Feykir


Feykir - 05.02.2020, Blaðsíða 7

Feykir - 05.02.2020, Blaðsíða 7
heilsteypt nám, þú þurftir að byrja kl. 5:30 og vera 1½ klukkustund í jógakennslu og síðan í öndunaræfingum, jógaheimspeki, anatomy og fleira. Jóga gengur út á það að tengja saman líkama, hug og sál, sem sagt að vera sáttur við sjálfan sig. Jóga er oft misskilið, allir halda að það séu bara þessar líkamsæfingar, en það er einungis brot af þessu. Þetta eru ekki heldur trúarbrögð, alls ekki, heldur eins konar lífsstíll eða lífsspeki og allt gengur út á að móta hugarfarið og líkamann til þess að geta setið í hugleiðslustöðu með beint bak og krosslagða fætur til að geta hugleitt því þannig finnur maður innri ró og æðri tengingu. Við vorum þarna tvisvar sinnum á dag í einn og hálfan klukkutíma í stífum líkamsæfingum, öndunar- æfingum og ofsa hollu fæði. Einnig fengum við fræðslu um hollt mataræði og hollan lífsstíl, hvenær er best að fara að sofa og vakna til þess að stilla líkamsklukkuna sem best og hvernig maður á að díla við sjálfan sig og samfélagið til þess að verða betri aðili í heiminum. Ég var ofboðslega heppin með kennara, mér fannst fólkið lifa eftir þessu, það var ekki bara að kenna þetta, þannig að fyrir mig opnaðist þarna ný vídd og ég varð í rauninni aldrei sama manneskjan aftur. Svo var náttúrulega hugleiðslan og svona og maður fer þarna í mikið hreinsunarferli. Þú ert á grænmetisfæði og í þessum líkamsæfingum, drekkur ekki kaffi eða te, heldur bara jurtate, þú átt ekki að tala við matarborðið heldur einbeita þér að matnum. Núvitund er náttúrulega gegnum gangandi í þessu öllu saman og það að einbeita sér að því sem líkaminn segir manni. Svo byrjar andlega hreinsunin, í gegnum þessar öndunaræfingar fer maður mikið inn á við og það er klukkutíma hugleiðsla á hverjum degi og slökun. Þá koma upp gamlir hlutir sem maður hefur kannski grafið inni í sér og maður fer að vinna úr. Kennararnir voru alltaf tilbúnir að spjalla og æfðir í þessu þannig að maður gat komið ýmsum draugum út úr kjallaranum og losað sig við þá. Og ég fann líka að þetta fólk, það hvíldi svo í sjálfu sér. Þessir Indverjar eru mjög sérstakt fólk, að vissu leyti geturðu talað við þá um lífið og tilveruna og þeir eiga svör við öllu mögulegu, en síðan eru þeir að leika sér og eru svona kátir og léttir eins og smábörn. Það fannst mér mjög heillandi menning og ég fann mig mikið í því og myndaði vinabönd við þetta fólk.“ Hlín segir að þegar heim var komið hafi lífsstíll hennar verið alveg umsnúinn, hún fór eldsnemma að sofa og vaknaði á hverjum morgni klukkan 5:30. „Ég hef þjáðst af svefnleysi og svefnvandamálum í mörg ár, hef alltaf átt erfitt með að sofna og svoleiðis en það bara lagaðist algjörlega, ég svaf eins og smábarn. Ég þurfti bara að halda þessari reglu, fara snemma að sofa og vakna snemma, stunda síðan jógaæfingar og öndunaræfingar og hugleiða alltaf reglulega, þá bara sá ég eiginlega hvað ég vildi í lífinu, að ég vildi vera í jafnvægi og væntumþykju og friði og ró. Já, það breyttist svolítið umhverfið mitt eftir þetta, sumir vinir sem voru alltaf svona aðeins að ströggla með manni, þeir fóru út og aðrir komu inn sem vildu líka bara ró og frið. Þannig að það var mikil hreinsun svona næstu árin á eftir en allt til bóta,“ segir Hlín sem tók jógað líka inn í hestamennskuna. „Ég fór að kenna nemendum á Hólum eiginlega strax og það vakti mikla lukku og var alltaf mjög vinsælt að koma í jógatíma því að það sem er svo merkilegt við jóga er að hesturinn kemur þér svolítið í núið, þegar þú ert að labba eða að skokka til dæmis, þá er hugurinn að fara hitt og þetta, hann er ekki endilega í líkamanum. En þegar þú ert á hesti tekur hann alla þína athygli, þú ert bara í þér eða í hestinum í rauninni, og einbeittur þar. Þess vegna finna líka margir svona andlegt jafnvægi, þegar þeir eru í kringum hesta.“ Hlín segir að með jóganu verði knapinn líka meðvitaðri um líkamsbeitingu sína og næmi fyrir hestinum. Maður þarf að byrja á að viðurkenna sjálfan sig „Fólk finnur þarna einhverjar nýjar víddir. Öll þessi hugtök sem eru svo mikið uppi í nútíma samfélagi, mindfulness, núvitund og hugleiðsla, þetta á allt sínar rætur í jóga. Nútíma samfélag er svo fast í þessu kaupæði, að speglast í ytri veröldinni, flottur bíll, flott hús, flott föt, allt þarf að vera flott utan frá til þess að fólk viðurkenni þig en spurningin er, ertu að viðurkenna sjálfan þig, og þar þarf maður oft að byrja. Maður segir alltaf, alvöru fegurð kemur innan frá, en það vill oft gleymast af því að þá nær markaðurinn ekki að selja okkur neitt. En ég held að núna sé fólk svolítið tilbúið að grípa þetta og þess vegna er jóga og þessi námskeið tengd núvitund svona vinsæl því hamingjan liggur inni í okkur en ekki fyrir utan. Og fyrir utan að mér finnst gaman að kenna jóga þá nýtist þetta í hestamennskunni líka, ef þér líður vel og þú ert í góðu jafnvægi og líkami þinn er undir góðri stjórn, auðvitað ertu betri hestamaður, auðvitað ertu betri knapi. Það er búið að rannsaka það að hestar hafa rosalega mikla samkennd eins og hundar, hvalir og höfrungar, þeir finna strax hvernig fólki líður og ef við erum ekki undir stjórn út af einhverju, þá finnur hesturinn það.“ Hlín hefur ekki látið við þetta sitja og hefur farið í nokkrar ferðir til viðbótar til Indlands til að stunda jóga. Næst fór hún til Norður- Indlands, til borgarinnar Rishikesh, en þaðan er jóga í rauninni upprunnið og er borgin oft kölluð „The capital of Yoga“ og einnig hefur hún dvalið við suðvesturströndina í þorpi sem heitir Varkala þar sem vinur hennar, einn kennaranna frá Nepal, hefur stofnsett jógaskóla. Hlín segir að óttinn við að ferðast ein hafi fljótt horfið og segir blaðamanni nokkrar skemmtilegar sögur frá ferðum sínum þar sem því miður gefst ekki rúm fyrir hér. Því þrátt fyrir að Ísland og Indland séu trúlega eins ólík og hugsast getur segir Hlín að það sé líklega satt sem kona nokkur frá Þýskalandi sagði við hana áður en hún fór til Indlands í fyrsta skiptið. „Guð minn góður,“ sagði hún, „ertu að fara til Indlands, þú sem ert flutt til Íslands. Ísland er ávanabindandi en það er Indland líka og þú ert að fara þangað, þú verður bara að klóna þig þá.“ „Og það er alveg rétt hjá henni,“ bætir Hlín við, „Indland gerir eitthvað svipað við fólk, ég held að íslenska náttúran og þessi orka sem er í þessu landi [Indlandi] komi manni svona á grunn málsins. Maður þarf bara að lúffa fyrir náttúruöflunum og það lærir maður bæði á Íslandi og Indlandi. Á markaði í Varkala. Með íslenskri stúlku, Ástu Kristensa Steinsen, sem var með Hlín í náminu í Nepal. Í Varkala. Strandjóga með skólanum hjá kennaranum Manoranjan Chand. Kennslustund í Varkala. Fiskinet í Kochi á Suður-Indlandi. 05/2020 7

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.