Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.11.2021, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 17.11.2021, Qupperneq 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Lilja segir það mikilvægt að taka inn fæðubót fyrir augun til að við- halda augnheilsu fram eftir aldri. Sérstaklega ef augnbotnahrörnun er í ættinni en einnig ef fólk upp- lifir augnþreytu eða augnþurrk. „Augnbotnahrörnun er algeng- asta orsök lögblindu hjá fólki sem er 50 ára og eldra, en þessi tengsl hafa mikið verið rannsökuð. Þá sýndi AREDS2 rannsóknin sem framkvæmd var í Bandaríkjunum fram á að fólk sem fékk lítið af náttúrulegum litarefnum sem finnast m.a. í grænkáli og spínati í gegnum mataræði sitt og fengu fæðubót með þessum efnum, var 25% ólíklegra til þess að þróa með sér augnbotnahrörnun en viðmið- unarhópur á sama mataræði sem fékk ekki fæðubót. Þetta sýnir að næringar- og snefilefni sem finnast í heilsusamlegu mataræði eru gífurlega mikilvæg þegar kemur að augnheilsu,“ segir Lilja. Borðaðu regnbogann Þau litarefni sem eru mikilvæg fyrir sjónina getum við öll fengið úr fæðunni svo lengi sem við veljum nóg af litríku grænmeti og ávöxtum að sögn Lilju. „Við eigum að borða allan regn- bogann svo að segja. En fæstir ná að borða nóg til þess að fá nægilegt magn af litarefnum til að viðhalda sjóninni. Eftir því sem við eldumst minnkar upptaka næringarefna og því getur það skipt verulegu máli að auka inntöku þessara efna með fæðubótarefnum eins og AstaEye.“ Þekkt blanda sem augnlæknar mæla með „Formúlan í AstaEye er þann- ig samsett að augnlæknar um allan heim mæla með henni og við höfum oft heyrt frá fólki sem kemur í mánaðarlega áskrift að AstaEye að augnlæknirinn þeirra hafi mælt með inntöku AstaEye. AstaEye inniheldur bæði lútein og zeaxanthin sem eru mikilvæg fyrir augnþroska og sjón fullorð- inna. Einnig eru þar andoxunar- efnin C- og E-vítamín sem draga úr hrörnun á augnbotnum og skýjum á auga. Þá er zink í AstaEye, sem er mikilvægt fyrir melanínmyndun í augum, sem og kopar, sem kemur í veg fyrir blóðleysi sem getur tengst inntöku á zinki,“ segir Lilja. Sérstaða AstaEye umfram önnur bætiefni, að sögn Lilju er að það inniheldur einnig góðan skammt af astaxanthini sem ver augun gegn útfjólubláum geislum og bláa ljósinu sem skín af tölvuskjám og snjalltækjum allt í kringum okkur. Langtíma skjánotkun getur valdið augnþreytu og þurrki og ef fólk finnur fyrir því er um að gera að bæta inntöku af AstaEye inn í daglega rútínu. Rannsóknum sem sýna jákvæð áhrif astaxanthins á augnheilsu fjölgar stöðugt, en þær eru ekki einungis bundnar við augnbotnahrörnun heldur benda þær til þess að astaxanthin hafi áhrif á fjölda annarra kvilla sem hrjá augun. „Það sem gerir AstaEye frá Key- Natura einstakt er að við höfum bætt við einu virku efni í viðbót. Í einum dagskammti af AstaEye eru 4 mg af astaxanthin, sem er afar virkt andoxunarefni sem við fáum aðallega úr laxi. Astaxanthin er þess eðlis að það getur verið afar erfitt að fá nóg af því úr fæðunni, en til þess að fá þetta magn af efninu þyrfti að borða um eitt kíló af laxi daglega. Þá má bæta við að eldislax inniheldur ekki náttúru- legt astaxanthin líkt og sá villti,“ segir Lilja Fyrir fólk á öllum aldri Lilja útskýrir að eitt af lykilatrið- unum þegar verið var að hanna og þróa formúluna að AstaEye, var að búa til vöru sem virkar en jafn- framt að varan væri aðgengileg og á viðráðanlegu verði fyrir fólk. „Þess vegna bjóðum við upp á áskrift sem gefur 15% afslátt og heimsendingu á umslagi með áfyllingu inn um lúguna. Þann- ig bjóðast áskrifendum bæði betri kjör á AstaEye, en einnig aukin þægindi, þar sem mán- aðarskammturinn berst þeim að kostnaðarlausu heim að dyrum. Móttökurnar við AstaEye hafa verið algerlega frábærar og við höfum fengið mjög jákvæð við- brögð frá augnlæknum. Þá taka margir íþróttamenn og -konur inn AstaEye, því fyrir þá eins og flesta aðra skiptir augnheilsa gífurlegu máli,“ segir hún. „Fólk er alltaf að uppgötva meira og meira hversu miklu máli það skiptir að borða holla, fjölbreytta og litríka fæðu til að viðhalda góðri heilsu, en það getur verið erfitt að viðhalda því á hverjum degi. Þá koma fæðubótarefni eins og AstaEye sterk inn. Þetta er alger dúndurblanda fyrir augun, fyrir fólk á hvaða aldri sem er í raun og veru. Ef fólk er svo með ættarsögu af augnbotnahrörnun og/eða háum blóðþrýstingi, þá er kjörið að byrja að taka strax inn fæðubótarefni eins og AstaEye til að fyrirbyggja áður en skemmdir koma fram.“ ■ Þegar Lillý byrjaði að taka AstaEye fann hún fljótlega mun á augunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Áskriftarkerfið: Í fyrstu sendingu kemur dós með AstaEye með pakkasend- ingu en allar sendingar eftir það koma sem áfylling í umslagi inn um lúguna. Augnbotnahrörnun er algengasta örsök lögblindu og hefur slæm áhrif á lífsgæði fólks. Lilly finnst AstaEye gera henni gott Ingibjörg Árelíusar, eða Lillý eins og flestir kalla hana, þjáðist mikið á tímabili vegna bjúgs í augum og var fyrir vikið óskaplega þreytt og aum í augunum. „Ég fór til læknis og þá kom í ljós að í viðbót við bjúg og blóð í augum var ég einnig komin með hrörnun í augnbotnum. Ég byrjaði að fá sprautur til þess að laga ástandið, fyrst mánaðarlega og svo með þriggja mánaða millibili,“ segir hún. Þegar Lillý byrjaði að taka AstaEye fann hún fljótlega mun á augunum. „Þegar ég fór til læknis til að fá enn eina sprautuna sagði læknir- inn að ástandið hefði stórlagast á augunum og að augnbotnahrörn- unin stæði í stað. Þá minntist ég á að ég væri byrjuð að taka AstaEye bætiefni með fram meðferðinni og spurði hvort það gæti verið að hjálpa. Læknirinn spurði mig á móti hvort ég tryði að það hjálpaði og ég jánkaði því og að kroppurinn væri mér sammála. Þá sagði hann að ég ætti endilega að halda áfram að taka bætiefnið,“ segir hún. „Ég finn að AstaEye gerir mér gott og augnbotnahrörnunin hefur staðið í stað síðan að ég byrjaði að taka inn AstaEye fyrir um tveimur árum. Ég er aldrei þreytt eða aum í augunum og ég þarf aldrei orðið að vera með gleraugun sem ég var farin að þurfa til að geta séð á sjónvarp eða annað.“ Jón Þór mælir hiklaust með AstaEye Jón Þór Sigurðsson er einstaklega fjölhæfur maður en hann er flugmaður, trommari og skytta og byrjaði að stunda skotfimi árið 2009. Síðan þá hefur hann unnið fjöldann allan af Ís- landsmeistaratitlum og hefur keppt á erlendri grundu með landsliðinu í skotfimi. „Þetta er rosalega skemmtilegt sport og ég vil geta stundað það í mörg ár í viðbót. Það sem maður er helst hræddur við er að sjóninni hraki en augun eru eitt mikilvægasta tækið mitt í skotfimi, ég þarf að geta miðað og hitt á örlítinn blett í 50-300 metra fjarlægð. Best er að við- halda góðri sjón með því að nýta fyrirbyggjandi aðferðir. Til að passa upp á augnheilsuna hef ég tekið AstaEye frá KeyNatura á hverjum degi í rúm 3 ár og sjónin er enn í fullkomnu lagi og árangur minn í skotfimi er bara að batna, ég veit ekki hvort að það sé endilega allt AstaEye að þakka en ég trúi því allavega að það sé að hjálpa. Ég mæli því hiklaust með AstaEye fyrir alla sem þurfa að halda sjóninni í toppstandi.“ 2 kynningarblað A L LT 17. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.