Fréttablaðið - 17.11.2021, Side 17

Fréttablaðið - 17.11.2021, Side 17
Plástrarnir eru náttúrulegir og án aukaverkana. Þeir henta því öllum, líka barns- hafandi konum og þeim sem eru með barn á brjósti. FIT verkjaplástrarnir henta öllum aldurshópum og bjóða upp á verkjastillingu sem er laus við allar aukaverkanir. Plástrarnir virka í allt að fimm daga, eru vatnsheldir og fást í flestum apótekum. FIT verkjaplástrarnir eru nýsköp- un í verkjastillingu, segir Anton Gylfi Pálsson, sölustjóri hjá ÍSAM, sem flytur inn FIT plástrana. „Varan hefur sannað sig á þessum rúmlega þremur árum sem hún hefur verið á markaði hér. Hún hentar öllum aldurshópum og er fyrir fólk sem hefur verið að kljást við verki, þannig að það getur ekki eða á erfitt með að stunda þá hreyfingu sem það vill. Svo hefur varan verið að koma mjög vel út við að fá fyrr endurheimt í vöðvum eftir erfiðar æfingar, keppnir og þess háttar,“ segir Anton. „Ég veit um golfara sem voru að gefast upp á að fara í golf vegna eymsla í baki, en náðu aftur kröftum þegar þeir fóru að nota FIT plásturinn og fara nú ekki í golf nema setja á sig plástur. Ég veit líka um göngu- og hlaupafólk sem var farið að draga úr þjálfun vegna eymsla en er nú farið að nota plástrana áður en lagt er af stað. Sumir eru slæmir í ökkla og nota þá litlu universal-plástrana, aðrir finna til í hnjám og nota þá hnéplástra sem límdir eru undir hnéskelina,“ segir Anton. „Ég þekki líka dæmi af því að fólk sem glímir við venjulega vöðva- bólgu í herðum og hálsi líði betur með plásturinn. Plástrarnir örva háræðakerfið þannig að það verður meira blóð- flæði til vöðvanna og þá um leið til þeirra staða þar sem eymslin eru,“ segir Anton, sem auk þess að vera sölustjóri er einnig alþjóð- legur handboltadómari og hefur í því starfi sínu mikil samskipti við afreksfólk í íþróttum. „Ég þekki mikið af keppnisfólki sem er undir miklu álagi og nær ekki að hvíla nógu lengi og keyrir sig því áfram á verkjalyfjum, með tilheyrandi aukaverkunum í maga og fleira. En FIT-plástrarnir eru góð viðbót í verkjastillingarflóruna því þeir innihalda ekki nein lyf og hafa því engar aukaverkanir. Þeir eru líka frábærir til að að viðhalda góðu blóðflæði samhliða sjúkraþjálfara- og nuddmeðferðum, og svo flýta þeir líka fyrir endurheimt vöðva Það er einfalt að setja FIT plástr- ana á sig og þeir duga í allt að fimm daga. Það er líka mikill kostur að það er hægt að stunda æfingar með þá og fara með þá í sturtu og sund,“ segir Anton. Nýsköpun í verkjastillingu Verkir af hinum ýmsu gerðum hafa fylgt mannskepnunni alla tíð. Verkir hafa verið meðhöndlaðir á ýmsa vegu, með nuddi, nála- stungum og lyfjum, svo eitthvað sé nefnt. Hin síðari ár hefur notkun verkjalyfja aukist til muna, oft og Verkjastilling án aukaverkana FIT plástrarnir geta meðal annars komið að gagni við að lina þjáningar vegna eymsla í baki. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Anton segir að plástrarnir henti fyrir alls kyns ólíka verki á mismunandi stöðum í líkamanum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Anton Gylfi Pálsson, sölu- stjóri hjá ÍSAM, segir að FIT plástrarnir hafi sannað sig og hann viti um golfara, göngu- og hlaupafólk sem æfir ekki án þeirra. Hann segir plástrana vera góða við- bót í verkjastill- ingarflóruna því þeir innihaldi ekki nein lyf, hafi engar auka- verkanir og flýti fyrir endur- heimt vöðva. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR FIT-verkjaplástr- ar eru fáanlegir í flestum apó- tekum landsins. runnir frá sjúkraþjálfurum sem leituðu eftir lyfjalausri verkjastill- ingu. Plástrarnir byggja á inn- rauðum geislum líkamans, sem eru nýttir aftur inn í líkamann og örva þannig háræðakerfið svo að blóðið kemst betur til aumu staðanna og úrgangsefni hreinsast hraðar í burtu. Þetta virkar því nokkuð svipað og nudd og hjálpar líkam- anum að hjálpa sér sjálfum. Plástrarnir eru unnir úr viður- kenndu ofnæmisfríu plastefni og innihalda lífræn steinefni (til dæmis títan) sem endurvarpa inn- rauðum geislum líkamans aftur inn í líkamann. Innrauðir geislar hafa marg- vísleg áhrif á líkama okkar n Auka virkni háræðakerfisins sem eykur blóðflæði svo að blóðið hreinsast betur af fitu og úrgangsefnum. n Bæta súrefnisþéttni í líkam- anum. n Bæta vöðvavirkni. n Bæta svefn og viðhalda hita. n Verkjastillandi – minni þörf á verkjalyfjum. n Auka endurheimt vöðva – gott að setja á aum svæði eftir æfingar. n Plástrarnir eru alveg náttúru- legir og hafa engar aukaverk- anir, þar sem þeir setja ekkert í líkamann sem er ekki þar nú þegar. Þeir henta því öllum, líka barnshafandi konum og þeim sem eru með barn á brjósti. Hvernig virka FIT-plástrarnir? n Setjið plástrana á svæðin, eins og leiðbeiningar sýna, og bíðið í tvær mínútur eftir því að hiti frá líkamanum losi vel um límefnið svo að plásturinn nái öruggri festu. Nú breytist plásturinn í það sem verður best lýst sem spegli sem endurkastar orku frá líkamanum allt að 8-9 cm inn undir húðina; þessi orka hefur verkjastillandi áhrif. Hver plástur dugar í allt að fimm daga og má fara í sturtu. n Haldið meðferð áfram þar til verkur hættir. n FIT-verkjaplástrar eru fáan- legir í flestum apótekum landsins. Nánar má lesa um þá á síðunni isam.is/fit-therapy. tíðum með slæmum áhrifum á önnur líffæri, til dæmis maga. Þetta er ný tækni og margar klínískar rannsóknir hafa verið gerðar á notkun plástursins. FIT plástrar koma frá Ítalíu og eru upp- ALLT kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 17. nóvember 2021

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.