Fréttablaðið - 17.11.2021, Side 22
Eldhúsið er hjarta heimilis-
ins, um jól sem endranær.
Flestir vilja taka á móti jól-
unum með skínandi hreint
eldhús, þegar mikið er um
matseld, bakstur, gestagang
og veisluhöld.
thordisg@frettabladid.is
Mestu skiptir að ganga skipulega til
verks þegar þrífa á eldhústæki. Það
eykur endingartíma tækjanna að
þrífa þau reglulega, auk þess sem
mun skemmtilegra er að vinna í
hreinu og snyrtilegu eldhúsi.
Byrjum á ísskáp og frysti. Við
hendum fyrst öllum gömlum
afgöngum, skemmdu grænmeti og
því sem er komið fram yfir síðasta
neysludag. Í frystinum hendum við
því sem lent hefur neðst og er lítt
girnilegt í matseld.
Notum ekki sterk hreinsiefni
á þessi heimilistæki. Matarsódi í
volgu vatni er ágætis kostur til að
þvo kæli- og frystiskápa að innan.
Þegar frystiskápar og frysti-
kistur eru afþídd er gott að setja
gamalt handklæði í botninn til að
draga í sig rakann. Að setja skál eða
fat með heitu vatni neðst í frysti-
kistuna eða skápinn flýtir fyrir
afþíðingu. Einnig má nota hár-
blásara til að flýta fyrir, en aðeins
má blása á málmfleti.
Sé notað sápuvatn til að þrífa
kæliskáp verður að gæta þess að
skola vel og þurrka á eftir. Ellegar
getur sápan skilið eftir sig lykt sem
sest í matvæli.
Efnið Rodalon sótthreinsar og
eyðir vondri lykt, sem og ediks-
eða sítrónublandað vatn í skál sem
látin er standa í kæliskáp.
Athugið að innst í ísskápum
er lítið gat fyrir vökva sem hefur
safnast saman. Mörgum yfirsést
að þrífa þetta og lykt byrjar að
myndast. Þetta gat vill fyllast af
óhreinindum og er best að nota
eyrnapinna eða pípuhreinsi til að
ná að bursta upp úr því. Ein leið
er að hella nokkrum dropum af
Rodaloni í gegnum gatið til að ná
öllum óhreinindum.
Jólasteikin í tandurhreinan ofn
Það tilheyrir að þrífa bakaraofninn
fyrir jól. Til eru ýmiss konar efni
sem ætluð eru til þrifa á ofnum en
einnig duga vel umhverfisvænni
kostir til verksins, eins og kristals-
sápa og góður uppþvottalögur.
Til að hreinsa venjulegan
bakaraofn með kristalssápu skal
byrja á því að bera sápuna innan
í kaldan ofninn. Stilla hann því
næst á 90°C og láta hann hitna í að
minnsta kosti hálftíma eða þar til
sjóða fer í sápunni. Þá er slökkt og
ofninn láta kólna að mestu. Þvoið
nú ofninn vandlega með bómullar-
klút og heitu vatni, og þurrkið
síðan vel. Sápuna má líka bera á
að kvöldi og láta standa yfir nótt.
Þrífa þá með vatni og þurrka. Verði
einhver óhreinindi eftir í ofninum
má nota glersköfu á þau.
Ef sjálfhreinsandi ofn er á heimil-
inu má ekki nota nein efni á hliðar
hans og loft en botninn má þrífa á
sama hátt og venjulega ofna.
Á bökunarplötur og gler í ofn-
hurðum er best að nota uppþvotta-
lög eða kristalssápu. Eftirfarandi
aðferð leysir vel upp óhreinindi:
Notið rakan klút, vættan með
uppþvottalegi, leggið hann á glerið
og látið standa yfir nótt. Þrífið svo
með heitu vatni og þurrkið.
Gljáandi eldavél fyrir sósuna
Mörg góð efni fást til að þrífa bæði
keramik- og spanhellur eldavéla,
en farið eftir leiðbeiningum. Oft
nægir líka að útbúa góða blöndu
af heitu vatni og uppþvottalegi,
bleyta í hellunni og þvo vel. Ef um
hörð óhreinindi er að ræða á nota
glersköfu eftir að bleytt hefur verið
upp í óhreinindunum. wVel heitt
vatn og lyftiduft eða matarsódi
virka vel til að þrífa gas- og venju-
legar eldavélarhellur. Einnig henta
svampar mjög vel þar sem önnur
hliðin er gróf og stíf.
Til að fá skínandi hreinan eld-
húsvask er best að nota lyftiduft
og uppþvottabursta og nudda
vaskinn vel að innan. Láta standa í
nokkrar mínútur, nudda svo vel og
skola. Ef vaskurinn er dökkur má
nudda hann með skorinni sítrónu
og skola strax vel.
Speglað sig í flísum
Fita og önnur óhreinindi vilja
setjast á flísar í eldhúsi, og á baði.
Efni sem hægt er að nota til að fá
flísarnar hreinar og fallegar eru til
dæmis matarsódi, lyftiduft, borð-
edik og sítrónusafi.
Hér eru dæmi um nokkrar
aðferðir til að þrífa flísar:
n Stráið matarsóda á svamp og
nuddið yfir óhreinindin. Þvoið
af með vatni.
n Hrærið saman ediki og lyfti-
dufti, eða matarsóda og
sítrónusafa, í þykka blöndu.
Nuddið henni á flísarnar og látið
bíða í þrjár til fjórar klukku-
stundir. Þvoið síðan af með
volgu vatni og góðum klút.
n Sítrónusafi einn og sér getur
verið ágætur. Þá er sítróna
skorin í tvennt og sárinu nuddað
yfir óhreinindin, látið liggja
smástund og þvegið af. n
HEIMILD: LEIÐBEININGASTÖÐ HEIMIL-
ANNA, LEIDBEININGASTOD.IS
Gleðileg jól í glampandi hreinu eldhúsi
Hreinleiki
jólanna heima
við er heillandi,
rétt eins og
nýfallin mjöll
sem glansar og
stirnir á. Þegar
hver hlutur er
pússaður og
glitrandi, þá
mega jólin svo
sannarlega
koma.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
ALLT HREINT
FYRIR JÓLIN
SÖLUMENN OKKAR TAKA VEL Á MÓTI ÞÉR.
Pipar\TBW
A
Góð hreinsiefni, áhöld og tækjakostur auðveldar öll þrif, jafnt heima
sem í fyrirtækjum og iðnaði. Í Rekstrarlandi er mikið úrval af framúr-
skarandi hreinsiefnum í smáum og stórum einingum.
Nilfisk ryksugur og gólfþvottavélar hafa löngu
sannað gildi sitt hérlendis fyrir gæði og endingu.
Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | 515 1100 | Austurvegi 69 | 800 Selfossi | 480 1306 | rekstrarland.is
4 kynningarblað 17. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGURJÓLAHREINGERNING