Fréttablaðið - 17.11.2021, Side 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Lilja segir það mikilvægt að taka
inn fæðubót fyrir augun til að við-
halda augnheilsu fram eftir aldri.
Sérstaklega ef augnbotnahrörnun
er í ættinni en einnig ef fólk upp-
lifir augnþreytu eða augnþurrk.
„Augnbotnahrörnun er algeng-
asta orsök lögblindu hjá fólki sem
er 50 ára og eldra, en þessi tengsl
hafa mikið verið rannsökuð. Þá
sýndi AREDS2 rannsóknin sem
framkvæmd var í Bandaríkjunum
fram á að fólk sem fékk lítið af
náttúrulegum litarefnum sem
finnast m.a. í grænkáli og spínati
í gegnum mataræði sitt og fengu
fæðubót með þessum efnum, var
25% ólíklegra til þess að þróa með
sér augnbotnahrörnun en viðmið-
unarhópur á sama mataræði sem
fékk ekki fæðubót. Þetta sýnir að
næringar- og snefilefni sem finnast
í heilsusamlegu mataræði eru
gífurlega mikilvæg þegar kemur að
augnheilsu,“ segir Lilja.
Borðaðu regnbogann
Þau litarefni sem eru mikilvæg
fyrir sjónina getum við öll fengið
úr fæðunni svo lengi sem við
veljum nóg af litríku grænmeti og
ávöxtum að sögn Lilju.
„Við eigum að borða allan regn-
bogann svo að segja. En fæstir ná
að borða nóg til þess að fá nægilegt
magn af litarefnum til að viðhalda
sjóninni. Eftir því sem við eldumst
minnkar upptaka næringarefna og
því getur það skipt verulegu máli
að auka inntöku þessara efna með
fæðubótarefnum eins og AstaEye.“
Þekkt blanda sem
augnlæknar mæla með
„Formúlan í AstaEye er þann-
ig samsett að augnlæknar um
allan heim mæla með henni og
við höfum oft heyrt frá fólki sem
kemur í mánaðarlega áskrift að
AstaEye að augnlæknirinn þeirra
hafi mælt með inntöku AstaEye.
AstaEye inniheldur bæði lútein
og zeaxanthin sem eru mikilvæg
fyrir augnþroska og sjón fullorð-
inna. Einnig eru þar andoxunar-
efnin C- og E-vítamín sem draga úr
hrörnun á augnbotnum og skýjum
á auga. Þá er zink í AstaEye, sem er
mikilvægt fyrir melanínmyndun í
augum, sem og kopar, sem kemur í
veg fyrir blóðleysi sem getur tengst
inntöku á zinki,“ segir Lilja.
Sérstaða AstaEye umfram önnur
bætiefni, að sögn Lilju er að það
inniheldur einnig góðan skammt
af astaxanthini sem ver augun
gegn útfjólubláum geislum og bláa
ljósinu sem skín af tölvuskjám
og snjalltækjum allt í kringum
okkur. Langtíma skjánotkun getur
valdið augnþreytu og þurrki og ef
fólk finnur fyrir því er um að gera
að bæta inntöku af AstaEye inn í
daglega rútínu. Rannsóknum sem
sýna jákvæð áhrif astaxanthins
á augnheilsu fjölgar stöðugt, en
þær eru ekki einungis bundnar við
augnbotnahrörnun heldur benda
þær til þess að astaxanthin hafi
áhrif á fjölda annarra kvilla sem
hrjá augun.
„Það sem gerir AstaEye frá Key-
Natura einstakt er að við höfum
bætt við einu virku efni í viðbót. Í
einum dagskammti af AstaEye eru
4 mg af astaxanthin, sem er afar
virkt andoxunarefni sem við fáum
aðallega úr laxi. Astaxanthin er
þess eðlis að það getur verið afar
erfitt að fá nóg af því úr fæðunni,
en til þess að fá þetta magn af
efninu þyrfti að borða um eitt kíló
af laxi daglega. Þá má bæta við að
eldislax inniheldur ekki náttúru-
legt astaxanthin líkt og sá villti,“
segir Lilja
Fyrir fólk á öllum aldri
Lilja útskýrir að eitt af lykilatrið-
unum þegar verið var að hanna og
þróa formúluna að AstaEye, var að
búa til vöru sem virkar en jafn-
framt að varan væri aðgengileg og
á viðráðanlegu verði fyrir fólk.
„Þess vegna bjóðum við upp á
áskrift sem gefur 15% afslátt og
heimsendingu á umslagi með
áfyllingu inn um lúguna. Þann-
ig bjóðast áskrifendum bæði
betri kjör á AstaEye, en einnig
aukin þægindi, þar sem mán-
aðarskammturinn berst þeim að
kostnaðarlausu heim að dyrum.
Móttökurnar við AstaEye hafa
verið algerlega frábærar og við
höfum fengið mjög jákvæð við-
brögð frá augnlæknum. Þá taka
margir íþróttamenn og -konur inn
AstaEye, því fyrir þá eins og flesta
aðra skiptir augnheilsa gífurlegu
máli,“ segir hún.
„Fólk er alltaf að uppgötva meira
og meira hversu miklu máli það
skiptir að borða holla, fjölbreytta
og litríka fæðu til að viðhalda góðri
heilsu, en það getur verið erfitt
að viðhalda því á hverjum degi.
Þá koma fæðubótarefni eins og
AstaEye sterk inn. Þetta er alger
dúndurblanda fyrir augun, fyrir
fólk á hvaða aldri sem er í raun og
veru. Ef fólk er svo með ættarsögu
af augnbotnahrörnun og/eða háum
blóðþrýstingi, þá er kjörið að byrja
að taka strax inn fæðubótarefni
eins og AstaEye til að fyrirbyggja
áður en skemmdir koma fram.“ ■
Þegar Lillý byrjaði að taka AstaEye fann hún fljótlega mun á augunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Áskriftarkerfið: Í fyrstu sendingu kemur dós með AstaEye með pakkasend-
ingu en allar sendingar eftir það koma sem áfylling í umslagi inn um lúguna.
Augnbotnahrörnun er algengasta örsök lögblindu og
hefur slæm áhrif á lífsgæði fólks.
Lilly finnst AstaEye gera henni gott
Ingibjörg Árelíusar, eða Lillý eins og flestir kalla hana, þjáðist mikið
á tímabili vegna bjúgs í augum og var fyrir vikið óskaplega þreytt og
aum í augunum.
„Ég fór til læknis og þá kom í ljós að í viðbót við bjúg og blóð í
augum var ég einnig komin með hrörnun í augnbotnum. Ég byrjaði
að fá sprautur til þess að laga ástandið, fyrst mánaðarlega og svo
með þriggja mánaða millibili,“ segir hún.
Þegar Lillý byrjaði að taka AstaEye fann hún fljótlega mun á
augunum.
„Þegar ég fór til læknis til að fá enn eina sprautuna sagði læknir-
inn að ástandið hefði stórlagast á augunum og að augnbotnahrörn-
unin stæði í stað. Þá minntist ég á að ég væri byrjuð að taka AstaEye
bætiefni með fram meðferðinni og spurði hvort það gæti verið að
hjálpa. Læknirinn spurði mig á móti hvort ég tryði að það hjálpaði
og ég jánkaði því og að kroppurinn væri mér sammála. Þá sagði
hann að ég ætti endilega að halda áfram að taka bætiefnið,“ segir
hún.
„Ég finn að AstaEye gerir mér gott og augnbotnahrörnunin
hefur staðið í stað síðan að ég byrjaði að taka inn AstaEye fyrir um
tveimur árum. Ég er aldrei þreytt eða aum í augunum og ég þarf
aldrei orðið að vera með gleraugun sem ég var farin að þurfa til að
geta séð á sjónvarp eða annað.“
Jón Þór mælir hiklaust með AstaEye
Jón Þór Sigurðsson er einstaklega fjölhæfur
maður en hann er flugmaður, trommari og
skytta og byrjaði að stunda skotfimi árið 2009.
Síðan þá hefur hann unnið fjöldann allan af Ís-
landsmeistaratitlum og hefur keppt á erlendri
grundu með landsliðinu í skotfimi.
„Þetta er rosalega skemmtilegt sport og ég
vil geta stundað það í mörg ár í viðbót. Það sem
maður er helst hræddur við er að sjóninni hraki
en augun eru eitt mikilvægasta tækið mitt í
skotfimi, ég þarf að geta miðað og hitt á örlítinn
blett í 50-300 metra fjarlægð. Best er að við-
halda góðri sjón með því að nýta fyrirbyggjandi
aðferðir. Til að passa upp á augnheilsuna hef
ég tekið AstaEye frá KeyNatura á hverjum degi
í rúm 3 ár og sjónin er enn í fullkomnu lagi og
árangur minn í skotfimi er bara að batna, ég veit
ekki hvort að það sé endilega allt AstaEye að
þakka en ég trúi því allavega að það sé að hjálpa.
Ég mæli því hiklaust með AstaEye fyrir alla sem
þurfa að halda sjóninni í toppstandi.“
2 kynningarblað A L LT 17. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGUR