Fréttablaðið - 24.11.2021, Page 8

Fréttablaðið - 24.11.2021, Page 8
Það er ótrúlegt að þriðjungur lands- manna fylgi ekki vísindalegum niður- stöðum. Joachim Sauer, eiginmaður Merkel Reynt er að ná til allra barna fimm ára og yngri. Í Finnlandi, Svíþjóð, Danmörku og Noregi eru engin fjarlægðar- mörk. Þá eru engar fjöldatakmarkanir í Svíþjóð, Danmörku og Noregi. Smit og aðgerðir á Norðurlöndunum Engar fjöldatakmarkanir Svíþjóð Danmörk Noregur Engin fjarlægðarmörk Finnland Svíþjóð Danmörk Noregur Engin grímuskylda Finnland Svíþjóð Danmörk Noregur HEIMILD: COVID.IS OG UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ Danmörk 629 Ísland 584,7* Noregur 390 Finnland 165 Svíþjóð 101 14 daga nýgengi smits á hverja 100.000 íbúa *Nýgengi á Íslandi miðast við 23.11.21 en önnur lönd við 19.11.21 Engar fjöldatakmarkanir eru í gildi í Noregi, Svíþjóð eða Danmörku en í síðastnefnda landinu er nýgengi smits það mesta á Norðurlöndunum. Ísland er eina ríki Norður- landanna þar sem enn eru fjarlægðarmörk og grímu- skylda. mhj@frettabladid.is COVID-19 Samkvæmt ferðaráðum utanríkisráðuneytisins sem voru uppfærð síðastliðinn föstudag er Ísland eina landið af Norður- löndunum þar sem grímuskylda er í almenningsrýmum um þessar mundir. Í Danmörku er aðeins grímu- skylda á f lugvöllum en þó mælt með grímunotkun við ákveðnar aðstæður. Í Finnlandi er engin skylda heldur en mælt með notkun í annasömum opinberum rýmum innandyra. Þá er ekki grímuskylda í Noregi og Svíþjóð og engin tilmæli um slíkt. Á Íslandi voru reglur hertar á ný 12. nóvember og er skylt að nota grímu alls staðar þar sem ekki er hægt að virða eins metra reglu, svo sem í verslunum, almenningssam- göngum og starfsemi sem krefst nándar, til dæmis á hárgreiðslu- stofum. Í Finnlandi, Svíþjóð, Danmörku og Noregi eru engin fjarlægðar- mörk. Þá eru engar fjöldatakmark- anir í Svíþjóð, Danmörku og Nor- egi. Á sama tíma miðast almennar fjöldatakmarkanir á Íslandi við 50 manns en í því felst að f leiri en 50 mega ekki koma saman, hvort heldur er inni eða utandyra, í opin- berum rýmum eða einkarýmum. Samkvæmt utanríkisráðuneytinu eru Finnar með fjöldatakmarkanir í gildi upp að vissu marki á veitinga- stöðum og börum. Þar eru einnig takmarkanir á afgreiðslutíma og fjölda viðskiptavina eftir svæðum. Þá verður að hafa í hug að smit- fjöldinn er mismunandi á Norður- löndunum en Danmörk leiðir Norð- urlöndin þegar litið er til nýgengis smits með 629 smit á hverja 100.000 íbúa síðustu 14 daga (miðað við 19.  nóvember). Ísland er þar í öðru sæti með 584,7 smit á hverja 100.000 íbúa á síðustu 14 dögum (miðað við 23. nóvember). Noregur kemur þar á eftir með 390 smit á hverja 100.000 íbúa. Finnland kemur þar á eftir með 165 smit en athygli vekur að Svíþjóð rekur lestina með einungis 101 smit á hverja 100.000 íbúa en Svíar hafa verið með afar vægar aðgerðir í gildi í faraldrinum. Hvað varðar landamærin eru engar landamæratakmarkanir í Sví- þjóð fyrir þá sem ferðast frá Íslandi eða öðrum Norðurlöndum til Sví- þjóðar. Svíþjóð er einnig eina ríki Norðurlandanna sem krefst ekki forskráningar við komu til landsins. Í Noregi er landið opið fyrir alla útlendinga sem hafa leyfi til að ferðast til Noregs samkvæmt útlendingalögum landsins. Allir eldri en 16 ára, sem ferðast til Nor- egs, þurfa að sýna fram á forskrán- ingu. Mismunandi sóttvarnareglur gilda við komu til Finnlands en far- þegar frá lágáhættusvæðum eru undanþegnir öllum sóttvarnaráð- stöfunum. Íslendingar þurfa ekki að sýna fram á neikvæða skimun við komuna til Danmerkur en Danir krefjast hins vegar bólusetningar- vottorðs. Engin forskráning er nauð- synleg í Danmörku. Bólusettir Norðurlandabúar sem ætla til Íslands þurfa aftur á móti að framvísa neikvæðu Covid-prófi áður en farið er um borð í f lugvél. Forskráningar er einnig krafist en þeir sem geta ekki framvísað vott- orði um neikvætt PCR-próf eða hraðpróf á landamærum Íslands fá 100 þúsund króna sekt og eru skyld- aðir í sýnatöku á landamærunum. ■ Sérstaða Íslands meðal Norðurlanda Bólusettir ferðamenn frá Norðurlöndunum þurfa að framvísa neikvæðu PCR-prófi á landamærum Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI. kristinnhaukur@frettabladid.is ÞÝSKALAND Joachim Sauer, eigin- maður Angelu Merkel kanslara, hefur sakað þá Þjóðverja sem ekki hafa þegið bólusetningu við Covid - 19 um leti. 32 prósent Þjóðverja eru óbólusett sem er hærra hlutfall en í mörgum nágrannaríkjum. „Það er ótrúlegt að þriðjungur landsmanna fylgi ekki vísinda- legum niðurstöðum. Þetta er að hluta til út af leti og andvaraleysi Þjóðverja,“ sagði Sauer í viðtali við ítalska dagblaðið La Republica en ummælin vöktu athygli eftir að þau voru birt í þýska blaðinu Die Welt. Sauer er efnafræðingur líkt og Merkel og er prófessor emeritus við Humboldt-háskólann í Berlín. Sauer og Merkel hafa verið gift síðan árið 1998 en Sauer hefur að mestu reynt að halda sig utan sviðs- ljóssins. Í viðtalinu sagði Sauer hið lága hlutfall sérstaklega grátlegt í ljósi þess hversu hratt vísindamenn hefðu náð að búa til bóluefni og dreifa því. Hann sagði þó að ekki væri hægt að skýra hlutfallið að öllu leyti með leti. Hluti fólks væri andvígur því að fá bólusetningu. ■ Eiginmaður Merkel segir leti aftra bólusetningu Sauer hefur að mestu haldið sig utan sviðsljóssins. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY kristinnhaukur@frettabladid.is SPÁNN Yfirvöld á Kanaríeyjum hafa fyrirskipað þrjú þúsund manns á eyjunni La Palma að halda sig innandyra. Hraun flæðir nú út í sjó með tilheyrandi hættu á að eitruð gös losni út í andrúmsloftið. Miguel Angel Morcuende, yfir- maður hjá jarðhræringahætturáði Kanaríeyja, Pevloca, tilkynnti að íbúar í sjávarþorpum nærri staðn- um þar sem hraunið fer nú í sjóinn skyldu halda sig á heimilum sínum. Þetta er í þriðja sinn sem hraun fer út í sjó síðan eldfjallið Cumbre Vieja byrjaði að gjósa þann 19. september. Öllu flugi til og frá La Palma var aflýst á mánudag vegna öskufalls, en það var þriðji dagurinn í röð sem samgöngur raskast vegna eldgoss- ins. 85 þúsund manns búa á eyjunni og hafa nú þegar 1.500 byggingar farið undir hraun. ■ Skipa þúsundum að halda sig inni Gashætta er þegar hraunið rennur til sjávar á La Palma. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA kristinnhaukur@frettabladid.is SVÍÞJÓÐ Í Stokkhólmi fara nú fram réttarhöld yfir Hamid Noury, sex- tugum manni sem sakaður er um stríðsglæpi í Íran árið 1988. Amnesty og fleiri mannréttinda- samtök hafa sagt þetta tímamóta- réttarhöld. Samkvæmt sænskum lögum er hægt að sakfella fólk fyrir alvarlega glæpi, eins og morð eða stríðsglæpi, sem framdir eru í öðrum löndum. Noury var fangavörður í fang- elsinu Gohardasht, nærri höfuð- borginni Teheran, sumarið 1988 er æðstiklerkurinn Ayatollah Kho- meni fyrirskipaði morð á fimm þús- und meðlimum samtakanna MEK sem börðust bæði með vopnum og áróðri gegn klerkastjórninni. Noury er sakaður um að taka óbeinan þátt í réttarmorðum og aftökum, meðal annars með því að færa fanga á aftökustaði og safna upplýsingum um fanga fyrir klerka- stjórnina. Hann neitar alfarið sök. „Ég sá hann á dauðadeildinni. Í hvert skipti sem nöfn voru lesin upp fylgdi hann þeim að dauðaklef- anum. Það liðu kannski 45 mínútur þangað til næsta nafn var lesið upp. Svo næsta og næsta,“ sagði Reza Falahi við fréttastofuna AFP. Falahi var í Gohardasht og varð vitni að voðverkunum árið 1988. Málið hefur vakið nokkra athygli í Íran. Þar eru ennþá við völd menn sem taldir eru hafa komið að voða- verkunum. Þar á meðal Ebrahim Raisi forseti sem hefur þvertekið fyrir að hafa tekið beinan þátt. Fyrr á árinu var kallað eftir rann- sókn á aftökunum í Íran. ■ Svíar rétta vegna stríðsglæpa í Gohardasht-fangelsinu í Íran Teikning af Noury og lögmanni hans Thomas Soderqvist. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA kristinnhaukur@frettabladid.is GAMBÍA Eftir að tilfelli af löm- unarveiki uppgötvuðust í Gambíu í vesturhluta Afríku í ágúst ákváðu stjórnvöld að hefja bólusetningar- átak. Í haust hefur verið reynt að ná til allra barna, fimm ára og yngri, og bólusetja þau með svokölluðu OPV-bóluefni. Er því ekki sprautað í vöðva heldur gleypa börnin tvo dropa af efninu í vökvaformi. Heilbrigðisstarfsfólk í Gambíu hefur hins vegar sagt átakið ganga illa því margir foreldrar neiti að láta bólusetja börnin sín. Telur starfs- fólkið að áróður gegn bóluefni við Covid-19 sé farinn að smitast yfir í aðrar bólusetningar. ■ Bólusetning gegn lömunarveiki gengur illa 8 Fréttir 24. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.