Heilsuvernd - 01.03.1954, Side 31

Heilsuvernd - 01.03.1954, Side 31
HEILSUVERND 23 vel, en þó veldur það oft talsverðum vafningi, að koma skyrinu til. Skyrþéttir á að vera þannig, að sem minnstan hleypi þurfi að láta í mjólkina, og auðvitað væri æskileg- ast að þéttinn væri búinn til með hreinræktuðum mjólkur- súrgerlum af góðu kyni. Ég geri ráð fyrir að hinir heilnæmu súrgerlar Búlgara séu af góðu kyni. Þá gerla mætti nota við hérlenda skyrgerð, með því að auðvelt er að ná þeim úr búlgarska skyrinu. En þurfum vér að vera upp á aðra komnir með kyn- góða gerla? Ég hef fengizt þó nokkuð við rannsókn á íslenzku skyri, til þess að geta leyst úr þessari spurningu. I skyrinu okkar er fjölbreyttur gróður. Fyrst í stað gerði ég mér eingöngu far um að hrein- rækta úr því mjólkursúrgerla, er líktust sem mest þeim búlgörsku í sjón og reynd; hafði ég þá jafnframt búlgörsku gerlana til samanburðar. I íslenzku skyri hef ég fundið þrjár höfuðtegundir súrgerla, en alls hef ég fundið 7 teg- undir; þar á meðal eru hinir algengu ristilgerlar, sem einnig framleiða súr. Eins og áður er tekið fram, eru aðallega 2 tegundir mjólkursúrgerla í búlgörsku skyri, og hefir önnur perlu- bandslögun en hin striklögun. — Eftir skamman tíma tókst mér að ná úr skyrinu okkar súrgerlum, sem líktust hinum búlgörsku að útliti, en voru þó annars eðlis; varð ég því að byrja á ný og einangra aðra súrgerla úr skyrinu. Loks heppnaðist mér að hreinrœkta úr skyri mjólkursúrgerla, sem virðast vera náskyldir þeim búlgörsku. Ég get t. d. látið íslenzkan perlubandssúrgeril úr skyri vinna með búlgörskum striklöguðum súrgerli, og fengið með þeim súr- mjólk, sem hefir sama bragð og útlit eins og súrmjólk sú, er ég hefi gert með báðum sambýlisgerlum Búlgara. Enn- fremur get ég látið íslenzka striklögunar-súrgerla og búlgarska perlubandsgerla vinna saman með góðum ár- angri. Daglega sýri ég nú mjólk með sambýlisgerlum úr íslenzku skyri, og finnst mér sama bragð að þeirri súr-

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.