Feykir


Feykir - 15.01.2020, Blaðsíða 12

Feykir - 15.01.2020, Blaðsíða 12
Héldu litlu jólin í Reiðhöllinni Svaðastöðum Hestar og menn í jólaskapi Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 02 TBL 15. janúar 2020 40. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Það var líf og fjör á litlu jólunum í Reiðhöllinni Svaðastöðum þann 19. desember. MYNDIR: PF Fyrir jólin komu saman í reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki nokkrir skjólstæðingar Iðju hæfingar og brugðu sér á hestbak, og héldu sín litlu jól með veitingum og jólastemningu. Alla jafna nýta tólf einstaklingar reiðþjálfun sem boðið er upp á og þá meðtalið frá Árskóla, Fjölbraut og Skammtímadvöl. Að sögn Jónínu Gunnarsdóttur, forstöðumanns Iðju, kom sú hugmynd upp fyrir ári að gera eitthvað öðruvísi og skemmtilegt í reiðþjálfun í desember og mæltist sú uppákoman vel fyrir þannig að ákveðið var að endurtaka leikinn fyrir þessi jól. „Hestar og menn mættu með góða skapið og jólasveinahúfur eins og sést á myndunum. Boðið var upp á kaffi, kakó og kökur fyrir fólkið okkar svo og aðstandendur sem vildu koma og kynna sér reiðþjálfunina. Einnig voru spiluð jólalög og jók það enn meir á jólastemninguna í höllinni.“ Jónína segir reiðþjálfun fyrir fatlað fólk vera þjálfunaraðferð sem notuð hefur verið víða um heim á undanförnum árum með athyglisverðum árangri. Þjálfunin gengur í stórum dráttum út á það að nýta sér hreyfingar hestsins til að þjálfa upp vöðva, auka jafnvægi og samhæfingu líkamans, bæta líkamsvitund og stuðla þannig að bættri sjálfsmynd og auknu sjálfstrausti einstaklingsins. „Erlendar rannsóknir sýna að áhrif meðferðarinnar á hreyfifærni eru m.a. aukinn liðleiki í neðri hluta líkamans, bætt samhæfing, betri höfuð- og bolstjórn, bætt jafnvægisviðbrögð og dýpri öndun. Auk þess minnkar vöðvaspenna og orkunotkun og grófhreyfifærni eykst hjá einstaklingum með t.d. CP (Cerebral Palsy, heilalömun). Hvert skref hjá hestinum hreyfir (getur hreyft) um það bil 300 vöðva hjá þeim sem er á baki. Hreyfingar hestsins ýta undir eðlilegar hreyfingar mannslíkamans, t.d. láta gönguhreyfingar hestsins mjaðmir knapans hreyfast á mjög svipaðan hátt og þegar við göngum. Hreyfingarnar og hlýjan frá hestinum mýkir líka stífa vöðva knapans, eykur slökun, styrkir alla litlu mikilvægu vöðvana meðfram hryggsúlunni og hjálpar til við að bæta jafnvægi. Að gera æfingar á hestbaki meðan hesturinn er á hreyfingu er mikil kúnst og reynir mikið á jafnvægið svo og tengslin við hestinn,“ segir Jónína og bætir við að íslenski hesturinn þyki sérlega vel fallinn til reiðþjálfunar fatlaðs fólks og ræður þar bæði bygging hans og eðliseiginleikar. Hann sé fremur smávaxinn með góða lund og ólíkar gangtegundir hans séu gagnlegar við þjálfun. „Frá upphafi hefur einstaklingum sem ekki komast Garnaveiki staðfest á Reykjum Húnavatnshreppur Garnaveiki var staðfest á bænum Reykjum í Húna- vatnshreppi skömmu fyrir jól. Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að sjúkdómurinn hefur greinst í sauðfé á tveimur öðrum bæjum í Húna- og Skagahólfi síðastliðin tíu ár. Garnaveiki er ólæknandi smitsjúkdómur í jórturdýrum en hægt er að verja sauðfé og geitur fyrir sjúkdómnum með bólusetningu og halda smitálagi í lágmarki. Á bæjum þeim sem garnaveiki greinist á gilda ýmsar takmarkanir sem lúta að því að hindra smitdreifingu. Í tilkynningu Matvælastofnunar segir að tilfellið hafi uppgötvast eftir að bóndi, í samráði við dýralækni, lét héraðsdýralækni Matvælastofnunar vita. Kindin, sem var rúmlega 5 vetra, sýndi einkenni sjúkdómsins og var aflífuð. Sýni voru tekin og send til greiningar á Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum. Reyndust þau jákvæð með tilliti til garnaveiki. Einnig voru sýni tekin til rannsóknar á riðuveiki en þau voru neikvæð. /FE sjálfir á bak verið lyft með handafli en í febrúar á síðasta ári kom viðurkenndur lyftubúnaður frá Öryggismiðstöðinni í reiðhöllina. Búnaðurinn og uppsetning hans var keyptur fyrir gjafafé frá Sambandi skagfirskra kvenna, Rebekkustúku Oddfellow og einstaklingum en allur búnaður er eign Iðju. Með tilkomu lyftubúnaðarins jókst öryggi bæði notenda og starfsfólks til muna þar sem ekki þarf lengur að nota handaflið. Okkur telst til að þetta sé eina reiðhöllin á landinu, enn sem komið er, sem er með slíkan viðurkenndan búnað til að lyfta fólki.“ Reiðþjálfun fatlaðs fólks hefur verið starfrækt í Skagafirði frá árinu 2000 en verkefnið hóst í kjölfar námskeiðs sem haldið var þá um haustið. Aðilar frá íþróttafélagi fatlaðs fólks svo og heimamenn lögðu grunninn að því starfi sem hefur staðið nær óslitið síðan yfir vetrartímann. Haldið er utan um verkefnið frá Iðju en það var í upphafi tengt starfsseminni sem eitt af tilboðum í dagsskipulagi til þjálfunar og dægrastyttingar en síðast en ekki síst til hreyfiþjálfunar þeirra einstaklinga sem það vilja. „Alveg frá upphafi hefur Ingimar Pálsson lagt til hesta svo og ýmsan búnað til verkefnisins auk þess sem hann hefur verið með nánast allan tímann sjálfur. Starfsmenn Iðju sáu um þjálfunina að mestu ásamt Ingimar lengi framan af en síðustu ár hefur Inga Dóra, dóttir Ingimars, séð um þjálfunina og þróað hana ásamt afar áhugasömum starfsmönnum Iðju sem eru henni til aðstoðar. Þess má geta að Inga Dóra er með leiðbeinandaréttindi frá Hólaskóla. Á haustdögum bættist Annette Sanchez svo í hópinn en hún er sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfun Sigurveigar í Þreksport. Annette hefur starfað við sjúkraþjálfun á hestbaki (Handikap riding) til fjölda ára og er lærð í þeim fræðum. Það er mikill fengur að fá hana til liðs við okkar góða hóp en við viljum ásamt Anette koma því á framfæri og með orðum hennar „að Inga Dóra og Ingimar eru að gera frábæra hluti, vinna og af líkama og sál“. Þau eiga miklar þakkir skildar fyrir þeirra góða starf sem væri alls ekki hægt án þeirra og dásamlegu hestanna þeirra.“ /PF Guðjón Ólafur klár í slaginn. Hjalti kominn á bak svo: Áfram gakk! Það er fjör á hestbaki. Nýja lyftan leisti Ingimar Páls af hólmi.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.