Heilsuvernd - 01.03.1954, Síða 29

Heilsuvernd - 01.03.1954, Síða 29
HEILSÚVERND 21 móti: Sjálfgert sJcyr og venjulegt, hleypt sJcyr. Stundum er látið ögn af nýlegu skyri eða þétta á botn í tunnu, og síðan helt mjólk í tunnuna smám saman; þessi mjólkur- samsteypa súrnar þá og hleypur, og þegar frá líður er mys- unni rennt undan. Þetta er kallað sjálfgert skyr, og er það mjög samfellt og bragðgott. Sumir flóa mjólkina áður en henni er hellt í tunnuna, en aðrir gera það ekki. — Venju- lega er skyr nú gert á annan hátt: Mjólkin er flóuð, látin kólna niður í um það bil 30° C., og síðan settur í hana hleypir, sem hrærður er saman við þétta. Nú hleypur mjólkin að vörmu spori og er þá kölluð upphleypa. Upp- hleypan greinist nú bráðlega í mysu og sJcyr, og er mysan síuð frá skyrinu. Hleypir hefur hér á landi frá alda öðli verið unninn úr kálfsmaga („kálfslyf" eða ,,lyf“ eða ,,kæsir“), en nú eru margir farnir að kaupa útlendan hleypi, og er hann þó engu betri, nema verri sé, en kæsirinn. Það ber við, að skyrgerðin misheppnist, stundum verður allt að einni grautarslepju, drafli og mysa, og skilst ekki að; það er kölluð óleJcja (almennt er nú hálfsíað eða ósíað skyr kallað óleJcja)\ orsökin er þá oftast sú, að sérstakir slepjuvaldir gerlar hafa komist í þéttann. Önnur skemmd í skyri lýsir sér á þann hátt, að skyrið ólgar upp í ílátinu; marrar þá og ýskrar í því, ef þjappað er að því; skyrið er þá verra á bragðið og óhollara en ella; þegar svona fer, er sagt að geJMr sé í skyrinu. Þetta stafar af illa kynjuðum súrgerlum í þéttanum, og kemur helzt fyrir, ef þéttinn er látinn í mjólkina mjög heita; þessir gerlar valda loftbólum í skyrinu; af því kemur ólgan. — Þá verður að minnast á súrmjöttána. Það er víða siður hér á landi að hella áfum og undanrennu saman í tunnu eða ámu, án þess að láta þar i hleypi; en örlítill þéttir látinn á ámubotninn í fyrsta skipti, sem hellt er í hana; þessi mjólkursamsteypa súrnar og verður meira eða minna þykk; er venja að hræra í henni við og við fyrst í stað, til þess að hún hlaupi ekki í kekki. Stundum er nýmjólk (einkum sauðamjólk) höfð saman við. Hér á landi hafa menn ekki

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.