Fréttablaðið - 17.11.2021, Side 13

Fréttablaðið - 17.11.2021, Side 13
GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR 588 80 40 www.scanver.is RAFMÓTORAR Eitt klikk og allt getur klikkað! Hugsum í framtíð Með Netöryggistryggingu TM er þitt fyrirtæki verndað gegn fjárhagslegu tapi í kjölfar netárásar, gagnaleka eða auðkennisþjófnaðar. Kynntu þér málið á tm.is Gott vinnuumhverfi kemur ekki bara í veg fyrir að starfsfólk verði f y r ir slysum eða veik indum, heldur eykur það í raun vellíðan þess. Vellíðan vísar til almenns ástands einstaklingsins, líkam­ legrar og andlegrar heilsu. Sam­ kvæmt Alþjóðaheilbrigðismála­ stofnuninni þá er góð heilsa ekki einungis að vera laus við veikindi, heldur einnig að njóta vellíðunar. Vellíðan tengd starfi getur verið starfsánægja, hollusta, skuldbind­ ing, tryggð við fyrirtækið, að finn­ ast maður hafa tilgang og maður hafi lagt sitt af mörkum til að ná góðum árangri. Áhrif stoðkerfisvanda Stoðkerfisvandi starfsfólks veldur vanlíðan, stuðlar að streitu og getur hæglega leitt til of mikils andlegs álags. Á hinn bóginn getur sál­ félagsleg áhætta einnig valdið stoð­ kerfisvanda. Þar sem þessi atriði eru tengd, þá geta fyrirbyggjandi aðgerðir til að takast á við eina tegund áhættu hjálpað til við að fyrirbyggja hina. Framk væmdastjórn Evrópu­ sambandsins ákvað árið 2017 að leggja aukna áherslu á heilbrigði og öryggi í starfi, með sérstakri áherslu á mikilvægi þess að koma í veg fyrir stoðkerfisvanda og sál­ félagslega áhættu. Brýnt er að bregðast við, því nýleg könnun Evrópsku vinnuverndarstofnun­ arinnar sýnir að 60% allra veik­ indafjarvista í Evrópu eru vegna stoðkerfisvanda og streitu. Einn­ ig kom í ljós að veikindaleyfi af þessum sökum eru oftast lengri en veikindaleyfi af öðrum orsökum. Stoðkerfisvandi veldur ekki aðeins þjáning u hjá einstak lingnum heldur leiðir einnig til tapaðra vinnudaga og útgjalda. Það sama má segja um fyrirtækin og sam­ félagið allt, kostnaður vegna stoð­ kerfisvanda er töluverður. Stoð­ kerfisvandi getur valdið mikilli vanlíðan og takmarkað getu starfs­ fólks til þess að gegna starfi sínu á skilvirkan hátt. Starfsfólk sem verður fyrir heilsubresti af þessum völdum getur annaðhvort farið í veikindaleyfi eða haldið áfram að vinna. Í seinna tilfellinu þá er fólk oftast með skerta starfsgetu og getur ekki skilað fullum afköstum. Langvarandi stoðkerfisvandi með tilheyrandi verkjum og hreyfi­ skerð ingu getur jafnframt leitt af sér ástand sem skapar vinnutengda streitu, sem aftur getur endað í vandamálum á borð við kulnun og þunglyndi, eða leitt af sér líkam­ lega sjúkdóma eins og hjartasjúk­ dóma. Stoðkerfisvandi og forvarnir á vinnustöðum Gunnhildur Gísladóttir sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu En hvað er til ráða? Við hönnun og skipulag vinnuum­ hverfis þurfa stjórnendur að huga að forvörnum í samvinnu við starfsfólkið þannig að það hafi meiri áhrif á hvernig starfinu og vinnuaðstæðum er hagað. Slíkt samstarf getur komið í veg fyrir eða dregið úr streitu og skapað vinnu­ umhverfi og skipulag sem gerir starfsfólki kleift að beita góðum og fjölbreyttum vinnustellingum, vinna á ákjósanlegum hraða við góðar aðstæður. Markvisst vinnuverndarstarf á vinnustað felur í sér að koma auga á aðstæður sem skapa áhættu fyrir stoðkerfið og finna lausnir til að koma í veg fyrir óheppilegt álag. Það þarf að vera hluti af skipulögðu forvarnarstarfi á vinnustaðnum en í því geta fyrirtæki þurft hagnýta leiðsögn og aðstoð. Stjórnendur þurfa að vinna markvisst að því að koma kerfisbundið í veg fyrir eða draga úr stoðkerfisvanda og sál­ félagslegri áhættu og bæta þannig bæði vellíðan starfsfólks sem og framleiðni fyrirtækisins. Vinnueftirlitið heldur afmælis­ ráðstefnu í streymi föstudaginn 19. nóvember. Yfirskrift hennar er „Vinnuvernd – ávinningur til fram­ tíðar“. Þar verða mörg áhugaverð erindi sem fjalla einmitt um ofan­ greind atriði enda eru einkunnar­ orð Vinnueftirlitsins: Allir heilir heim. ■ Markvisst vinnu- verndarstarf á vinnu- stað felur í sér að koma auga á aðstæður sem skapa áhættu fyrir stoðkerfið og finna lausnir til að koma í veg fyrir óheppilegt álag. MIÐVIKUDAGUR 17. nóvember 2021 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.