Feykir


Feykir - 08.01.2020, Blaðsíða 4

Feykir - 08.01.2020, Blaðsíða 4
Ert þú ekki alveg örugglega áskrifandi? Í ljósi atburða þegar óveður gekk yfir landið rétt fyrir jól og að samfélagið í Skagafirði er að komast í eðlilegt horf, sem og á landinu öllu, þykir rétt að endurmeta stöðuna. Í aðdraganda þessara eftir- minnilegu viku var spáð rauðri viðvörun á Norðurlandi vestra og því alveg ljóst í hvað stefndi – Óveður! Ótrúleg fórnfýsi Margir, en þó ekki allir, sýndu fyrirhyggju og undirbjuggu sig fyrir óveðrið sem stefndi á okkur. Björgunarsveitir voru með allt sitt á hreinu og fluttu t.a.m. snjóbíla á svæðið. Gerðu tól og tæki klár og biðu síðan eftir því að óveðrið skylli á en m.v. ástandið er ljóst að fleiri hefðu mátt gera hið sama og björgunarsveitin. Þeim aðilum sem börðust við að halda innviðum samfélagsins gang- andi verður seint fullþakkað fyrir ómælda elju og baráttu við náttúruöflin og er það deginum ljósara að við vorum heppin að ekki varð mannskaði í Skagafirði. Ég vil því þakka öllum þeim aðilum sem lögðu sitt af mörkum og sýndu fyrirhyggju – TAKK FYRIR YKKAR FRAMLAG – björgunarsveitamenn og -konur, almannavarnir, lögreglan, starfs- menn Rarik og Skagafjarðaveitna og aðrir starfsmenn sveitarfél- agsins, þjónustuaðilar, nágrann- ar og allir Skagfirðingar – ykkar fórnfýsi er ómetanleg. Öryggi innviða Innviðir eins og raforka, fjar- skipti og hitaveita eru grunn- stoðir samfélagsins og mega alls ekki detta út þegar óveður af þessu tagi gengur yfir og því þarf að skoða vel og meta hvað má betur fara. Einn af þessum innviðum í Sveitarfélaginu Skagafirði er heita vatnið okkar, sem sveitarfélagið hefur byggt upp, og er framreiknaður kostnaður við slíka uppbyggingu um 3 milljarðar. Þykir því rétt að benda á að hitaveituvæðing í Sveitarfélaginu Skagafirði hefur sparað ríkinu u.þ.b. 100 milljón- ir á ári vegna niðurgreiðslu á raforku til húshitunnar. Ljóst er að uppbyggingin á hitaveitunni hefur tekist vel enda bilaði ekkert í óveðrinu og fór aldrei hiti af veitukerfinu sem verður að teljast þrekvirki. Því má ekkert gefa eftir í uppbyggingu á hitaveitu í Skagafirði á þeim svæðum sem eftir eru og verður að skoða „köld“ svæði sérstaklega og hvernig hægt sé að tryggja þeirra öryggi. Öryggisleysi í raforku og fjarskiptamálum Fjarskipti voru inni og úti þegar óveðrið gekk yfir og þá aðallega vegna rafmagnsleysis og því verður að skoða raf-orkuöryggi í Skagafirði sérstak-lega. Það er búin að vera margra ára barátta að koma Sauðár-krókslínu 2 á verkefnaborðið en nú er það verkefni loksins komið í gang og á að klárast árið 2020, með jarðstreng milli nýrra yfirbyggða spennivirkja á Sauðárkróki og Varmahlíð sem mun styrkja raforkuöryggið til muna. Rarik er á mikilli ferð að leggja af loftlínur og setja jarðstrengi í staðinn en eftir óveður af þessu tagi ætti slíkt að ganga hraðar. Þó má segja annað um byggða- línuna, sem liggur í gegnum Skagafjörð, og bilaði í þessu óveðri þó að ekki virðist mega fjalla mikið um það. Blöndulína 2 bilaði 10. desember sl. kl. 14:41. og kom aftur inn 11. desember kl. 8:38. Byggðalínan var sem sagt úti í 17 klukkutíma og 37 mínútur. Eftir stóð Rangárvallalína sem liggur frá Varmahlíð í Eyjafjörð en sú lína er veikasti hlekkur í byggðalínu Íslands og ekki er hægt að hugsa hvernig ástandið hefði orðið ef Rangárvallalínan hefði einnig dottið út – nógu var ástandið slæmt. Þjóðaröryggi Ljóst er að ástandið var afar slæmt á Íslandi þá daga sem óveðrið gekk yfir og eftirköstin alvarleg enda var þjóðar- öryggisráð Íslands kallað saman - það slæmt var ástandið. Þann 13. desember sl. var fundur með aðilum úr þjóðaröryggisráðinu á Sauðárkróki en formaður ráðsins er forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir. Á fundinum var farið yfir atburði liðinna daga og horft til framtíðar. Ljóst er að með komu sinni líta stjórnvöld alvarlegum augum á ástandið sem skapaðist í óveðrinu. Þó stendur eftir sú spurning; hvort Sveitafélagið Skagafjörður eigi á að berjast eitt fyrir því að tryggja þjóðarhags- muni með því að vera endalaust kært vegna lagnaleiðar byggða- línunnar í aðalskipulagi sveitar- félagsins eða fær sveitarfélagið stuðning frá stjórnvöldum við að tryggja þessa hagsmuni? Burtséð frá því hvar lagnaleiðin verður. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórn- arinnar segir: ,,Forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar verður að nýta með sem hagkvæmustum hætti þá orku sem þegar hefur verið virkjuð. Í þeim tilgangi þarf að treysta betur flutnings- og dreifi- kerfi raforku í landinu, tengja betur lykilsvæði og tryggja afhendingaröryggi raforku um land allt. Skoðað verði að hve miklu leyti má nýta jarðstrengi í þessar tengingar með hagkvæm- um hætti. Ekki verður ráðist í línulagnir yfir hálendið.“ Þann 16 desember sl. kom út skýrsla eftir dr. Hjört Jóhannsson sem Atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytið og Umhverfis- og auðlindaráðuneytið létu gera og var birt í Samráðsgátt stjórn- valda um mat á möguleikum þess að nýta jarðstrengi við upp- byggingu flutningskerfis raf- orku. Ég hvet alla sem vilja mynda sér skoðun á samanburði á loftlínum og jarðstrengjum í byggðalínunni að kynna sér niðurstöðu þessarar skýrslu. Leiðinlegt er að segja frá því að ljósin voru varla kviknuð þegar þingfest var mál fyrir héraðsdómi gegn Sveitarfélag- inu Skagafirði vegna lagnaleiðar byggðalínunnar í gegnum fjörð- inn – en nú reynir á. Það er verk sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar að fylgja þessu verkefni eftir og tryggja innviði samfélagsins heima í héraði. Eitt er þó víst að veður af þessu tagi mun koma aftur en spurningin er hvort við ætlum að læra af þessu, eða hunsa þetta enn og aftur, og senda viðbragðsaðila út í óvissuna? Ég trúi ekki öðru en að hér hljóti almannahagsmunir að vega þyngra og vera númer eitt. Gísli Sigurðsson, sveitarstjórnarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði AÐSENT : Gísli Sigurðsson skrifar Rauð viðvörun! Um miðjan desember birtist í samráðsgátt stjórnvalda skýrsla, sem unnin var að beiðni ráðuneyta atvinnuvega- og nýsköpunarmála og umhverfis- og auðlindamála. Í þessari skýrslu er fjallað um niðurstöður greininga á takmörkunum og áhrifum notkunar jarðstrengja á hæstu spennu- stigum flutnings- kerfa raforku. Í skýrslunni er til skoðunar meginflutningskerfi landsins, frá Brennimel í vestri norður um, austur og endað í Sigöldu. Meginflutningskerfið er sá hluti flutningskerfisins sem sinnir raforkuflutningi milli landsvæða og samanstendur af línum á hæstu spennustigunum, 132 kV og 220 kV. Markmiðið með greiningarvinnunni er að svara spurningum sem settar eru fram í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar- innar og þingsályktun nr. 26/148 frá 11. júní 2018 um möguleika á því að nýta jarðstrengi með hagkvæmum hætti til þess að tengja saman lykilsvæði. Í þessari grein er sjónum fyrst og fremst beint að niður- stöðum skýrslunnar varðandi Norðurlandið, þ.e. frá Blöndu austur að Kröflu. Í stuttu máli má segja að niðurstöður skýrslunnar komi fyllilega heim og saman við þær niðurstöður sem Landsnet hefur áður birt, t.a.m. í skýrslu frá því í mars 2017. Raunar tekur skýrslu- höfundur það fram með afger- andi hætti að góður samhljómur sé á milli niðurstaðnanna. „Rennir það frekari stoðum undir áreiðanleika fyrri grein- inga [23, 24] og þessarar greiningar hvað varðar lengda- takmarkanir háspenntra jarð- strengja“, eins og segir orðrétt í skýrslu ráðuneytanna. Í skýrslunni er bent á að strenglagnir þurfi að skoða í víðu samhengi. Strenglögn í einni línu hefur áhrif á mögulega streng- lengd í annarri línu innan sama svæðis. Við hjá Landsneti höfum bent á að jarðstrengsmögu- leikar í fyrirhugaðri Blöndulínu 3 séu ekki nema 3 – 5 km sé mögulegur „jarð- strengskvóti“ í Hóla- sandslínu 3 nýttur til þess að fullnægja skilyrðum í stefnu stjórnvalda um lagningu raflína (þ.e. í grennd við Akureyrarflugvöll). Nýja skýrslan staðfestir þetta með afgerandi hætti. Í raun má segja að skýrslan staðfesti það að svigrúm til jarðstrengslagna í nýrri 220 kV byggðalínu sé það takmarkað að það eigi fyrst og fremst að nýta til þess að uppfylla stefnu stjórnvalda um raflínulagnir. Meginstefnan eigi að vera sú að 220 kV meginflutningskerfið sé í lofti. Jarðstrengir nýtast mun betur á lægri spennustigum. Það hefur Landsnet bent á marg- sinnis og það er staðfest í skýrslu ráðuneytanna. Til að mynda segir í skýrslunni að á meðan möguleg jarðstrengslengd í Blöndulínu 3 (220 kV) sé á bilinu tæpir 4 til rúmir 5 km, sé mögulegt að leggja 19 – 32 km af Rangárvallalínu (milli Akur- eyrar og Varmahlíðar) eða 32 km af Blöndulínu 1 (milli Varmahlíðar og Blöndu) í jarðstreng. Báðar þessar síðar- töldu línur eru á 132 kV. Þessi skýrsla er afar mikilvægt innlegg í vinnuna við að byggja upp traust og öruggt flutnings- kerfi. Magni Þór Pálsson verkefnastjóri rannsókna hjá Landsneti AÐSENT : Magni Þór Pálsson skrifar Jarðstrengslagnir í meginflutningskerfinu á Norðurlandi 4 01/2020

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.