Fréttablaðið - 17.11.2021, Síða 12

Fréttablaðið - 17.11.2021, Síða 12
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Þær fjár- hæðir sem ekki skila sér í sameigin- lega sjóði samfélags- ins vegna svindls enda í djúpu vösunum, ekki þeim grunnu og götóttu. Heima- verkefni aðildarríkj- anna er því að bæta úr því í sam- ræmi við 1,5 gráðu markmiðið fyrir lok næsta árs. Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur @frettabladid.is  kristinnhaukur@frettabladid.is Landsbyggðin dissuð Kvittir heyrast nú þess efnis að Framsókn hyggist skipa alla þrjá oddvitana á höfuðborgarsvæðinu sem ráðherra. Ásmund Einar Daðason, Lilju Alfreðsdóttur og merkilegt nokk, Willum Þór Þórsson. Verði þetta raunin er ekki annað hægt að segja en flokkurinn hafi rekið landsbyggðinni vænan kinnhest í ljósi kosningaúrslitanna og sögulegs baklands. Stærstan sigur vann Ingibjörg Isaksen í Norðausturkjördæmi, stökk um meira en 10 prósent, og ekki mikið minni sigur vann Stefán Vagn Stef- ánsson í Norðvestri. Þau hljóta að vera skúffuð, sem og íbúarnir sem sjá flokkinn sinn hampa mölinni á kostnað landsbyggðarinnar. Þykkt plott Plottið með stólaskipuninni er vitaskuld ekki að verðlauna Will- um. Heldur að gera flokkinn meira gildandi á höfuðborgarsvæðinu og komast aftur í borgarstjórn. Flokkurinn vann stórsigur í sept- ember en það gæti verið gleymt í maí. Undanfarnar borgarstjórnar- kosningar hefur flokkurinn fengið 3 prósent, ef frá eru taldar kosning- arnar þegar keyrt var á útlendinga- hatri og allar rottur bæjarins komu til að kjósa grænt. Nú er ásýnd flokksins hins vegar orðin önnur, mjúk og mannleg. Þess vegna verður að vanda valið á oddvita. Fá einhvern nýjan og ferskan, ekki afdankaða gamla þingmenn eða borgarfulltrúa. n Glasgow-fundi Sameinuðu þjóðanna um loftslags- mál er lokið. Þrátt fyrir að ég hefði viljað sjá meiri metnað og stærri skref stigin með meiri hraða, þá er niðurstaða fundarins bæði söguleg og árangursrík og mikilvægt skref á réttri leið. Í fyrsta lagi staðfestu aðildarríkin 197 að nú bæri að stefna að því að halda meðalhlýnun jarðar innan við 1,5°C. Þetta er söguleg pólitísk viðurkenning á loftslagsvísindunum. Með þessari ákvörðun minnka líkur á að eyríki í Kyrrahafi sökkvi í sæ og dregur úr röskun á vistkerfum, samfélögum og efnahag heimsins. En til þess þarf þó metnaðar- fyllri skuldbindingar ríkja heims, því miðað við núverandi loforð stefnir í 2,4°C meðalhlýnun. Heimaverkefni aðildarríkjanna er því að bæta úr því í samræmi við 1,5 gráðu markmiðið fyrir lok næsta árs. Í öðru lagi þá er í fyrsta skipti í ákvörðun lofts- lagsfundar SÞ ávarpað að draga þurfi úr notkun á kolum og niðurgreiðslum á jarðefnaeldsneyti. Þetta atriði var mikið þrætuepli á fundinum en það tókst samt að lenda því að lokum. Þar sem lofts- lagsvandinn er að stærstum hluta vegna brennslu jarðefnaeldsneytis (kola, olíu og gass), þá markar þessi ákvörðun mikilvæg tímamót. Í þriðja lagi leggur ákvörðun fundarins sérstaka áherslu á mikilvægi þess að vernda og endurheimta náttúru og vistkerfi. Losun frá landi og landnýtingu er enda næststærsti losunarþátturinn á heimsvísu og því gríðarlega mikilvægt að pólitísk viðurkenn- ing næst á mikilvægi náttúruverndar fyrir loftslags- aðgerðir. Auk þessa skrifuðu yfir 130 ríki með nærri 90% af skógarþekju jarðar undir yfirlýsingu um að stöðva skógar- og landeyðingu fyrir árið 2030. Í fjórða lagi þá er greinilegt að áhugi fjárfesta, þar með talið lífeyrissjóða, og fyrirtækja hefur aukist gríðarlega og búast má við stórauknum fjárfest- ingum í nýrri loftslagsvænni tækni og endurheimt vistkerfa á komandi árum. Aldrei er mikilvægara en núna að ríki heims hrindi frekari aðgerðum í framkvæmd í loftslags- málum. Ísland mun ekki láta sitt eftir liggja. n Árangursríkur fundur Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auð- lindaráðherra PREN TU N .IS mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is PREN TU N .IS LAUFABRAUÐ eftir norðlenskri uppskrift ................................................ Hægtað pantasteikt ogósteikt Í gær tók gildi nýtt greiðslukerfi fyrir Strætó. Nútímavæðing bréfstrætómiða og pappírskorta var eflaust tímabær, en markmið breytingarinnar er ekki síst að stemma stigu við svindli. Takist einhverjum að laumast inn án þess að borga verður beitt grimmum sektum. Fram hefur komið að Strætó telur sig verða af allt að 200 milljónum árlega vegna svindls. Það er ekki há fjárhæð miðað við þá hags- muni sem í húfi eru fyrir þá sem þurfa að komast milli staða, óháð því hvort þeir eigi fyrir fargjaldi í strætó. Almenningssam- göngur eru grundvallarþáttur í að tryggja og styðja við að fólk geti lifað eðlilegu lífi, sótt vinnu, sinnt börnum, útréttingum og félags- lífi, verið frjálst. Einhverjum kann að þykja það dramatísk fullyrðing að fólk geti hrein- lega misst tökin á lífinu fari aðgangur þess að samgöngum úr skorðum. Hún er samt sönn og þess vegna er gríðarlega mikilvægt að fólk, bæði fullorðnir og börn, hafi tök á að svindla sér í strætó. Fyrir nokkrum árum var bótasvindl öryrkja helsta áhyggjuefni þáverandi formanns fjár- laganefndar, sem taldi sig geta lokað fjárlaga- gatinu með því að afhjúpa óprúttna öryrkja. Njósnað var um atvinnulausa á samfélags- miðlum til að koma upp um rányrkju þeirra. Borgarar voru hvattir til að segja til ættingja sinna og nágranna sem þeir grunuðu um að féfletta ríkið til að eiga fyrir salti í grautinn. Það er víða svindlað. En þær alvöru fjár- hæðir sem ekki skila sér í sameiginlega sjóði samfélagsins vegna svindls enda í djúpu vös- unum, ekki þeim grunnu og götóttu. Þær eru milljónir og milljarðar, ekki hundraðkallar í strætó. Eftirlits- og refsiaðgerðir kerfisins gegn fátæku fólki eru grimmar og skila ekki árangri fyrir samfélagið enda er það allra hagur að fólk komist í vinnuna og börnin á æfingu og að sem allra f lestir geti reddað sér. Ef fólk á ekki fyrir farinu, eigum við samt að bjóða það velkomið um borð. Strætó er eitt af mikil- vægustu samfélagsfyrirtækjum landsins og á að tryggja frekar en standa í vegi fyrir því að peningalaust fólk komist leiðar sinnar. Það er ekki síst þá sem lífið liggur við. Jafnvel þótt Strætó takist að ná einhverjum af þessum 200 milljónum koma þær bara fram annars staðar sem mínus í kerfinu. Ef ekki hjá Strætó, þá hjá félagsþjónustunni eða Tryggingastofnun, Fangelsismálastofnun eða lögreglunni. Það margborgar sig að gefa fólki einfaldlega séns. n Svindl SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 17. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.