki að vera neitt vandamál,“ segir Jón Atli. n Nánar á frettabladid.is Óánægja með staðpróf um jólin 4 Fréttir 17. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.