Fréttablaðið - 24.11.2021, Page 19
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
MIÐVIKUDAGUR 24. nóvember 2021
Jóhann K. Jóhannsson, slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð, segir að öryggi fólks sé númer eitt, tvö og þrjú og það sé ýmislegt sem þurfi að huga að til að lágmarka
hættu á eldsvoða yfir jólahátíðina. Markmiðið er alltaf að það verði ekkert að gera hjá slökkviliðinu á þessum tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
thordisg@frettabladid.is
Í dag er 24. nóvember. Það þýðir
aðeins eitt: að aðfangadagur jóla
rennur upp eftir sléttan mánuð,
þann 24. desember.
Þótt jólin séu alltaf jafn löng,
eða þrettán dagar í íslenskum sið,
eru jólin í ár stutt þegar kemur
að frídögum á milli jóla og nýárs.
Aðfangadagur er á föstudegi og
heilagir jóladagar á eftir lenda á
helgi. Þá verður gamlársdagur líka
á föstudegi og nýársdagur á laugar-
degi, en auka frídagur gefst sunnu-
daginn 2. janúar, fyrir þá sem
vinna ekki vaktavinnu. Næstu jól
verða svo enn styttri, þegar áramót
lenda á laugardegi og sunnudegi.
Í seinni tíð hefur stundum verið
talað um atvinnurekendajól þegar
aðfangadag ber upp á föstudag,
því fyrir þá sem vinna til hádegis
á aðfangadag en eiga frí um helgar
verða slík jól bara hálfur aukafrí-
dagur.
Brandajól þykja flestum best.
Það eru jól sem falla þannig við
sunnudaga að margir helgidagar
verða í röð; upphaflega þegar
jóladag bar upp á mánudag. Árið
1770 var af tekið að hafa stórhátíðir
þríheilagar, en fram að því fékk
fólk frí á þriðja í jólum. Þá varð
fjórheilagt ef sunnudag bar upp á
aðfangadag og kallað litlu branda-
jól, en stóru brandajól ef þriðja í
jólum bar upp á sunnudag. ■
Mánuður í jól
Sléttur mánuður er í að kirkjuklukk-
ur Dómkirkjunnar hringi inn jólin.
Eldvarnafræðsla
aldrei mikilvægari
Landssamband slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna kynnir eld-
varnir heimilisins fyrir grunnskóla-
börnum og fjölskyldum þeirra
fyrir hver jól. Það er sérstaklega
mikilvægt að hafa öryggisatriðin
á hreinu um jólin, en ungt fólk
mætti sinna eldvörnum betur. 2
Förum
varlega
með eld
um hátíðirnar