Feykir


Feykir - 05.02.2020, Side 4

Feykir - 05.02.2020, Side 4
Í Skagafirði höfum við þrjá frábæra leikskóla þar sem um 80 starfsmenn kenna 240 börnum. Í leikskólunum er unnið faglegt og metnaðarfullt starf sem undirbýr börnin okkar undir lífið og áframhaldandi nám. Þó að leikskólarnir okkar séu frábærar mennta- stofnanir þá felast áskoranir í því að að reka svo stórar einingar í kviku samfélagi. Leikskólarnir hafa undanfarið glímt við margs konar áskoranir, meðal annars manneklu og fækkun á menntuðu starfsfólki. Ljóst er að með nýju leyfisbréfi sem tók gildi nú um áramótin geti sú staða jafnvel versnað. Af þeim sökum óskaði fræðslunefnd eftir því síðastliðið haust að skip- aður yrði starfshópur um starfsumhverfi leikskól- anna. Var starfshópurinn skipaður stjórnendum, deildarstjórum og kenn- urum úr leikskólum Skagafjarðar auk starfsmanna fræðsluþjónustu. Starfs- hópurinn vann hratt og vel og skilaði niðurstöðum til nefndarinnar í lok síðasta árs. Þær tillögur starfshópsins sem við í meirihluta fræðslunefndar höfum lagt til að komi nú til framkvæmda eru fjölbreyttar. Við höfum þegar sam- þykkt að undirbúningstími verði aukinn og samræmdur á öllum deild- um. Að starfsmaður Þjónustumið- stöðvar sinni starfi húsvarðar í allt að fjóra tíma á viku í Ársölum. Að milli jóla og nýárs verði lágmarksstarfsemi í Ársölum og leitað eftir skráningu barna þá daga. Á móti verður foreldrum boðið upp á niðurfellingu leikskóla- gjalda fyrir þessa daga. Einnig verður horft til til- lagna hópsins um breytt rýmisviðmið við breytingar á húsnæði eða nýbyggingar hjá leikskólum í Skagafirði. Ljóst er að allar tillög- urnar sem starfshópurinn lagði fram eru mikilvægar en mest áhersla var lögð á tillögu hópsins um styttingu vinnuvikunnar. Tillagan hljóðaði upp á að starfs- maður leikskólans í 100% starfi fengi 3ja tíma styttingu vinnutímans á viku og myndi því ljúka sínum vinnudegi kl. 13:00 einn dag í viku. Við teljum að með þessu fyrirkomulagi aukist sveigjanleiki í starfi og að starfsánægja og almenn vellíðan aukist sömuleiðis. Vonir standa til að fyrirkomulagið auki ásókn í 100% starf, að auðveldara verði að ráða inn nýja starfmenn, starfsmannavelta minnki og að minna verði um tímabundna fjarveru starfs- manna á vinnutíma. Er það okkur, fulltrúum meirihlutans í fræðslu- nefnd, mikil ánægja að tryggja framgang þessarar tillögu og að hún verði að veruleika nú í sumar. Með tilrauna-verkefni af þessu tagi verður hægt að meta markvisst árangurinn af styttingu vinnuvikunnar og þau áhrif sem hún hefur á starfsánægju og fleiri þætti. Tilraunaverkefnið hefst í síðasta lagi 1. maí og verður út árið með möguleika á framlengingu gefi það góða raun. Mikil áhersla hefur verið lögð á styttingu vinnuvikunnar í samfélaginu okkar á undanförnum misserum. Íslendingar vinna að jafnaði mun lengri vinnudag en þær þjóðir sem við berum okkur saman við. Teljum við að með þessari aðgerð getum við gert starfið í leikskólum Skagafjarðar fjölskylduvænna. Rannsóknir sýna einnig að styttri vinnuvika leiði til aukinnar ánægju í starfi og aukinna afkasta. Hefur töluverð reynsla fengist í sambærilegum verkefnum, t.d. hjá Reykjavíkurborg. Niðurstöður til- raunaverkefnisins hjá Reykjavíkur- borg sýna jákvæð áhrif verkefnisins t.d. aukna starfsánægju, bætta andlega og líkamlega heilsu auk þess sem stytting vinnuvikunnar auðveldaði barnafjölskyldum að samræma vinnu og einkalíf. Það er okkur í meirihlutanum mikil ánægja að leggja fram þetta metnaðarfulla verkefni um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Skaga- fjarðar ásamt öðrum aðgerðum til að bæta starfsumhverfi starfsmanna, kennara og nemenda leikskólans. Verkefnið er vel ígrundað, útfært og fjármagnað. Að verkefninu hafa komið fjölmargir einstaklingar og þökkum við starfshópnum, starfs- mönnum sveitarfélagsins og öðrum sem að verkefninu hafa komið fyrir þeirra framlag. Það er ósk okkar að verkefnið skili þeim jákvæðu áhrifum sem vonir standa til og að það muni styrkja fag- legt starf leikskólanna okkar enn frekar. Það er mikilvægt að búa vel að starfsfólki leikskólans, að þar sé okkar frábæra starfsfólk að hlúa að fram- tíðinni, börnunum okkar, og að í leik- skólunum okkar líði öllum vel. Laufey Kristín Skúladóttir, fulltrúi Framsóknarflokks og formaður fræðslunefndar Elín Árdís Björnsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks og varaformaður fræðslunefndar AÐSENT | Laufey Kristín Skúladóttir og Elín Árdís Björnsdóttir skrifa Leikskólar í Skagafirði og tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar Laugardaginn 6. febrúar 2016 í íþróttahúsinu á Sauðárkróki Hljómsveit Matta Matt. ásamt Magna og Voice stjörnunni Ellerti Jóhannssyni Kveðja, árgangur 1963. Laugardaginn 8. febrúar í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Hljómsveit kvöldsins spilar. 18 ára aldurstakmark. Húsið opnar kl. 19:30. Borðhald hefst kl. 20:00. Kveðja frá árgangi 1967 KRÓKSBLÓT 2020 Ný gámasvæði í Skagafirði Verða mönnuð á opnunartímum Á vegum umhverfis- og samgöngu- nefndar Svf. Skagafjarðar er unnið að stefnumótun varðandi sorphirðu í dreifbýli en ljóst þykir að leita þarf leiða til að minnka útgjöld. Ellegar þarf að afla aukinna tekna í mála- flokknum sem rekinn hefur verið með miklum halla undanfarin ár og er bilið milli gjalda og tekna mun meira í dreifbýli en þéttbýli. Þetta kemur fram í svari byggðarráðs til Álfhildar Leifsdóttur sem spurði m.a. hver stefna sveitarfélagsins væri hvað varði sorphirðu í dreifbýli. „Nú í ár verður unnið að uppbyggingu gámasvæðis við Varmahlíð en fyrir áramót var skrifað undir verksamning við lægstbjóðanda vegna verksins. Einnig er stefnt á að klára hönnun og hefja vinnu við samskonar svæði á Hofsósi á þessu ári. Ný gámasvæði verða afgirt og þannig útbúin að auka megi flokkunina enn frekar á þeim úrgangi sem þangað berst. Gert er ráð fyrir að svæðin verði mönnuð á opnunartímum en að einnig verði hægt að koma með óflokkað og flokkað sorp utan opnunar- tíma,“ segir í svarinu. /PF Bókasafnið á Hvammstanga Myndverk Halldórs Péturssonar Þann 16. janúar opnaði sýning á Bóka- og héraðsskjalasafninu á Hvammstanga með 17 myndverkum Halldórs Péturssonar úr Grettis sögu. Myndirnar eru gjöf frá Menn- ingarsjóði Sparisjóðs Vestur-Húnavatns- sýslu, sem nýlega var lagður niður. Sýningin mun standa fram á sumar en opnunartími safnsins er frá 12-17 alla virka daga. /PF 4 05/2020

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.