Heilsuvernd - 01.03.1954, Page 24
16
HEILSUVERND
Ileilsuhæli H.L.F.Í.
Á næstu síðu er birt grunnmynd af fyrirhuguðu heilsu-
hæli N.L.F.I., sem nú er í byggingu og bráðum komið undir
þak að hálfu.
Grunnflöturinn er um 1200m2. Húsið verður byggt úr
asbesti á trégrind. Verður húsið hið skemmtilegasta og
vandaðasta og vel fyrir þörfum dvalargesta séð. Sérstök
deild verður fyrir ljós-, leir-, gufu- og vatnsböð.
Fyrirhugað er að reka hælið árið um kring.
Áratuga barátta Jónasar læknis Kristjánssonar í ræðu
og riti fyrir bættu mataræði og hollum lifnaðarháttum
yfirleitt hefur skilað miklum árangri. Enda mun brautryðj-
andastarf hans, á þessu sviði heilbrigðismálanna, halda
nafni hans lifandi eftir að vanabundnir kollegar, sem and-
hverfir hafa verið stefnu hans, eru gengnir og gleymdir.
Einn af draumum Jónasar Kristjánssonar, heilsuhælið,
er að verða að veruleika. Og vonandi á þessi mikli mannvin-
ur einnig eftir að sjá þann draum sinn rætast að taka þar á
móti sjúklingum og leiða þá til nýrrar heilsu og nýs lífs-
skilnings.
Rekstur hressingarheimilis N.L.F.I. undanfarin sumur
hefur sannað, svo að ekki verður í efa dregið, að væntanlegt
hæli á miklu hlutverki að gegna, svo mikillvægu, að þjóðin
hefur ekki efni á að vera án þess. Dvalargestir hælisins og
sjúklingar eiga ekki einungis að öðlast þar bætta heilsu,
aukinn starfsþrótt og lífstrú. Hver dvalargestur á ekki síð-
ur að tileinka sér og flytja með sér til síns heima kunnáttu
og skilning á hollustu- og heilsugildi réttra lifnaðar- og
hugsunarhátta.
Þannig á hæli N.L.F.l. að verða heilsuræktarstöð og skóli
í senn. — Stuðlum öll að því með fjárframlögum, hvert eftir
sinni getu, að bygging hælisins þurfi ekki að tefjast.
Einhuga átak f jöldans orkar öllu. M. M. Sk.