Fréttablaðið - 17.11.2021, Blaðsíða 15
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
MIÐVIKUDAGUR 17. nóvember 2021
Lilja segir það mikilvægt að taka inn fæðubót fyrir augun til að viðhalda augnheilsu fram eftir aldri. MYND/SVAVAR SIGURSTEINSSON
Fyrirbyggjandi aðgerðir geta haft
mikil og jákvæð áhrif á augnheilsuna
Lilja Kjalarsdóttir, framkvæmdastjóri líftæknifyrirtækisins KeyNatura, segir að fyrirtækið
hafi þróað AstaEye sem bætiefni til að viðhalda góðri augnheilsu, til þess að verja augun
gegn útfjólubláu og bláu ljósi, og til þess að koma í veg fyrir hrörnun augnbotna. 2
Jóhann Sigurðarson syngur nýjasta
jólalag lagasmiðjunnar Jóladraums.
Lagið heitir Söngur samviskunnar.
johannamaria@frettabladid.is
Söngur samviskunnar er glænýtt
jólalag úr lagasmiðju Jóladraums.
Jóladraumur leggur áherslu á ný
frumsamin jólalög. Hinn valin-
kunni lagahöfundur Guðmundur
Jónsson segist hafa fyrir áeggjan
vinar síns, Kristjáns Hreinssonar,
byrjað að semja lög við texta þess
síðarnefnda. Þannig varð laga-
smiðjan til. „Jóhann Sigurðarson,
stórleikari og söngvari, slóst í för
með okkur,“ segir Guðmundur.
Textarnir eru byggðir á A Christmas
Carol eftir Dickens.
Í fyrra komu út fyrstu tvö lögin
sem bæði eru söngdúettar. Lítil
kerti í myrkum heimi með þeim
Jóhanni og Sölku Sól Eyfeld og lagið
Hamingjan festir rætur syngur
Jóhann með Margréti Eir.
Enduruppgötvar gleði jólanna
Í Söng samviskunnar fær stjarna
Jóhanns að skína skært. Lagið er
hátíðlegur ópus sem rís og hnígur.
Textinn segir frá sjálfselskum
manni er snýr frá villu síns vegar
og enduruppgötvar gleði jólanna.
Jóhann ljær laginu snilldarlega vigt.
Birgir Þórisson spilar undir á
píanó og orgel, Friðrik Sturluson
er á bassa, Eysteinn Eysteinsson á
trommur og Guðmundur Jónsson
spilar á gítar og hljómborð og
syngur bakraddir.
Söngur samviskunnar er fyrsta
lag þriggja sem koma út fyrir jólin.
Væntanleg eru: Jólin þau koma senn
og Heilög jól sem Íris Lind Veru-
dóttir syngur af einstakri list. n
Með jólin á
samviskunni