Feykir


Feykir - 15.01.2020, Blaðsíða 4

Feykir - 15.01.2020, Blaðsíða 4
Miðhálendi Íslands hefur að geyma ein stærstu óbyggðu víðerni Evrópu og magnaða náttúru sem fáa lætur ósnortna. Með þjóðgarði gefst einstakt tækifæri til að vernda þessi verðmæti, tryggja aðgengi útivistar- fólks og standa vörð um hefðbundna sjálfbæra nýtingu, auk þess sem aðdráttarafl þjóðgarðs myndi skapa byggðunum tækifæri til atvinnuupp- byggingar og fjölga opinberum störfum í heimabyggð. Þjóðgarð um sameign þjóðarinnar Kveðið er á um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og drög að lagafrumvarpi um Hálendisþjóðgarð eru nú komin í samráðsgátt stjórnvalda. Þar er gengið út frá því sem þverpólitísk nefnd um stofnun þjóðgarðsins lagði til: að mörk þjóðgarðsins myndu miðast við landsvæði sem er nú þegar í sameign þjóðarinnar. Það er að segja; þjóðlendur og svæði sem þegar eru friðlýst á miðhálendinu. Samtals yrði garðurinn um 30% af flatarmáli Íslands, en þess ber að geta að helmingur þess landsvæðis er nú þegar friðlýstur. Margskonar tækifæri Hálendisþjóðgarður yrði stærsti þjóðgarður í Evrópu og einstakur á heimsvísu. Hann myndi vernda ein stærstu óbyggðu víðerni álfunnar og afar sérstæða náttúru. Hálendisþjóðgarður hefði ekki í för með sér að miðhálendinu væri lokað eins og stundum er haldið fram. Eitt af markmiðum þjóðgarðsins er einmitt að auðvelda almenningi að kynnast og njóta náttúru miðhálendisins, menningu þess og sögu. Gert er ráð fyrir að endurheimt raskaðra vistkerfa verði eitt af markmiðum þjóðgarðsins og að m.a. verði unnið að henni í samvinnu og samstarfi við félög og sjálfboðaliða á viðkomandi svæðum, ekki síst bændur sem víða hafa unnið mikilvægt starf við landgræðslu á hálendinu. Hefðbundnar nytjar verða áfram leyfðar innan þjóðgarðsins, svo sem búfjárbeit, fuglaveiði, hreindýraveiði og veiði í ám og vötnum. Gerð er krafa um sjálfbæra nýtingu þessara auðlinda. Vatnajökulsþjóðgarður, þjóðgarðurinn Snæ- fellsjökull og þjóðgarðurinn á Þingvöllum hafa glögglega sýnt að þjóðgarðar hafa mikið að- dráttarafl. Þeir eru mikilvægir til að vernda náttúru, sögu og menningu, en skila um leið efnahagslegum ávinningi. Þeir skapa störf í nærumhverfi sínu. Ætla má að það myndi Hálendisþjóðgarður líka gera. Þar fyrir utan yrði hann stærsta framlag Íslands til náttúruverndar í heiminum fram til þessa. Hvað með virkjanir? Virkjanir hafa verið bitbein stjórnmálanna og samfélagslegrar umræðu í langan tíma. Með frumvarpsdrögum um Hálendisþjóðgarð er gerð tilraun til þess að sætta sjónarmið um virkjanir inni á hálendinu. Lagt er til að þær leikreglur sem Alþingi setti með lögum um vernd og orkunýtingu landsvæða (öðru nafni rammaáætlun) verði virtar, en einnig tekið tillit þeirra leikreglna sem þjóðgarður skapar. Hægt verði að meta þær virkjunar- hugmyndir inni á miðhálendinu sem þegar hafa komið fram og eru til skoðunar í núverandi rammaáætlun. Hvort af þeim virkjunum verður ræðst hins vegar af strangari kröfum en samkvæmt núgildandi löggjöf, enda svæðin innan þjóðgarðs. M.a. verði horft til þess hvort virkjunarhugmynd sé á röskuðu eða óröskuðu svæði. Nýjar virkjunarhugmyndir verði hins vegar ekki teknar til skoðunar og þannig dregin lína í sandinn við þriðja áfanga rammaáætlunar. Hvað með skipulagsábyrgð sveitarfélaganna? Með Hálendisþjóðgarði verður hægt að ná utan um skipulag miðhálendisins í heild sinni. Því hefur verið haldið fram að með stofnun Hálendis- þjóðgarðs væri skipulagsvaldið á hálendinu tekið af sveitarfélögum á svæðinu. Það er ekki rétt. Sveitarfélög munu áfram vera ráðandi í skipu- lagsmálum þessa svæðis. Breytingin yrði hins vegar sú að skipulagsáætlanir sveitarfélaga myndu verða bundnar af því sem fram kæmi í stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins. Sú áætlun er unnin af umdæmisráðum og stjórn þjóðgarðsins, en þar situr sveitarstjórnarfólk í meirihluta, auk fleiri hagsmunaaðila. Væri þá öllu fjarstýrt að sunnan? Nei. Gert er ráð fyrir að stjórnun og umsýsla þjóðgarðsins verði ekki í Reykjavík heldur dreift um rekstrarsvæðin og að þar verði starfsstöðvum komið upp. Stjórnskipulag þjóðgarðsins felur í sér að ríki, sveitarfélög og hagaðilar koma sameiginlega að stefnumótun og stjórnun þjóðgarðsins. Meirihluti stjórnarmanna verða kjörnir fulltrúar þeirra sveitarfélaga sem ná inn á mið- hálendið en í stjórninni verða einnig fulltrúar ríkis, ferðaþjónustu, umhverfisverndar- og útivistarsamtaka og Bændasamtaka Íslands. Hugmyndin er sú að þjóðgarðinum verði skipt upp í sex rekstrarsvæði og svokölluð umdæmis- ráð fari með stefnumótun hvers svæðis. Ný stofnun, Þjóðgarðastofnun, myndi sinna dag- legum rekstri. Að lokum Í vor mun ég mæla fyrir frumvarpi á Alþingi um Hálendisþjóðgarð. Þessa dagana er ég að kynna frumvarpsdrögin í kringum landið. Að mínu viti eru ótal tækifæri fólgin í stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu, hvort sem litið er til náttúru- verndar, fjölbreyttrar útivistar eða eflingar opinberra starfa og ferðaþjónustu á lands- byggðinni. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra AÐSENT | Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Hálendisþjóðgarður – af hverju og hvernig? Þetta er rjetta nafnið, en ekki Klömbrur, eins og nú er alment framborið. Á hinn bóginn er nafnið vanalega ritað rjett í yngri sem fornum heimildarritum. Þar á meðal má elzt nefna tíundarskrá Breiðabólstaðar, rituð 1344: Klombr (DI. V. 2. [Klambrarbæir 4 alls á landinu]) (ö er hvergi ritað í skránni, þótt það hljóð komi þar annars fyrir). Í „Harastaðabrjefinu stóra“, eins og Á. M. kallar það og samið er 1372, er komist svo að orði: „ ... Oddur (á)skildi sjer beit og torfskurd í Harrastada yörd medan hann byggi í Klömbr.“ (DI. III. 275., Hjer sjest, að þgf. eint. hefir verið Klömbur, en ekki Klömbrum, eins og nú tíðkast, og komið úr þgfallsmynd flt. Klömbrum. Árið 1505 er nafnið skrifað eins í Löggjafarbrjefi Jóns Sigmundssonar, sem ánafnar þá Vilborgu dóttur sinni „Huol og Klombr“. (DI. VII. 758.) Í afriti frá 1510 er það og ritað eins. (DI. ViII. 720.) Fleiri staði mætti færa til, en þess er engin þörf. Rjett er að benda á, að árið 1569 finst stafsetningin Klaumbur (Brjefab. G. Þorl. I. 273, í Tíundarskrá Hólastóls), er sýnir að þá hefir ö-hljóðið verið fast orðið í nafninu. Eignarf. hefir verið Klambrar: Sbr. „Klambrarland“ í brjefi frá 1318 (DI. II. 431) og eins Klambrar 1332. (DI. II. 678.) Klambraland, í brjefi frá 1371, er vafalítið misritun. (DI. III. 259. Tr.skr.) Eignarfallsmynd orðsins sjest líka af Víga-Glúmssögu (bls. 72): „ .. ok mun klambrarveggrinn ganga, ef fast er fylgt“. Þetta sýnir þá ótvírætt, að eint. hefir verið Klömbur (eða Klombur elzt) í öllum föllum nema e.f. Klambrar. Og þaðan stafar þetta innskotna r, sem tíðkast í nf. í nútíðarframburði. Nefnif. flt. var klambrar í fornmáli, en í nútíðarmáli er það rjett: Klambrir. Klömbur beygist því eins og fjöður - fjaðrar - fjaðrir. (Klömbur - klambrir.) Orðið klömbur er komið af germanska orðinu klam, sem þýðir (kletta)þrengsli, lat. glomus sbr. e. climban = klifra, sem er rótskylt. Í fornmáli þýddi og klömbr (kvk.) þrengsli (í nútíðarmáli hefir það verið notað yfir klípa, vandræði, sbr. þessi orð líkneskjusmiðsins í „Eldingu“ eftir Torfhildi Hólm: „Óvíst að mjer takist að vinda mig úr klömbur þessari“ [bls. 520]. Beygingin er rjett), og leifar þeirrar merkingar finnast enn í norsku, því þar tíðkast orðið í þessum afbrigðilegu myndum: Klomber, klomr, klomra, klaammer o.fl. sem merkir þröngar dalskorur eða klettaglufur (Sbr. Torp: undir orðin: Klemba, klomber, klomra), sbr. sæ. klämmer: þröngt gil eða (kletta-)gjá, sem myndast hefir af grjótskriðum. Þýzka orðið Klamme, sem bæði þýðir klemma (verkfæri) og hamraþrengsli, er af sömu rót runnið. Íslenzka orðið klemma er stofn- skylt klömbr og sömuleiðis s. klambra, sbr. talsh. að klambra e-ð saman, þ.e. festa (klemma) saman. Bæjarnafnið Klömbur þýðir því (kletta)þrengsli, og það er í góðu samræmi við landslag hjá Klömbur í Vesturhópi. Bærinn stendur rjett framan við mynnið á Ormsdal, er liggur vestur í Vatnsdalsfjöllin, og beggja megin við dalsopið eru klettar, og þrengjast því ofar sem dregur í dalinn. Virðist það vera, sjeð frá bænum, líkt fleygmynduðum hamraþrengslum. Loks má benda á það, að Klömbur(hnaus) mun hafa fengið nafn sitt af hnausflaginu, sem þrengist saman til annars endans, og hefir verið „klömbur“lagað. (Klömbrur kölluðust eins og kunnugt er, litlar (leggja)klemmur sem notaðar voru til að halda ýmsum hlutum föstum t.d. við skinnasaum (sbr. Þjóð- menjasafn Íslands bls. 95). Er það sama orðið og klömbur, en afbakað.) Vafalítið mun landslag vera svipað í nánd við aðra Klambrarbæi landsins, þótt ekki hafi jeg vissu um það. Klömbur í Vesturhópi TORSKILIN BÆJARNÖFN | palli@feykir.is RANNSÓKNIR OG LEIÐRÉTTINGAR MARGEIRS JÓNSSONAR Klömbur (eða Klömbrur) var sett á fornleifaskrá 7. janúar 1982 og fært á lista yfir friðuð hús á fundi Húsafriðunarnefndar 15. júlí 2011. Júlíus Halldórsson héraðslæknir lét byggja íbúðarhúsið að Klömbrum en ekki er vitað nákvæmlega hvenær það var byggt (líklega á árunum frá 1880 til 1885), né hver hinn snjalli steinsmiður var segir á vef Minjastofnunar. Samnefnt býli var í Reykjavík sem Maggi Júl. Magnús, læknir og borgarfulltrúi, lét byggja árið 1925 á landi rétt austan við svæðið þar sem nú er hverfið Norðurmýri í Reykjavík. Nafn býlisins var dregið af fæðingarbæ Magga, að Klömbrum í Vesturhópi í Vestur- Húnavatnssýslu. Klambratún í Reykjavík er dregið af nafni bæjarins. MYND AF NETINU. 4 02/2020

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.