Heilsuvernd - 01.03.1949, Side 16
8
HEILSUVERND
það allítarlegt mál. Hefst nú hér í heftinu greinaflokkur
um þetta efni, og munu lesendur sannfærast um, að lestri
þeirra loknum, að krabbameinið er sízt dularfyllra en
aðrir sjúkdómar, að orsakir þess eru augljósar og við-
ráðanlegar og hverjum manni í sjálfsvald sett að sneiða
hjá þeim. Það er eðlilegt, að menn óttist það, sem þeir
skilja ekki og fá ekki við ráðið. Þessar greinar ættu því
að létta þungu fargi af hugum manna, og mönnum ætti
að verða ljóst, að það er undir hverjum einum komið, hvort
hann á að geta tekið undir með enska skurðlækninum
Lane (sjá 1.-2. hefti 1948) og sagt:
„Eg mun ekki deyja úr krabba.“
HVÍTKÁL 1 SKYRMYSU.
Síðastliðið haust gerði Barði Brynjólfsson, málarameistari á
Akureyri, tilraun með geymslu á hvitkáli í skyrmysu. Fer hér á
eftir lýsing Barða á aðferðinni:
„Eg læt skyrmysuna í tunnu þá, sem geyma á kálið í. Tek kál-
höfuðin sundur blað fyrir blað. Ef óhreinindi eru á blöðunum, skola
ég þau af, en að öðru leyti er kálið ekki þvegið. Kálblöðin legg eg
svo niður í tunnuna, og þegar nóg er komið, set ég tréhlemm, sem
smágöt eru boruð á og fellur innan i tunnuna, ofan á kálið og
þungt farg þar á ofan. Eftir nokkra daga hefir kálið þjappazt
saman og sigið, og þá er hægt að bæta í tunnuna. Nokkrum dögum
síðar létti ég fargið og hef það aðeins 3 til 4 kg. En ávallt verður
að gæta þess, að fljóti vel yfir. Til þess að efni þau, sem síast kunna
úr kálinu út í sýruna, fari ekki forgörðum, notum við hana jafnóð-
um og kálið eyðist saman við volgt vatn til drykkjar, og þykir okkur
það ákaflega Ijúffengur drykkur.“
1 marzmánuði sendi Barði sýnishorn af kálinu og sýrunni til
Reykjavíkur, og var því komið til Sigurðar H. Péturssonar, gerla-
fræðings, við Atvinnudeild Háskólans. Rannsakaði hann góðfúslega
sýnishornið, sem reyndist innihalda hreinan skyrgerlagróður, og
sýrustigið reyndist mjög hæfilegt (4.1). Eftir þessu að dæma virðist
hér vera fundin tilvalin aðferð til geymslu á hvítkáli, og á Barði
Brynjólfsson miklar þakkir skildar fyrir þessa tilraun. En Sig. H.
Pétursson vakti athygli á því, að í þessu væri mest komið undir því,
að hægt væri að fá góða skyrmysu. Að öðru leyti er óhætt að mæla
sem bezt með þessari geymsluaðferð og með neyzlu hvítkáls verk-
aðs á þennan hátt.