Fréttablaðið - 24.11.2021, Page 2
Skammdegissnjór
Snjórinn féll í höfuðborginni í gær og lýsir upp skammdegið með ljóma sínum svo að birtir til í prófatíð sem er á næsta leiti hjá nemendum við Háskóla Íslands.
Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands er spáð ágætis veðri í dag og björtu fram eftir degi. Þegar nálgast miðnætti gætu nokkur snjókorn fallið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Í fyrsta sinn var brauðgjöf við
Reykjavíkurtjörn vöktuð í
sumar af starfsmanni Reykja-
víkurborgar. Ekki gott fyrir
endurnar að fá brauðið enda
þenst það út svo að þær halda
að þær séu saddari en þær eru.
Þó virðast endur síður sækja
í hollari fæðu þegar hún er í
boði.
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG „Þegar holl fæða er borin
á borð andanna þá velja þær samt
frekar brauðið, sem er ekkert gott
fyrir þær. Fuglarnir eru ekki svo
ólíkir okkur mannfólkinu að þessu
leyti,“ segir Aron Alexander Þor-
varðarson líffræðingur sem taldi
meðal annars brauðgjafir á Tjörn-
inni í sumar en slíkar gjafir voru
vaktaðar sérstaklega í fyrsta sinn.
Aron segir að því miður séu
brauðgjafir borgarbúa ekki að
hverfa. „Það er um ein og hálf brauð-
gjöf á hverjum klukkutíma á góð-
viðrisdögum yfir sumarið. Fransk-
brauð er ekki gott fyrir fuglana en
það hefur verið löng hefð meðal
borgarbúa fyrir að gefa þeim brauð.
Þetta er frekar næringarsnauð
fæða og brauðið þenst út í maganum
á fuglunum sem gerir það að verkum
að endurnar upplifa sig saddari en
þær eru,“ segir hann.
Þótt hóflegar brauðgjafir séu ekki
endilega skaðlegar fuglunum, þá
fái Tjarnarfuglar of mikið af hvítu
brauði. Mælir hann frekar með
fersku grænmeti, rúsínum, fræjum
og jafnvel ávöxtum.
„Hefðin er rík og það er erfitt að
venja fólk og endur af brauðinu,“
segir Aron en minnisblað um vökt-
un á fuglalífi í Reykjavík í sumar
sem Aron vann að var lagt fyrir á
fundi umhverfis- og heilbrigðisráðs
Reykjavíkur í síðustu viku. Hann
segir að almennt sé fjölbreytt fugla-
líf í borginni.
Við Tjörnina séu andfuglar áber-
andi, svo sem stokkendur, álftir, og
gargendur, en nokkrum skrefum frá,
í Vatnsmýrinni, eru vaðfuglar eins og
heiðlóa og spói. „Í Skerjafirði eru svo
skemmtilegar fjörur með fjölbreyttu
fuglalífi, þar á meðal eru tildrur og
lóuþrælar, hettumáfar og kríur.“ n
Erfitt að venja bæði fólk og
endur af franskbrauðinu
Úr minnisblaðinu um brauðgjöf við Tjörnina
9. júlí Krakkar gefa öndum
brauð fyrir framan Tjarnarbíó.
Fullorðinn maður gefur máfum
brauð við Kvennaskólann.
13. júlí Tvö börn með tveimur
konum að gefa brauð við Iðnó.
Á sama tíma er fullorðinn
maður fyrir framan Kvenna-
skólann að gefa brauð. Eldri
erlendur maður að gefa brauð
og morgunkorn við Iðnó strax
eftir börnunum. Fjölskylda
gefur brauð við Iðnó.
23. júlí Eldri maður með barn að
gefa máfum og öndum brauð
fyrir framan Tjarnarbíó.
27. júlí Enginn að gefa.
6. ágúst Fullorðinn maður að
gefa dúfum og gæsum brauð
fyrir framan Iðnó. Krakkar að
gefa öllum fuglum brauð (laða
m.a. að sér mjög marga æsta
sílamáfa) við Tjarnarborg.
1. september Faðir og tvö börn
gefa smá á ráðhúsbrúnni. Móðir
með eitt barn gefur fyrir framan
Iðnó (báðar brauðgjafir voru
mjög stuttar og fóru mestallar í
máfa. Í seinna skiptið voru þeir
mættir í miklum fjölda áður en
brauðgjöf byrjaði). Erlent par
með tvö börn. Gáfu fyrst og
fremst máfum og dúfum fyrir
framan Kvennaskólann.
Merkilegt nokk er ekki gott fyrir endurnar að fá brauðið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Aron Alexander
Þorvarðarson,
líffræðingur
ALLAR PIZZUR AF MATSEÐLI Á 1.690 KR. EF ÞÚ SÆKIR, 22.–29. NÓV. 2021
arib@frettabladid.is
GJAFALEIKUR Hundrað eintök
Fréttablaðsins í dag eru einstök því
þar gefur að líta auglýsingu með
Emil í Kattholti í stað auglýsingar
um gjafabréf Borgarleikhússins.
Ef þú lítur á síðuna hér til hægri
og sérð mynd af Emil í Kattholti en
ekki mynd af gjafabréfi hefur þú
unnið þér inn gjafabréf fyrir tvo á
sýninguna. Það eina sem þú þarft
að gera er að koma með eintakið
með myndinni af Emil í miðasölu
Borgarleikhússins. n
Er Emil í Kattholti
í þínu Fréttablaði?
2 Fréttir 24. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Þér er boðið
í Kattholt!
As
tri
d L
in
dg
re
n
Heppnin er með þér að hafa fengið þetta eintak af Fréttablaðinu í dag.Hundrað eintök af blaði dagsins eru nefnilega öðruvísi en öll hin. Blöðin eru einstök að því leyti að þau innihalda
þessa síðu sem jafnframt er boðskort fyrir tvo
á sýninguna um Emil í Kattholti í Borgarleikhúsinu.
Til að fá miðana þína afhenta þarftu að koma í
Borgarleikhúsið með þetta eintak af Fréttablaðinu
með þér.
Til hamingju og góða skemmtun!
adalheidur@frettabladid.is
STJÓRNMÁL „Þetta verður ekki
einfaldasti dagur þingsins, hvorki
í umræðu né atkvæðagreiðslu,“
segir Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir, starfandi þingforseti, um
verkefni Alþingis á morgun, þegar
gengið verður til atkvæða um gildi
kosninga.
Í greinargerð undirbúnings-
nefndar kjörbréfanefndar sem birt
var á vef þingsins í gær eru engar
tillögur til þingsins. Þær verða
sennilega ekki lagðar fram fyrr en á
morgun, sama dag og greidd verða
um þær atkvæði.
Von er á nokkrum tillögum;
einni eða tveimur um uppkosn-
ingu, einni um þriðju talninguna
og einni um staðfestingu allra
kjörbréfa, má búast við nokkuð
f lókinni atkvæðagreiðslu í þingsal.
Þorgerður Katrín segir ómögu-
legt að sjá formið á atkvæðagreiðsl-
unni fyrir á þessari stundu. Það fari
eftir því hvernig tillögurnar líti út.
„Við erum að reyna að gera þetta
eins vel og hægt er og ætlum að
vanda okkur,“ segir Þorgerður og
vísar þar bæði til þingmanna og
starfsliðs þingsins. Hún mun ræða
við formenn allra þingf lokka um
dagskrá morgundagsins á fundi
klukkan þrjú í dag.
Um atkvæðagreiðsluna sjálfa
segir Þorgerður: „Ég er sannfærð
um að hver og einn þingmaður
mun greiða atkvæði eftir sinni sam-
visku og sannfæringu, af virðingu
við löggjafarvaldið og lýðræðið.“ n
Flókin dagskrá á
Alþingi á morgun
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
mun stýra þingstörfum á morgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Við erum að reyna að
gera þetta eins vel og
hægt er.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
starfandi forseti Alþingis