Feykir


Feykir - 08.01.2020, Side 8

Feykir - 08.01.2020, Side 8
Héraðsbókavörður haustið 1976, ásamt umsjón með rekstri Safnahússins. Eftir þetta urðu samskipti okkar Kristmundar mikil og stöðug. Nú vil ég taka skýrt fram að Kristmundur var mér afar vinsamlegur alla tíð þótt hans háttur væri á stundum að byrja mál sitt glannalega og láta vaða á súðum. Hann var mjög hjálpsamur og greiðvikinn og hlýr undir skrápnum. En hann var náttúrlega hinn gamalreyndi fræðimaður með yfirburða þekkingu og kunni að leysa úr flestum fræðavanda en ég var auðvitað sem hver annar krakki sem var að byrja á núlli. Honum fannst réttilega að hann bæri nokkra ábyrgð á mér og vildi ógjarna að ég yrði mér til skammar. Hann tók mig strax á hné sér í óeiginlegri merkingu og tjáði mér hreinskilnislega að ég mætti engar ritsmíðar láta frá mér fara nema sýna sér þær fyrst, því að ég gæti auðvitað ekkert skrifað. Það var mikið rétt og gerði ég þetta að sjálfsögðu trúlega í fyrstu en slælegar eftir því sem tímar liðu. Hann las skrif mín og reif þau niður ef svo má segja. Benti mér á endurtekningar í orðanotkun og kauðalega setningaskipan, fann að orðum sem höfðu sum tíðkast í málinu hundruðir ára og sagði að þetta væri bara danska. Til dæmis mátti ég ekki skrifa brúka eða kannski, og alls ekki máski, heldur ef til vill. En ef honum fannst að ef til vill hefði hann gengið heldur langt í gagnrýninni fór hann að benda á atriði sem væru nú bara ágæt, til að rústa ekki algerlega sjálfsvirðingu mína. Þessi skólun varð mér tvímælalaust til mikils gagns og leiðbeiningar, þótt ég hafi aldrei komist með tærnar þar sem hann hafði hælana, enda varla von til þar sem Kristmundur hefur ótvírætt staðið í fremstu röð hvað varðar meðferð íslensks ritmáls. i Um leið og ég sendi aðstand- endum Kristmundar hugheilar kveðjur langar mig að ávarpa beinum orðum vin minn og fóstra í fræðunum: Kristmundur minn! Ég þakka þér allar stundir sem við höfum átt saman að sælda. Ég vildi ekki hafa misst af kynningunni við þig. Þú vildir gjarnan gera úr mér nýtilegan skrifara. Það er annarra að dæma um hvort og hvernig það hefur tekist. Því sem ég hef klúðrað er ekki um að sakast við þig. – En þú reyndir. Hjalti Pálsson fv. héraðsskjalavörður og ferðamenn sem fóru um heiðina. Þetta blað er kannski ekki merkilegt bókmenntaverk en vísast er þetta eina blað á Íslandi sem gefið hefur verið út í óbyggðum og það er miklu fágætara en Guðbrandsbiblía. Einungis eru til örfá heil eintök í heiminum. Þegar ég ætlaði að fletta upp hjá alvitrum Google nafninu Heiðarbúinn fékk ég aðeins: Heiðarbúinn – Bílablað 2007, Heiðar búinn að loka dansskólanum og 2.2 milljarða gjaldþrot Heiðarbúa. – Eða eitthvað annað ámóta. Kristmundur var kjörinn heiðursfélagi Sögufélags Skag- firðinga árið 2008. Það var því „sjálfgerður sili“ – orðtak sem Kristmundur notaði stundum – að Sögufélagið gæfi út síðustu bók þessa merka rithöfundar. Bókin kom út á aldarafmæli höfundar undir nafninu Í barnsminni. Það mun fágætur viðburður að út komi bók eftir 100 ára gamlan mann, að honum lifandi. Hann lauk reyndar við bókina um það bil sem hann var 86 ára en það eru engin ellimörk á frásöginni; var enda búinn að hafa hana í deiglunni einhvern tíma þar á undan. Þetta er líklega skemmtilegasta bók sem Kristmundur ritaði. Þar bregður höfundur upp mörgum kátbroslegum myndum frá fyrstu árum sínum á Mælifelli, margar þeirra mótaðar af snilld, t.d. af fóstru hans, móður séra Tryggva, þegar hann var að leggja fyrir hana erfiðar spurningar um lífið og tilveruna. Þegar ég fer að rifja upp kynni mín við Kristmund Bjarnason er yfir langan veg að líta. Þau má rekja aftur til ársins 1973 þegar ég fór að venja komur mínar á Héraðsskjalasafn Skag- firðinga, m.a. að leita efnis í lokaritgerð í sagnfræði við háskólann. Það varð afdrifaríkt, leiddi til þess að Kristmundur fékk mér efni til lokaritgerðar í sagnfræði við háskólann og studdi við heimildaöflun. Þetta hafði svo fleiri afleiðingar. Sumarið 1976 var svo komið að ég sá mig knúinn til að fara að axla ábyrgð á lífi mínu og fá mér vinnu, farinn að nálgast þrítugt. Þá var laus staða bókavarðar hjá héraðsbókasafninu og Kristmundur skjalavörður, sem þá var í stjórn safnanna, fékk þá hugmynd að ég gæti hugsanlega dugað sem bókavörður, og ég er þess fullviss að hann hefur sannfært Kára Jónsson formann Safnahússtjórnar. Þetta leiddi til þess að ég gerðist Hjalti afhendir Kristmundi afmælisritið Gloria Kristmundi sem Sögufélagið gaf úr í tilefni níræðisafmælis hans árið 2009. MYND: ÍSAK BRAGASON Hlíf Árnadóttir og Kristmundur Bjarnason. Mynd frá 1999. MYND: STEFÁN PEDERSEN www.skagafjordur.is Álagning fasteignagjalda í Sveitarfélaginu Skagafirði árið 2020 Álagning – breytingar – innheimta Þess er óskað að ábendingar um breytingar og leiðréttingar á álagningu eða innheimtu berist til sveitarfélagsins eftir einhverri eftirtalinna leiða; í gegnum Íbúagáttina, símleiðis í síma 455 6000 eða með tölvupósti á netfangið innheimta@skagafjordur.is Álagningarseðlar Álagningarseðlar fasteignagjalda verða ekki sendir bréfleiðis nema þess sé óskað. Vinsamlegast tilkynnið það sem fyrst. Allir gjaldendur, lögaðilar og einstaklingar, geta nálgast rafræna útgáfu álagningar- seðilsins í Íbúagáttinni og á vefsíðu island.is undir „Mínar síður“. Gjalddagar Gjalddagar fasteignagjaldanna verða níu frá 1. febrúar til og með 1. október 2020. Hægt er að fá að greiða öll gjöldin á einum gjalddaga 1. maí 2020 eða fyrr séu þau jöfn eða umfram 25.000 kr. Sækja verður um það fyrir 18. janúar 2020. Greiðslumátar • Beingreiðslur Innheimtur greiddar með beingreiðslum af bankareikningum greiðenda. Vinsamlegast hafið samband við þjónustufulltrúa í viðkomandi banka til að virkja þennan kost. • Boðgreiðslur Tilkynna þarf til sveitarfélagsins ef óskað er eftir að greiða fasteignagjöld með kreditkorti. Þetta á einungis við þá sem eru í fyrsta sinn að óska eftir þessum greiðslumáta fasteignagjalda. Óska þarf eftir breytingu á greiðslumáta fyrir 18. janúar 2020. • Greiðsluseðlar í tölvupósti. Greiðsluseðill sendur í tölvupósti og birtist einnig í heimabönkum. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á netfangið innheimta@skagafjordur.is sé þess óskað fyrir 18. janúar 2020. • Greiðsluseðlar Innheimtur greiddar með heimsendum greiðsluseðlum. Hvatt er til þess að aðrir greiðslukostir séu notaðir. Elli- og örorkulífeyrisþegar Lækkun fasteignaskatts á íbúðum tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega eru reiknuð við álagningu til bráðabirgða og er stuðst við tekjur samkvæmt skattframtölum 2019 vegna tekna ársins 2018. Endanlegur útreikningur fer fram þegar álagningu 2020, vegna tekna ársins 2019 er lokið. Afslátturinn er hlutfallslegur að teknu tilliti til allra skattskyldra tekna skv. skattframtali 2020. Ekki er þörf á að sækja um þennan afslátt. Frekari upplýsingar Frekari upplýsingar eru veittar á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið innheimta@skagafjordur.is eða hringja í síma 455 6000. Sauðárkróki 8. janúar 2020 Sveitastjóri 8 01/2020

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.