Fréttablaðið - 24.11.2021, Side 36
JÓLIN Á
TAPASBARNUM
TAPASBARINN
Vesturgötu 3b • Sími 551 2344
9 RÉTTA JÓLAMATSEÐILL
Frábær blanda íslenskra og spænskra jólahefða.
7 gómsætir jólatapasréttir
• Rauðrófu- og piparótargrafinn lax
• Lambatartar með sýrðum rauðlauk,
reyktum rjómaosti og dillolíu
• Risahörpuskel með sellerírótarmauki,
grilluðu serrano og passionfroðu
• Andabringa með jarðskokkum, svartrót
og Malt- og appelsínsósu
• Bjórgljáð lynghæna með rauðkálsgeli og bjórsósu
• Hvítlauksbakaðir humarhalar með mangósalsa
• Nautalund með sveppa duxelle og bernaisefroðu
2 ljúfir eftirréttir
• Súkkulaðiterta með berja-compoté
• Crema Catalana með Dulce de leche
8.990 kr.
Aðeins framreitt fyrir allt borðið
Borðapantanir á tapas.is
toti@frettabladid.is
„Já, já. Ég er enn að. Það er ekki
skrúfa eftir, eins og ég segi stund-
um. Það er bara svoleiðis. Maður er
búinn að fara alla leiðina frá gler-
plötu yfir í síma, eins og þar stendur,
og búa til tvö símaöpp,“ segir Pétur
Jónasson, ljósmyndari á Húsavík og
listamaður Norðurþings 2020.
Þegar Pétur var útnefndur lista-
maður Norðurþings sagði bæjar-
stjóri Húsavíkur meðal annars
að hann hefði „ávallt verið meðal
þeirra fremstu í að tileinka sér nýja
tækni og framfarir er tengjast ljós-
myndun og framköllun. Í gegnum
tíðina hefur hann því bæði sinnt
faglegum hliðum síns starfs til
jafns við þær listrænu með einstakri
natni og næmni fyrir minnstu smá-
atriðum.“
Ljósmyndasýningin sem hann
hélt í kjölfarið bar þessum þáttum
í faglegu fari hans skýrt vitni enda
komst hún býsna nærri því að verða
það sem hann kallar hefðbundin
sýning á verkum manns sem á að
baki langan feril.
„Já, svona nokkuð. Það tókst nú
ekki að hafa þetta svona alveg eins
og ég ætlaði mér vegna þess að ég er
í þessu helvítis krabbastandi,“ segir
Pétur sem berst við krabbamein
og fékk liðsstyrk frá Sigríði, dóttur
sinni, og tengdadótturinni Patra
Tawatpol.
„Þær sáu um að negla þetta saman
og koma þessu upp þannig að þetta
varð nú helvíti f lott sýning með
smart uppsetningu og hún var bara
helvíti vel sótt þótt ég segi sjálfur
frá,“ segir hann um sýninguna
Ljósmyndir Péturs í 60 ár sem lauk
nýlega í Safnahúsinu á Húsavík.
Filman kvödd
Filman var vitaskuld mál málanna
þegar Pétur byrjaði í ljósmyndun
fyrir margt löngu og enn er hún
sveipuð nokkrum dýrðarljóma þótt
stafrænan hafi nánast gert út af við
hana.
Sjálfur hefur Pétur kvatt filmuna
með virktum en engum söknuði.
„Já, já,“ segir hann ákveðið. „Ég
gerði það og núna er ég með nýjasta
Canoninn. Fimm, sem er bara rosa-
lega fullkomin og í fælnum sem
maður fær úr henni getur þú náð
fram öllu því sem er í filmunni og
meira til. Ef þú veist hvað þú ert að
gera.“
Pétur bætir aðspurður við að
hann sakni því filmunnar ekki þar
sem skarð hennar hafi verið fyllt.
„Já, já, alveg gersamlega með þessu
og þar að auki er „auto focusinn“
í þessari vél bara alveg ógeðslega
skemmtilegur. Alveg meiriháttar
bara. Maður reiknaði ekki með því
að lifa þá tíma að þetta væri svona.“
Nýjasta tækni og vísindi
Pétur segir hiklaust mega tala um
myndvinnsluna með stafrænu tækj-
unum sem einhvers konar vísindi.
„Þetta er það. Bara svona í alvörunni
talað og svona hefur djobbið færst
út í að maður er að vinna fælinn
stafrænt frá því að vera í blautfram-
kölluninni. Það er svo mikið sem
er í filmunni, það verður aldrei af
henni skafið,“ segir Pétur með fullri
virðingu fyrir filmunni sem hefur
þó mátt víkja.
„Núna er ég líka með hágæða
ljósmyndapappír til að prenta á og
þá fæ ég þetta bara eins og þegar
maður gerði þetta í dimmukomp-
unni í gamla daga. Og jafnvel betra.“
Pétur hefur þannig, ólíkt mörgum
jafnöldrum í stétt ljósmyndara,
stokkið fagnandi á stafrænu hrað-
lestina og var meira að segja byrjað-
ur að fikta við gerð smáforrits fyrir
lófatölvur áður en snjallsímarnir
tóku sviðið.
„Stýrikerfið þar hentaði ekki
þannig að maður fór að leita í síma-
dótið. Þar voru líka ýmsir veggir en
ég fann stýrikerfi sem gat virkað,“
segir Pétur um upphaf þeirrar vinnu
sem hefur skilað tveimur smáfor-
ritum sem ætlað að er að auðvelda
safngestum að hitta á rétta hljóð-
leiðsögn á ljósmyndasýningum og
öðrum listaverkasýningum.
Vankaðar rollur
„Maður var búinn að horfa á þessar
hljóðleiðsagnir og oftar en ekki á
útlendinga bara eins og vankaðar
rollur á vitlausum stöðum að skoða
verk með hljóðleiðsögn um allt aðra
hluti. Það var svolítið hjákátlegt.“
Pétur segist hafa eytt miklum
tíma og fé í að þróa og vinna smá-
forritin sem hafi þó ekki dugað til
þess að þau fengju það sem hann
telur verðskuldaðan framgang.
„Ég sótti um hjá Iðnþróunar-
stofnun þar sem ýmsar hugmyndir,
sem voru bara út í loftið, fengu fullt
af peningum en þetta var alltof full-
komið til þess að hægt væri að eyða
fé í þetta,“ segir Pétur í háðskur.
„Ég var búinn að búa þetta til en
framhaldið var eftir og það voru
ýmsir sem vildu krukka í þetta og
allt það en þá fannst mér alveg eins
gott að þetta færi þá bara í mína
skúffu frekar en að aðrir færu að
nota það sem var búið að gera fyrir
ekki neitt.“ n
Sá gamli setur fókusinn
á filmulausa framtíð
Hönnuðurinn Sigurjón Pálsson var
hress þegar hann mætti sjálfum sér
miklum mun yngri. MYND/AÐSEND
Ljósmyndasýningin var næstum alveg eins og Pétur Jónasson sá hana fyrir
sér og telur hana gefa ágætis yfirlit yfir sex áratuga feril sinn. MYND/AÐSEND
Ljósmyndir Péturs í 60 ár
Pétur Jónasson fæddist á
Suðureyri við Súgandafjörð árið
1941. Hann fékk snemma áhuga
á ljósmyndun og seldi strax á
táningsaldri myndir sem hann
tók af leikritum sem sett voru
upp í fæðingarbæ hans. Árið
1958 hélt hann til náms í höfuð-
borginni og stofnaði að loknu
námi Ljósmyndastofu Péturs á
Húsavík árið 1962 og hefur rekið
hana síðan.
Sýningunni Ljósmyndir Péturs
í 60 ár lauk í september en
hún var haldin í tilefni þess að
Pétur var útnefndur listamaður
Norðurþings árið 2020. Pétur
hefur enda myndað margar
kynslóðir Húsvíkinga á stofu
sinni, í skólum bæjarins, í Húsa-
víkurkirkju og ekki síst í leikhús-
inu auk ótal tilefna annarra.
Pétur hefur því farið í gegnum
gríðarlegar breytingar á þessum
tæplega 60 árum í faginu.
Myndirnar voru framan af svart-
hvítar og handlitaðar en hann
varð síðan annar tveggja ljós-
myndara sem voru fyrstir til að
framkalla myndir í lit á Íslandi.
Í kjölfarið komu síðan filmu-
framköllun fyrir almenning,
stafræna byltingin sem síðan
leiddi til þess að nánast allir
ganga með fullkomnar mynda-
vélar snjallsímum sínum.
Ljósmyndastofa Péturs Jónas-
sonar á Húsavík er sú elsta
á landinu. Eftir að hann var
útnefndur listamaður Norð-
urþings fagnaði hann sex ára-
tugum í faginu með sýningu
þar sem glöggt mátti sjá að sá
gamli er enn í takt við tímann
og sér enga ástæðu til þess að
sakna gömlu filmunnar.
32 Lífið 24. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ