Fréttablaðið - 17.11.2021, Side 14

Fréttablaðið - 17.11.2021, Side 14
Viðurkenning fyrir framtak ársins til að auka raunverulegt jafnrétti fer til stjórnenda Arion banka fyrir „að tryggja starfsfólki 80% launa í fæðingarorlofi“. Fyrir mig og aðra þá sem vinna að auknu jafnrétti er framtak bankans mikil gleðitíðindi og við hljótum að ætla að enginn fagni þessu meira er jafnréttisráðherrann í forsætisráðu- neytinu. „Með því að tryggja starfsfólki 80% laun í fæðingarorlofi er foreldr- um, óháð kyni eða annarri stöðu, auðveldað að nýta fæðingarorlofs- rétt sinn. Þannig miðar aðgerðin m.a. að því að fjölga þeim feðrum sem nýta fæðingarorlofsrétt sinn og að styrkja konur í stjórnunarstöð- um. Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, segir: „Við viljum auð- velda starfsfólki okkar að taka fæð- ingarorlof með því að tryggja öllum nýbökuðum foreldrum 80% af launum sínum á þessum dýrmæta og mikilvæga tíma í lífi þeirra og barna þeirra. Jafnframt viljum við með þessu gera Arion banka að enn eftirsóknarverðari vinnustað fyrir ungt og hæfileikaríkt fólk.“ Svo segir á vef Arion banka og láti guð gott á vita. Og við baráttumennirnir hljót- um enn fremur að ætla að Katrín Jakobsdóttir jafnréttisráðherra sé á sömu línu og leiti nú tækifæra, ásamt sínu starfsfólki, til að ríkið verði ekki eftirbátur bankans, held- ur verði ríkisreknar stofnanir ekki síður eftirsóknarverðir vinnustaðir fyrir ungt og hæfileikaríkt fólk. Hið gleðilega framtak bankans felur í sér jafna ábyrgð beggja for- eldra á umönnun barna sinna og það er gríðarlega mikilvægt atriði. Nýir foreldrar í hópi starfs- fólks munu hafa betri forsendur og tækifæri en aðrir til að sinna þroskaþörfum ungra barna sinna. Jafnari umönnunarábyrgð, óháð kyni foreldra, mun síðan hafa í för með sér þroskaef landi styrk frá frumbernsku sem þegar fram líður skilar sér í minni byrði á starfsfólk í mennta- og velferðarstörfum, svo ekki sé talað um í heilbrigðisþjón- ustu. Alvitað er að bæði foreldrar og starfsfólk í áður nefndum störfum þarfnast mun betri skilyrða. Útspil Arion er því svo sannarlega ekki aðeins fagnaðarefni heldur bein- línis til eftirbreytni. Nú bíðum við bara eftir því að jafnréttisráðherra og æðsti stjórnandi ríkisins, lang- stærsta vinnuveitanda landsins, sýni sín spil. Jákvæð skref jafnréttis- ráðherra verða fordæmi fyrir aðrar stofnanir og fyrirtæki í landinu. Vilji er allt sem þarf. n Framtak ársins Ólafur Grétar Gunnarsson fjöl skyldu- og hjóna ráð gjafi Ein nöturlegasta ákvörðun borgar- innar síðustu áratugi var að leggja niður sérskóla og sérúrræði í krafti „skóla án aðgreiningar“. Börnum með fötlun eða sérþarfir var hent inn í almennu skólana í von um að þau myndu þá fara að haga sér almenni- lega og kannski verða eins og annað fólk. Þessi ákvörðun var meðal ann- ars byggð á pólitískum rétttrúnaði, óraunhæfum væntingum og jafnvel von um sparnað. Ákvörðunin var tekin af sérfræð- ingum á menntasviði sem hafa ekki haft góða þekkingu á fötlun og/eða verið í fullkominni afneitun á eðli fötlunar. Í stað þess að undirbúa skólana, kennarana og annað fagfólk undir komu barna, sem ekki áttu lengur aðgang að sérúrræðum, var þeim hent í fang kennara sem höfðu hvorki menntun né þjálfun til að sinna þeim og höfðu meira en nóg að gera við að sinna þeim nemendum sem þeir höfðu fyrir. Fyrr verandi sérfræðingur á menntasviði sagði mér að eina leiðin til að knýja fram breytingar í skóla- kerfinu, væri að leggja niður sérúr- ræði svo almenni skólinn neyddist til að sinna börnum með sérþarfir. Það átti, með öðrum orðum, að beita saklausum börnum í pólitísk- um tilgangi án þess að skeyta um afleiðingarnar. Nú eru afleiðingarnar að koma í ljós. Skólarnir reyna að finna leiðir til að koma til að móts við þarfir barna sem þurfa sérstaka þjónustu á sama tíma og þeir þurfa að sinna öðrum nemendum, halda uppi jákvæðu andrúmslofti og vinnufriði. Vafalítið leita þeir ráða hjá öðrum sérfræð- ingum sem sumir hafa trú á atferlis- mótum sem felur í sér „time-out“ og þar með er tekin upp sú aðferð að loka börn inni. Ónauðsynleg valdbeiting og ofbeldi á börnum í skóla er á ábyrgð borgarinnar. Hvort sem það er vegna þess að kennari er örmagna og ráðalaus eða skólinn tekur upp vafasamar aðferðir sem eru þó viðurkenndar í ákveðnum tilfellum undir handleiðslu sérmenntaðra aðila. Það er vægt til orða tekið að áður- nefnd ákvörðun borgarinnar hafi verið klúður. Hún hefur skaðað nemendur, kennara, fjölskyldur og skólakerfið. Ákvarðanir sem eru teknar af van- þekkingu, meðvirkni, afneitun og jafnvel fordómum og ofstæki, geta aldrei leitt til góðrar niðurstöðu. Það er óskandi að saklaus börn þurfi ekki mikið lengur að gjalda fyrir ákvarðanir misviturra sér- fræðinga á menntasviði. n Ofbeldi í boði borgarinnar Ásta Kristrún Ólafsdóttir kennari, foreldri og sálfræðingur Ónauðsynleg vald- beiting og ofbeldi á börnum í skóla er á ábyrgð borgarinnar. Jákvæð skref jafn- réttisráðherra verða fordæmi fyrir aðrar stofnanir og fyrirtæki í landinu. Afgreiðslutímar á www.kronan.is Pssst... dagatalið fæst í öllum stærri Krónu verslunum! OF SNEMMT ... Fyrir lúxus súkkulaði dagatal? Pssst ... Það má alveg borða fleiri en einn mola í einu! 14 Skoðun 17. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.