Fréttablaðið - 17.11.2021, Page 10

Fréttablaðið - 17.11.2021, Page 10
Það sem er jákvætt er að með tilkomu streymis- veitnanna eru komnir frekari fjármögn- unarmögu- leikar fyrir okkur og það breytir miklu. Ég beið mjög spenntur eftir þriðju seríu af Ófærð. Sérstaklega eftir að ég las að Andri hefði fært sig um set innan lögreglunnar og væri nú farinn að sinna rannsókn efna- hagsbrota. Loksins íslenskur saka- málaþáttur á mínu áhugasviði! Þegar fyrsti þáttur hófst runnu á mig tvær grímur, enn annað morð- ið úti í sveit og Andri ekki lengi að snúa baki við innherjasvikum og skattamálum. Skellur. Miklir möguleikar fyrir bí. Ég var farinn að sjá fyrir mér svaka- lega spennandi ser íu : Mik ið óveður veldur truf lun á rafmagni og nettengingum. Fyrir vikið eru viðskipti í Kauphöllinni stöðvuð („Ófærð“ í viðskiptum með verð- bréf og fjárfestar „Trapped“ með illseljanlegar eignir). En það er ein- hver að stunda innherjasvik. Andri þarf að komast að því hver það er, áður en markaðir opna aftur. Á sama tíma er íslenskt stórfyrir- tæki að ganga frá fjármögnun nýs verkefnis sem gæti skapað þús- undir starfa. Stöðvun viðskipta í Kauphöllinni setur allt ferlið í uppnám, fjárfestar þurfa að losa fé á markaði til að ljúka við fjár- mögnunina og án virkrar verð- myndunar á skuldabréfamarkaði reynist samningsaðilum erfitt að ná saman um vaxtakjör. Fjöldi ann- arra samninga situr á hakanum og fyrir vikið er vaxandi ólga í sam- félaginu. „Ófærð“ í Kauphöllinni er líklega svipað sjaldgæf og morð í íslenskum smábæjum. Viðskiptakerfi Kaup- hallarinnar hefur til að mynda ekkert hikst að síðastliðin tvö árin. Viðskipti með einstaka verðbréf eru að sama skapi ekki stöðvuð nema rík ástæða sé til, svo sem ef fjárfestar hafa ekki aðgang að sömu upplýsingum og tryggt er að stöðv- unin valdi ekki tjóni á hagsmunum fjárfesta eða starfsemi markaðarins. Sem er mjög gott, því áhrifin af því að fjárfestar geti ekki fjárfest eða losað um eignir geta verið umtals- verð (þó framangreint dæmi sé vissulega nokkuð ýkt). Gæti orðið gott sjónvarp. Andri að rúnta um Borgartúnið á Isuzu Trooper-num, Hinrika komin suður því Bárður flæktist í eitthvert crypto-svindl. Væri svo sem hægt að henda inn einu morði líka, fyrir fólk sem hefur áhuga á slíku. Ég er allavega fullur af hugmyndum, svo Balti má endilega heyra í mér fyrir seríu fjögur. n Ófærð á markaði Baldur Thorlacius framkvæmda- stjóri sölu og viðskiptatengsla, Nasdaq Iceland Kvikmyndagerð blómstraði í Covid Kvikmyndagerð á Íslandi gekk virkilega vel í faraldrinum, að sögn framleiðenda. „Árið 2020 var frábært ár fyrir kvikmyndagerð á Íslandi,“ segir Elli Cassata, framleiðandi hjá Pegasus. „Við í raun græðum á hamförum í heiminum því Ísland er svo lítið og við erum fljót að bæla niður bylgjur. Á síðasta ári voru líka fáir túristar svo við vorum ein á hótelum meðan við vorum að framleiða. Það má með sanni segja að Covid hafi verið frábært fyrir kvikmyndagerð á Íslandi og íslenska framleiðslu almennt.“ Agnes Johansen, framleiðandi hjá RVK Studios, tekur í sama streng. „Það vakti heimsathygli árið 2020 þegar RVK Studios var í raun nánast eina fyrirtækið á heimsvísu sem var að framleiða efni vorið 2020. Við fengum undanþágu því við vorum að vinna við kjöraðstæður meðan Netflix lokaði öllum sínum framleiðslu- einingum um allan heim,“ segir hún og bætir við að starfsemi RVK Studios hafi aðeins stoppað í 1-2 vikur. „Síðan fundum við leiðir til að hólfaskipta og útbúa litakóðunarkerfi sem gerði okkur kleift að halda áfram með framleiðslu. Þetta framtak okkar vakti heimsat- hygli og við höfðum ekki undan að svara fyrirspurnum um hvernig við værum að láta þetta ganga. Á síðasta ári vorum við með þrjú stór verkefni í gangi; sjónvarpsþáttaröðina Kötlu, bíómyndina Against the Eyes fyrir Netflix og Ófærð 3 þannig að við vorum í tökum yfir 200 daga á síðasta ári sem stingur verulega í stúf við ástandið. Á þessu ári höfum við verið að vinna í eftirvinnslu eftir þessi velheppnuðu verkefni sem við unnum í Covid.“ n Kvikmyndaframleiðendur segja að tilkoma streymis- veitna hafi gjörbylt fjármögn- unarmöguleikum í kvik- myndaframleiðslu. Á árinu 2020 var mikill hagnaður í íslenskri kvikmyndagerð. Síðasta ár var einstaklega gott fyrir íslenska kvikmyndagerð að sögn framleiðenda og vel hefur gengið að fá fjármögnun bæði innan lands og utan. H i l ma r St e f á n s s on , f r a m- kvæmdastjóri Saga Film, segir að fyrirtækinu hafi gengið virkilega vel að fá erlenda samstarfsaðila með í ýmis verkefni í kvikmynda- gerð. „Þegar kemur að efni á borð við þessar stærri og f lóknari seríur, eins og Ráðherrann, Stellu Blóm- kvist eða Systrabönd, þá einfald- lega verðum við að fá erlenda sam- starfsaðila með,“ segir Hilmar og bætir við að það sé aðeins ódýrara efnið sem er framleitt með það að markmiði að sýna það eingöngu á Íslandi. „Samstarfið við þessa erlendu aðila hefur gengið ótrúlega vel. Við erum ágætlega sjóuð í þessu og erum með góða aðila með okkur.“ Elli Cassata, framleiðandi hjá Pegasus, segir að fyrirtækið einblíni á framleiðslu fyrir innlenda aðila. „Við erum aðeins í því að fram- leiða fyrir innlenda aðila og höfum verið að vinna í verkefnum á borð við Leynilögguna og Hamarinn. Leynilöggan seldist vel úti en hún var fyrst og fremst framleidd fyrir íslenskan markað,“ segir Elli og bætir við að vinsældir Leynilögg- unnar hafi komið skemmtilega á óvart. „Leynilöggan hefur verið að skila okkur nokkrum tugum milljóna. Þetta var mynd sem var gerð fyrir rétt um 100 milljónir en hefði, ef vel ætti að vera, verið gerð fyrir 300 milljónir en þá hefðum við ekki fengið neinar tekjur fyrir hana. Þannig að við náðum að lág- marka kostnað verulega við gerð myndarinnar.“ Agnes Johansen, framleiðandi hjá RVK Studios, segir að streymis- veiturnar hafi breytt fjármögn- unarmöguleikum hjá framleið- endu m. „Fra mleiðsla n hef u r gengið vel og það sem er jákvætt er að með tilkomu strey mis- veitnanna eru komnir frekari fjár- mögnunarmöguleikar fyrir okkur og það breytir miklu,“ segir hún og bætir við að streymisveiturnar hafi keypt mikið af efni frá RVK Studios. „Streymisveiturnar hafa verið að kaupa sýningarrétt á efni eins og Ófærð 1 og 2 og nú hefur Netf lix keypt sýningarréttinn á Mikil velgengni í íslenskri kvikmyndagerð RVK Studios sá um framleiðslu á vinsælu þáttaröðinni Ófærð 3. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Hagnaður kvikmyndaframleiðenda mikill á síðasta ári Pegasus hagnaðist um 55 milljónir króna á síðasta ári samanborið við 17 milljóna króna tap árið á undan. Þá margfölduðust tekjur félagsins en þær voru 1,7 milljarðar króna árið 2020 en voru 417 milljónir árið 2019. Saga Film-samstæðan hagnaðist um 72 milljónir króna á síðasta ári saman- borið við 45 milljóna króna hagnað árið á undan. Þá voru tekjurnar árið 2020 um 383 milljónir króna samanborið við 354 milljónir króna árið 2019. Hagnaður RVK Studios nam 233 millj- ónum króna árið 2020 samanborið við 60 milljóna króna hagnað árið á undan. Tekjur RVK Studios á síðasta ári námu um 468 milljónum króna en þær voru um 367 milljónir króna árið á undan. Magdalena Anna Torfadóttir magdalena @frettabladid.is Ófærð 3 fyrir f lest öll svæði heims nema Þýskaland og Ísland. Fyrr á þessu ári framleiddum við sjón- varpsþættina Kötlu fyrir Netflix og það gekk þannig fyrir sig að Netflix fjármagnaði þættina frá upphafi til enda og við skiluðum þeim til- búnum. Síðan sá Netflix alfarið um að koma þeim í dreifingu.“ Hilmar segir að þeirra helstu erlendu samstarfsaðilar séu Sky og NBC. „Okkar helstu verkefni hafa verið með Sky og NBC. Þegar við þróum verkefnin þá gerum við það með alþjóðlegu ívafi og með það í huga að reyna að höfða til stærri markaðar heldur en Íslands,“ segir hann og bætir við að vegna ákveðinna ástæðna hafi þeir lítið unnið með Netflix. „Þegar þú vinnur með Netf lix þá eignast þeir í rauninni allan réttinn. Það hefur í rauninni ekki hentað okkur. Við höfum meira verið að horfa á, þegar við erum að framleiða, að þá erum við að byggja upp vörumerki. En við erum í góðum samskiptum við Netf lix og látum verkefnin sjálf ráða þessu. Þau eru jafn mis- jöfn og þau eru mörg. Við höfum líka unnið með ViaPlay og þýskum aðilum.“ Elli bætir við að Pegasus hafi selt efni til Netflix. „Kosturinn við að selja til Netf lix er hvað það er mikil kynning fyrir fyrirtækið. Við framleiddum tvær seríur fyrir Net- f lix, Hraunið og Hamarinn, og þá birtist lógóið okkar á þessari stóru streymisveitu sem var mikil kynn- ing fyrir okkur þó svo Netflix borgi ekki mikið fyrir svona seríur.“ Hann segir jafnframt að bíó- myndir eigi oft erfitt uppdráttar eins og staðan er í dag. „Það er svo mikið úrval af rosalega góðu efni sem þú getur nálgast í Apple TV heima hjá þér. Það gerir það að verkum að fólk fer sjaldnar í bíó,“ segir Elli og bætir við að Pegasus sé með spennandi verkefni í bígerð. „Við erum um þessar mundir að vinna að risastóru verkefni. Það er sjónvarpsþáttasería sem er byggð á hinum vinsæla bókaflokki Ísfólk- inu. Í tengslum við það verkefni verðum við að sækja okkur fjár- magn erlendis því það er einfaldlega af þeirri stærðargráðu.“ Agnes segir að RVK Studios hafi ekki framleitt neitt efni sem var eingöngu ætlað fyrir Ísland. „Í raun og veru er útilokað fyrir okkur að fara í framleiðslu nema annað hvort í samframleiðslu eða með öðrum löndum. Með því getum við sótt fjármagn erlendis og líka með forsölu. Við þurfum nefnilega að tryggja fjármögnun að stærstum hluta áður en við förum af stað.“ n FJÁRFESTING Í SJÓÐUM ER GÓÐUR VALKOSTUR TIL AÐ ÁVAXTA PENINGA TIL SKEMMRI OG LENGRI TÍMA Kynntu þér árangur og úrval ÍV sjóða á WWW.IV.IS FRÉTTABLAÐIÐ10 Fréttir 17. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGURMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 17. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.