Feykir - 05.02.2020, Side 10
Besta bíómyndin? Sódóma Reykja-
vík og Kóngavegur. Af hverju? Því
að sótsvartur húmor er bara svo
mikil snilld.
Hvaða íþróttamanni hefurðu mest-
ar mætur á? Fótboltastelpunni
minni, Kristínu Björgu.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir á
þínu heimili? Sparsla stofuvegginn.
Já svo er ég svolítið flink að leggja
hluti frá mér svona hér og þar, sem
er stundum bras þegar ég þarf svo
að finna þá aftur.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Pizza með pylsum
og spagettí, annars er ég hinn
þokkalegasti snillingur í öllum eld-
húsverkum svona þegar ég nenni
því, og já, svo er alltaf snilld að
kunna að elda skyr.
Hættulegasta helgarnammið?
Helgarnammi er ekki hættulegt –
þetta snýst allt um magn.
Hvernig er eggið best? Spælt
báðum megin.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari þínu? Frestunarárátta.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari annarra? Óstundvísi og óheið-
NAFN: Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir.
ÁRGANGUR: 1977.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Sjálfstæð móðir Kristínar Bjargar 16 ára.
BÚSETA: Sauðárkrókur.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Ég er dóttir Gerðar og Gulla
í Geldingaholti sem er í Seyluhreppi hinum forna. Bjó við
þau forréttindi að fá að alast upp í Holtinu með foreldrum og
Jóa bróðir og með ömmu og frændfólki á næsta bæ. Það var
gott að alast upp í sveitinni. Ingimundur faðir minn býr svo
fyrir sunnan og þar á ég tvö systkini, Árna Heimi og Helgu.
STARF / NÁM: Vinn sem sjúkraliði á HSN Sauðárkróki. Í frí-
stundum er ég svo formaður Leikfélags Sauðárkróks.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Það er margt skemmtilegt framundan.
Þorrablótsvertíðin er rétt að hefjast, heimsækja vinafólk
til Danmerkur og svo styttist líka í að æfingatímabil hjá LS
byrji en í Sæluviku Skagfirðinga verður frumflutningur á
leikritinu Á frívaktinni eftir Pétur Guðjónsson. Svo væri
dásamlegt ef eitthvað almennilegt færi að gerast í kjara-
málum heilbrigðisstarfsfólks.
Lulla
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
Hvernig nemandi varstu? Ég hef
alltaf verið alveg ágætis nemandi,
örlítið uppátækjasöm í heimilis-
fræði og fékk svo sem ekki mæt-
ingaverðlaun í íþróttum en var alltaf
með miða frá pabba sem voru nýjar
fréttir fyrir mömmu í foreldraviðtali á
vorin en alltaf endaði skólaárið með
ísferð og allir sáttir. Í fjölbraut og
VMA hélt ég áfram að vera ágætis
nemandi og hefur mér tekist að
útskrifast þrisvar með ágætum
vitnisburð
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? Það sem er
eftirminnilegast er hvað vinkonu
minni gekk vel að krjúpa við altarið
í upphlutnum, hlátursköst frá æfing-
unni deginum áður vegna graslauks
og góð veisla.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór? Fyrst ætlaði ég að verða
búðarkona og vinna í Díubúð (KS
Varmahlíð). Svo ætlaði ég að verða
flugfreyja og svo var ég búin að búa
til starfslýsingu sem var blanda af
sálfræðingi og lögfræðingi, eina
sem ég var alveg ákveðin að verða
ekki er reyndar það sem ég starfa
við í dag.
Hvert var uppáhalds leikfangið
þitt þegar þú varst krakki? Bangsi
sem ég dressaði upp í föt af bróðir
mínum (sem var misvinsælt),
búdótið og svo uppstoppaður hrafn.
Besti ilmurinn? Nýslegið gras.
Hvar og hvenær sástu núverandi
maka þinn fyrst? Kannski framtíðar
kristalkúlan svari þessari spurningu
einhvern tímann.
Hvað varstu að hlusta á þegar þú
fékkst bílprófið? Íslensk tónlist
hefur alltaf verið í uppáhaldi og
þar sem ég á afmæli á þorranum
hef ég sennilega verið að hlusta á
Geirmund eða hringdansinn.
Hvernig slakarðu á? Með því að
fara t.d. í nudd, gönguferð eða
klippingu. Einnig finnst ég stundum
í slökun í heitum löndum með
kokteilum og gærunum mínum.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu? Íslenskum þáttaröð-
um og sjúkrahúsþáttum.
arleiki.
Uppáhalds málsháttur eða tilvitn-
un? Ef þú brosir framan í heiminn,
þá brosir heimurinn framan í þig.
Hver er elsta minningin sem þú
átt? Sennilega þegar ég lá hand-
leggsbrotin á FSA þriggja ára á
brúðkaupsdeginum mömmu og
pabba.
Þú vaknar einn morgun í líkama
frægrar manneskju og þarft að
dúsa þar einn dag. Hver værirðu til
í að vera og hvað myndirðu gera?
Geirmundur og myndi henda í besta
sveitaball ever.
Hver er uppáhalds bókin þín og/
eða rithöfundur? Held mikið upp
á Stefán Mána og Astrid Lindgren,
Bæði skemmtilegir höfundar. Svo
eru Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson
og Pétur Guðjónsson í uppáhaldi
sem handritshöfundar. Af hverju?
Ægir hefur skrifað tvö frábær leikrit
fyrir okkur hjá LS og Pétur er að
skrifa handrit sem lofar mjög góðu.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? Nota „passaðu þig“ svolítið
mikið þessa dagana, enda með
barnið mitt í æfingaakstri. Svo
koma alltaf nýir frasar við hvert
æfingatímabil hjá LS þannig að þeir
sem eru virkir núna eru: „Þetta er
alveg rosalegur krani“ og „Þetta er
ofsa góð drulla.“
Hvaða þremur persónum vildirðu
bjóða í draumakvöldverð?
Mömmu, pabba og ömmu, því þau
voru mér afar kær og mikilvæg og
kenndu mér svo margt í skóla lífsins.
Ef þú gætir farið til baka í
tímann, hvert færirðu? Held ég
færi bara aftur í þann tíma þar
sem ég var uppátækjasamur
krakkagrís, sumarkvöld í sveitinni,
fjölskyldusamvera og pönnsur
hjá ömmu eru bara svo góðar
minningar.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni?
Lífsdans Lullfríðar.
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og
réðir hvert hún færi, þá færirðu...
til NY með viðkomu á Tene.
Nefndu eitthvað þrennt sem þér
finnst þú mega til að gera áður
en þú gefur upp öndina: Klára eitt
nám sem ég er alltaf á leiðinni í,
fleiri gæðastundir með fjölskyldu og
vinum og ferðast til fleiri landa.
Það var í upphafi árs að Auður Jónsdóttir, rithöfundur,
setti fram heldur betur áhugavert tíst þar sem hún segir
að ef maður setur ananas í körfuna á ákveðnum tíma í
Hagkaupum á Eiðistorgi sé maður að gefa merki um að
maður sé til í makaskipti.
„Umhyggjusöm vinkona: Ef þú setur ananas í körfuna
þína á ákveðnum tíma í Hagkaup úti á Nesi, þá gefurðu
merki að þú sért til í makaskipta-partí. Það er víst svo mikið
swing-að á Nesinu!“ skrifaði Auður. Á laugardaginn greinir
Kjarninn svo frá að sala á ananas hafi aukist um 27% í
Hagkaupum á Seltjarnarnesi í janúar miðað við sama
mánuð í fyrra.
Allmargir tjáðu sig í kjölfar færslu Auðar, bæði í bundnu
og óbundnu máli, og var Alfreð Guðmundsson á Sauðár-
króki einn þeirra. Segir hann að þetta sé ekki alveg nýtt fyrir
Skagfirðingum, sem nota mun þjóðlegra merki en Sel-
tirningar. Alli orti:
Úti á Nesi sést náttúran skína.
Þar nautnaboð í Hagkaupum hvína.
Þú vilt sénsinn taka
og vilt skipt´ á maka
ef ananas ávöxt munt sýna.
Svona lagað hefur nú viðgengst hér á Sauðárkróki með
öðruvísi hætti í áraraðir:
Á Króknum eru kynórar líka
og kostaboð um tilbreytni ríka.
Í kjörbúð á daginn,
kátur til er í slaginn
ef kviknöktu lærinu flíka. /PF
Makaskiptalimrur
Swing-að á Króknum líka
Lulla / Sigurlaug Dóra sötrar suðrænan svaladrykk.. MYND ÚR EINKASAFNI
10 05/2020