Fréttablaðið - 24.11.2021, Page 6

Fréttablaðið - 24.11.2021, Page 6
Þessi vitleysa þýðir að megnið af Íslandi er ekki með í leiknum ef kemur að því að byggja á rafmagni. Gunnlaugur Karlsson, fram- kvæmdastjóri Sölufélags garð- yrkjumanna Sölufélag garðyrkjumanna gagnrýnir RARIK vegna dreifikostnaðar sem bitni á sumum framleiðendum. Forstjóri RARIK telur mál- flutninginn byggðan á mis- skilningi. bth@frettabladid.is LANDBÚNAÐUR Nokkur mismunur getur orðið á dreifikostnaði raf- magns eftir landsvæðum. Fyrir- tæki sem staðsett er á svæði með innan við 200 íbúa getur þurft að greiða hærri dreifikostnað en fyrirtæki á þéttbýlla svæði. Verð- munurinn getur orðið fyrirstaða gegn framleiðslu grænmetis og þar með útf lutningstækifærum, að sögn Gunnlaugs Karlssonar, framkvæmdastjóra Sölufélags garð- yrkjumanna. Fréttablaðið hefur fjallað um opnun markaða í Evrópu fyrir útf lutning á íslensku grænmeti, ekki síst gúrkum. Talsvert magn hefur farið á þessu ári til Græn- lands, Færeyja og Danmerkur. Mikil eftirspurn er eftir vörunni í vetur, enda hefur dönskum grænmetis- bændum í vetrarræktun fækkað umtalsvert. Gunnlaugur segir að ógn í þessu sambandi sé að gjaldskrá RARIK yfir f lutningskostnað á rafmagni geri það erfitt fyrir stærri notendur að byggja upp raforkufrek gróður- hús, þótt um sé að ræða græna orku. Gjaldskrá RARIK miðist við fjölda íbúa á svæðum þar sem fámenn landsvæði sitji ekki við sama borð og þéttbýl. „Þessi vitleysa þýðir að megnið af Íslandi er ekki með í leiknum ef kemur að því að byggja á rafmagni. Það þarf að búa til sérstaka gjald- skrá fyrir græna starfsemi og koma á f leiri verkefnum,“ segir Gunn- laugur. Útf lutningstækifæri í þessum efnum séu því aðeins á völdum svæðum, en þá sé ekki endilega samasemmerki milli staðhátta, innviða og kunnáttu. Ótækt sé að setja sérstakt álag fyrir það eitt að notandi búi á fámennu svæði. Mis- réttið einskorðist ekki við matvæla- framleiðslu. Gunnlaugur nefnir sem dæmi að bændur á Reykholtssvæðinu gætu þurft að greiða um 50 milljónir króna á ári ef þeir hygðust næla sér í tvö megavött af raforku. Ef annar framleiðandi á Reykjanesi ætlaði sér að kaupa sama magn af raf- orku af HS Orku þyrfti sá aðeins að greiða 12,5 milljónir króna. Tryggvi Þór Haraldsson, for- stjóri RARIK, segir misskilning einkenna gagnrýni Sölufélags garð- yrkjumanna. Fráleitt sé að dæmi Gunnlaugs eigi við rök að styðjast. Tryggvi telur hugsanlegt að Gunn- laugur gleymi flutningskostnaðin- um frá Landsneti sem sé innifalinn í taxta RARIK en ekki hjá HS-Veitum. Hitt sé rétt að dreifikostnaður raforku í dreif býli sé enn þá hærri en í þéttbýli, en einkum til smærri notenda. Það gildi bæði hjá RARIK og Orkubúi Vestfjarða. Um lítinn mun sé að ræða sem fari minnk- andi. Stjórnvöld hafi verið að jafna bilið, stefna stjórnvalda sé að reyna að jafna muninn alveg út svo allir sitji við sama borð. Tryggvi Þór bendir á að hluti jöfnunar til garðyrkjubænda eigi sér stað í gegnum búvörusamning. Það sé ekki hlutverk RARIK heldur stjórnvalda að taka ákvörðun um hvort umbuna skuli fyrir græna orku eða ekki. ■ Dreifikostnaður á raforku sagður hindrun í útflutningi á grænmeti Framkvæmda- stjóri Sölufélags garðyrkju- manna telur dreifikostnað á raforku koma í veg fyrir að gróðurhúsa- rækt þrífist sem skyldi á sumum landsvæðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR arib@frettabladid.is REYKJAVÍK Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, lagði til á fundi skóla- og frístunda- ráðs í gær að viðhaldsmál Haga- skóla verði á dagskrá næsta fundar ráðsins. Þá fer hún fram á að skýrsla verkfræðistofunnar Mannvits um húsnæðið frá því í apríl síðastliðn- um verði lögð fram. Hún segir það vekja furðu að Vill fá skýrslu um húsnæði Hagaskóla Marta Guð- jónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins málið hafi ekki verið sérstaklega á dagskrá í gær í ljósi frétta af myglu í húsnæðinu. Hluti nemenda stundar nám í húsnæði Hótels Sögu á meðan ein álman er lokuð. „Svona alvarlegt mál hefði þurft að taka fyrir án tafar,“ segir Marta. Þá sé dæmi um að starfsmaður skól- ans hafi farið í veikindaleyfi sem rekja mætti til myglu. „Það er líka ámælisvert að árið 2019 voru engin sýni um myglu tekin þegar fjöldi nemenda og starfsmanna Haga- skóla sýndi einkenni sem bentu til að skólahúsnæðið væri heilsuspill- andi.“ Marta segir að hún viti um skýrslu Mannvits en hún hafi aldrei verið lögð fram. „Þessi skýrsla hefði þurft að liggja fyrir. Ég hef ekki haft aðgang að henni og hef því ekki lesið hana en að öllum líkindum varpar hún veigamiklu ljósi á alvar- legt ástand skólahúsnæðisins.“ ■ svavamarin@frettabladid.is DÓMSMÁL Réttarhöldin yfir Flemm- ing Mogensen hefjast í dag. Hann hefur játað að hafa myrt Freyju Egilsdóttur í janúar síðastliðnum. Í viðtali við danska fjölmiðla í gær lýsti Alex Mogensen, sonur Flemm- ings, föður sínum sem afar reiðum en veikum manni. „Hann fékk ekki þá aðstoð sem hann óskaði eftir og hefði líklega verið hægt að komast hjá því sem gerðist,“ segir Alex. Flemming varð móður Alex að bana árið 1995. Alex kvaðst hafa spurt Freyju nokkrum dögum fyrir morðið hvort hún óttaðist að Flemming myndi gera henni mein og hún svarað því játandi. ■ Nánar á frettabladid.is Bar ugg í brjósti Freyja Egilsdóttir bth@frettabladid.is JAFNRÉTTI Landssamband lögreglu- manna hefur hvorki heyrt frá dóms- málaráðherra né ríkissaksóknara eftir að félagið bað um að ríkissak- sóknari rannsakaði ummæli Þor- bjargar Ingu Jónsdóttur lögmanns. Þorbjörg Inga sagði að hjá lögreglu og dómstólum væri gerður manna- munur eftir þjóðfélagsstöðu. Ummælin fóru illa í lögreglumenn, ekki síst því Þorbjörg Inga er í nefnd um eftirlit með lögreglumönnum. „Nei, það hefur í raun ekkert gerst, nema að Ríkislögreglustjóri er að kanna með hvaða hætti þau geta brugðist við ósk ráðherrans um að kanna þetta mál. Við höfum ekkert heyrt beint sjálf frá ráðherranum eða ríkissaksóknara,“ segir Fjölnir. ■ Hafa ekkert heyrt frá ráðherranum Fjölnir Þorgeirsson 6 Fréttir 24. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.