Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.11.2021, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 17.11.2021, Qupperneq 18
Mataræði þungaðra kvenna virðist hafa mótandi áhrif á geðheilsu barna þeirra. Það er sterk fylgni milli holls mataræðis og góðrar geð- heilsu og vitað að mataræði hefur áhrif á ýmsa þætti sem hafa áhrif á bæði geðheilsu og á fósturþroska. oddurfreyr@frettabladid.is Nýjar rannsóknir gefa til kynna að mataræði þungaðra kvenna geti haft mótandi áhrif á geðheilsu barna þeirra og að Miðjarðarhafs- mataræði og mataræði sem hefur lítið blóðsykursálag hafi jákvæð áhrif á geðheilsu barnanna. Þetta kemur fram í grein eftir Chris Palmer, geðlækni við Harvard- háskóla, sem birtist á vefsíðunni Psychology Today. Við vitum öll að mataræðið hefur áhrif á heilsu á ótal vegu og þar sem andlega og líkam- lega hliðin er í stöðugu samspili er engin furða að það séu sífellt að koma fram ný merki um að mataræði hafi áhrif á geðheilsuna líka. En það skiptir ekki bara máli hvað við borðum, heldur virðist líka skipta máli hvað mæður okkar borða á meðgöngu og mögulega vara þau áhrif alla ævi. Það sem mæður borða á með- göngu hefur áhrif á þroska heilans og getur breytt umframerfðum, sem stjórna því hvaða gen eru virk. Genin hafa svo áhrif á líkamlega heilsu allt lífið og geta einnig haft áhrif á andlega heilsu. Fylgni milli góðs mataræðis og góðrar geðheilsu Vísindamenn sem gerðu rannsókn á umframerfðum nýfæddra barna skoðuðu 325 pör mæðra og ung- barna til að reyna að komast að því hvort mataræði í kringum getnað hefði áhrif á skapgerð og andlega heilsu barnanna á milli eins og tveggja ára aldurs. Þeir skoðuðu sérstaklega áhrif Miðjarðarhafs- mataræðis og blóðsykursálags. Í annarri rannsókninni komust þeir að því að það að fylgja Mið- jarðarhafsmataræði, þó ekki væri nema að hluta, minnkaði líkur á óvenjulegri hegðun, skorti á aðlögunarhæfni og einhverfu hjá börnum á aldrinum eins til tveggja ára. Konur sem fylgdu mataræðinu sem best áttu börn sem voru síður líkleg til að vera þunglynd eða kvíðin og líklegri til að hafa góða félagsfærni en börn kvenna sem fylgdu því ekki jafn vel. Í annarri rannsókn var einblínt á blóðsykursálagið í mataræði kvennanna í kringum getnað. Blóðsykursálag vísar til þess hve hratt matur hækkar blóðsykur og hve mikið af kolvetnum er í honum. Konunum var skipt í þrjá hópa eftir blóðsykursálaginu og þær sem voru með mest blóðsykursálag voru mun líklegri til að að eiga börn sem sýndu merki geðrænna vandamála á aldrinum eins til tveggja ára. Almennt voru börnin líka fjórum sinnum líklegri til að vera kvíðin. Það var einnig kynbundinn munur. Strákarnir voru fjórum til sjö sinnum líklegri til að vera kvíðnir, eiga erfitt með svefn, vera hvatvísir eða í vandræðum með samkennd og næstum tíu sinnum líklegri til að sýna skort á aðlög- unarhæfni. Stelpurnar voru svo fimmtán sinnum líklegri til að sýna kvíðatengda hegðun. Þessi mikli munur gefur í skyn að mataræði mæðra hafi meiri áhrif á andlega heilsu barna en almennt hefur verið talið. Hænan eða eggið Augljósasta gagnrýnin á þetta er auðvitað að benda á að það sé erfitt að segja hvað er hænan og hvað er eggið. Er það ef til vill aukinn kvíði og þunglyndi sem leiðir til breytinga á mataræði, en ekki öfugt? Það gæti verið að konur sem voru ekki með hollasta mataræðið hafi verið þunglyndar eða kvíðnar fyrir og þess vegna hafi þær borðað meira af ruslfæði. Það væri ekki skrítið að börnin þeirra séu líklegri til að vera þunglynd eða kvíðin en börn kvenna sem glíma ekki við þessi vandamál. Það eitt gæti skýrt þessa fylgni og þetta var ekki skoðað í þessum rannsóknum. En það eru fleiri rannsóknir á þessu sviði sem gefa tilefni til að ætla að þetta sé ekki alveg svo einfalt. Við vitum að óheilbrigt mataræði hefur áhrif á bólgur, hormóna, svefngæði, umfram- erfðir og marga aðra þætti sem við vitum líka að hafa bæði áhrif á geðheilsu og á fósturþroska. Heilnæmt mataræði borgar sig Það eru tiltölulega ný fræði að horfa til mataræðis í tengslum við geðheilsu. Það hafa verið gerðar rannsóknir sem gefa til kynna að gott mataræði geti bætt andlega heilsu þeirra sem þjást af þung- lyndi, en það er þörf á frekari rann- sóknum til að greina þetta betur. Það er því ekki hægt að segja neitt um hvaða áhrif það hefur ef þungaðar mæður breyta matar- æðinu til hins betra. En það virðist rökrétt að hvetja þungaðar konur, rétt eins og alla aðra, til að borða náttúrulega og heilnæma fæðu og forðast mikið unninn mat. n Mataræði á meðgöngu mótar geðheilsu barna Nýjar rannsóknir gefa til kynna að mataræði mæðra á meðgöngu hafi mikil áhrif á geðheilsu barna þeirra og þessi áhrif gætu varað alla ævi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Það skiptir ekki bara máli hvað við borðum, heldur virðist líka skipta máli hvað mæður okkar borða á meðgöngu. Árný Inga Guðjónsdóttir, 42 ára sjúkraliði á Landspítalan- um, hafði lengi fundið fyrir orkuleysi vegna járnskorts. Hún byrjaði að taka inn Andoxun með íslenskum krækiberjum og rauðrófu- dufti frá ICEHERBS fyrir um þremur mánuðum síðan og fann mun á sér eftir einungis fimm vikur. Árný er eins og margar konur og hefur glímt lengi við járnskort. „Járnskorturinn hefur verið við- loðandi hjá mér í nokkur ár og það hefur verið erfitt fyrir mig að halda járninu í réttu magni í líkamanum. Ég hef prófað ýmislegt, tekið járn- pillur sem fóru illa í magann á mér, og svo fékk ég ofnæmi fyrir járn- sprautunum. Fyrr á árinu byrjaði ég að lesa mér til um lausnir gegn járnskorti og datt niður á Andoxun frá ICEHERBS,“ segir Árný. Aukið úthald en minnkandi sólarljós Járnleysi getur valdið orkuleysi, þreytu og svima hjá fólki og segist Árný oft hafa fundið fyrir þessum einkennum. „Ástæðan fyrir því að ég vildi prófa Andoxun var sú að bætiefnið er járnríkt. Ég var líka að leitast eftir aukinni orku og úthaldi almennt. Ég fann mun á mér eftir að hafa tekið Andoxun frá ICEHERBS reglulega í nokkrar vikur. Það var strax munur í orkunni og úthaldinu, sem er skrítið því það ætti að vera öfugt, enda dimmir sífellt meira með hverjum degi.“ Þetta helst allt í hendur „Í dag tek ég tvö hylki af Andoxun á dag, kvölds og morgna, og finn mikinn mun á mér. Járnið var mælt í haust og mældist bara í fínu magni. Mér finnst ég mun orku- meiri og bý yfir meira líkamlegu úthaldi en áður. Mér finnst auð- veldara að vakna á morgnana og ég er fljótari í gang. Þá dríf ég mig Hætt að þjást af járnskorti Árný Inga hefur þjáðst af járn- skorti um árabil. Eftir að hún byrjaði að taka inn Andoxun frá ICEHERBS á hverjum degi er járnmagnið komið í lag og orkan aukin. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR frekar í líkamsrækt eða út að ganga með hundinn því úthaldið er meira. Ég er engin rosaleg íþrótta- manneskja, en ég fer tvisvar í viku í líkamsrækt og geng með hundinn daglega. Þá er ég ekki frá því að ég sé skýrari í hugsun. Þetta helst allt í hendur. Ég er heldur ekki frá því að þetta hafi haft góð áhrif á meltinguna, sem er stórt skref upp á við frá meltingartruflunum af völdum járnpillanna. Svo má líka nefna að ég hef ekki orðið lasin síðan ég byrjaði að taka Andoxun. Það hafa verið veikindi á heimilinu, en ég hef ekki gripið neina pest í haust. Ég veit ekki hvort þetta séu bein áhrif frá Andoxun. En það er engin spurning, ég ætla að halda áfram að taka þetta.“ Andoxun – krækiber & rauðrófur Andoxun er sannkölluð ofurfæðu- blanda. Hún inniheldur íslensk krækiber og rauðrófuduft. Blandan er einstaklega járnrík og hefur hátt hlutfall af andoxunarefnum. Hún er frábær fyrir meltinguna og bætir súrefnisupptöku. Krækiber eru þekkt fyrir vatns- losandi áhrif og eru rík af E- og C- vítamínum, en þau hafa mjög hátt innihald andoxunarefna, eins og flavonol og anthocyanin. Neysla krækiberja er talin hafa jákvæð áhrif á taugakerfið, heilastarfsemi og sjónina. Rauðrófur eru þekktar fyrir að bæta súrefnisupptöku og auka blóðflæði og hafa því slegið í gegn meðal íþróttafólks þar sem með auknu blóðflæði eykst snerpa, orka og úthald. Rauðrófurnar eru einstaklega næringarríkar. Þær innihalda C-vítamín, kalíum og önnur nauðsynleg steinefni sem styrkja ónæmiskerfið. Þær styðja einnig við afeitrunarferli lifrar og eru einstaklega járnríkar. Þessi blanda frá ICEHERBS hefur reynst mörgum vel sem vilja auka vel- líðan og styrk. Hrein náttúruafurð Markmið ICEHERBS er að nýta náttúruauðlindir sem tengjast íslenskri hefð og sögu og vinna í hreina neytendavæna vöru fyrir viðskiptavini. „Við hjá ICEHERBS leggjum áherslu á að framleiða hrein og náttúruleg bætiefni sem byggja á sjálfbærri nýtingu nátt- úruauðlinda. Við viljum að vör- urnar okkar nýtist viðskiptavinum okkar, að virkni skili sér í réttum blöndum og að eiginleikar efnanna viðhaldi sér að fullu. Þá notum við enn fremur engin óþörf fylliefni.“ n ICEHERBS fæst í öllum betri mat- vöruverslunum, apótekum og heilsuvöruverslunum og í nýrri vefverslun á iceherbs.is. 4 kynningarblað A L LT 17. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.