Feykir


Feykir - 05.02.2020, Blaðsíða 10

Feykir - 05.02.2020, Blaðsíða 10
Besta bíómyndin? Sódóma Reykja- vík og Kóngavegur. Af hverju? Því að sótsvartur húmor er bara svo mikil snilld. Hvaða íþróttamanni hefurðu mest- ar mætur á? Fótboltastelpunni minni, Kristínu Björgu. Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Sparsla stofuvegginn. Já svo er ég svolítið flink að leggja hluti frá mér svona hér og þar, sem er stundum bras þegar ég þarf svo að finna þá aftur. Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Pizza með pylsum og spagettí, annars er ég hinn þokkalegasti snillingur í öllum eld- húsverkum svona þegar ég nenni því, og já, svo er alltaf snilld að kunna að elda skyr. Hættulegasta helgarnammið? Helgarnammi er ekki hættulegt – þetta snýst allt um magn. Hvernig er eggið best? Spælt báðum megin. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Frestunarárátta. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Óstundvísi og óheið- NAFN: Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir. ÁRGANGUR: 1977. FJÖLSKYLDUHAGIR: Sjálfstæð móðir Kristínar Bjargar 16 ára. BÚSETA: Sauðárkrókur. HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Ég er dóttir Gerðar og Gulla í Geldingaholti sem er í Seyluhreppi hinum forna. Bjó við þau forréttindi að fá að alast upp í Holtinu með foreldrum og Jóa bróðir og með ömmu og frændfólki á næsta bæ. Það var gott að alast upp í sveitinni. Ingimundur faðir minn býr svo fyrir sunnan og þar á ég tvö systkini, Árna Heimi og Helgu. STARF / NÁM: Vinn sem sjúkraliði á HSN Sauðárkróki. Í frí- stundum er ég svo formaður Leikfélags Sauðárkróks. HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Það er margt skemmtilegt framundan. Þorrablótsvertíðin er rétt að hefjast, heimsækja vinafólk til Danmerkur og svo styttist líka í að æfingatímabil hjá LS byrji en í Sæluviku Skagfirðinga verður frumflutningur á leikritinu Á frívaktinni eftir Pétur Guðjónsson. Svo væri dásamlegt ef eitthvað almennilegt færi að gerast í kjara- málum heilbrigðisstarfsfólks. Lulla ( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is Hvernig nemandi varstu? Ég hef alltaf verið alveg ágætis nemandi, örlítið uppátækjasöm í heimilis- fræði og fékk svo sem ekki mæt- ingaverðlaun í íþróttum en var alltaf með miða frá pabba sem voru nýjar fréttir fyrir mömmu í foreldraviðtali á vorin en alltaf endaði skólaárið með ísferð og allir sáttir. Í fjölbraut og VMA hélt ég áfram að vera ágætis nemandi og hefur mér tekist að útskrifast þrisvar með ágætum vitnisburð Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Það sem er eftirminnilegast er hvað vinkonu minni gekk vel að krjúpa við altarið í upphlutnum, hlátursköst frá æfing- unni deginum áður vegna graslauks og góð veisla. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Fyrst ætlaði ég að verða búðarkona og vinna í Díubúð (KS Varmahlíð). Svo ætlaði ég að verða flugfreyja og svo var ég búin að búa til starfslýsingu sem var blanda af sálfræðingi og lögfræðingi, eina sem ég var alveg ákveðin að verða ekki er reyndar það sem ég starfa við í dag. Hvert var uppáhalds leikfangið þitt þegar þú varst krakki? Bangsi sem ég dressaði upp í föt af bróðir mínum (sem var misvinsælt), búdótið og svo uppstoppaður hrafn. Besti ilmurinn? Nýslegið gras. Hvar og hvenær sástu núverandi maka þinn fyrst? Kannski framtíðar kristalkúlan svari þessari spurningu einhvern tímann. Hvað varstu að hlusta á þegar þú fékkst bílprófið? Íslensk tónlist hefur alltaf verið í uppáhaldi og þar sem ég á afmæli á þorranum hef ég sennilega verið að hlusta á Geirmund eða hringdansinn. Hvernig slakarðu á? Með því að fara t.d. í nudd, gönguferð eða klippingu. Einnig finnst ég stundum í slökun í heitum löndum með kokteilum og gærunum mínum. Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu? Íslenskum þáttaröð- um og sjúkrahúsþáttum. arleiki. Uppáhalds málsháttur eða tilvitn- un? Ef þú brosir framan í heiminn, þá brosir heimurinn framan í þig. Hver er elsta minningin sem þú átt? Sennilega þegar ég lá hand- leggsbrotin á FSA þriggja ára á brúðkaupsdeginum mömmu og pabba. Þú vaknar einn morgun í líkama frægrar manneskju og þarft að dúsa þar einn dag. Hver værirðu til í að vera og hvað myndirðu gera? Geirmundur og myndi henda í besta sveitaball ever. Hver er uppáhalds bókin þín og/ eða rithöfundur? Held mikið upp á Stefán Mána og Astrid Lindgren, Bæði skemmtilegir höfundar. Svo eru Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson og Pétur Guðjónsson í uppáhaldi sem handritshöfundar. Af hverju? Ægir hefur skrifað tvö frábær leikrit fyrir okkur hjá LS og Pétur er að skrifa handrit sem lofar mjög góðu. Orð eða frasi sem þú notar of mikið? Nota „passaðu þig“ svolítið mikið þessa dagana, enda með barnið mitt í æfingaakstri. Svo koma alltaf nýir frasar við hvert æfingatímabil hjá LS þannig að þeir sem eru virkir núna eru: „Þetta er alveg rosalegur krani“ og „Þetta er ofsa góð drulla.“ Hvaða þremur persónum vildirðu bjóða í draumakvöldverð? Mömmu, pabba og ömmu, því þau voru mér afar kær og mikilvæg og kenndu mér svo margt í skóla lífsins. Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert færirðu? Held ég færi bara aftur í þann tíma þar sem ég var uppátækjasamur krakkagrís, sumarkvöld í sveitinni, fjölskyldusamvera og pönnsur hjá ömmu eru bara svo góðar minningar. Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Lífsdans Lullfríðar. Framlenging: Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu... til NY með viðkomu á Tene. Nefndu eitthvað þrennt sem þér finnst þú mega til að gera áður en þú gefur upp öndina: Klára eitt nám sem ég er alltaf á leiðinni í, fleiri gæðastundir með fjölskyldu og vinum og ferðast til fleiri landa. Það var í upphafi árs að Auður Jónsdóttir, rithöfundur, setti fram heldur betur áhugavert tíst þar sem hún segir að ef maður setur ananas í körfuna á ákveðnum tíma í Hagkaupum á Eiðistorgi sé maður að gefa merki um að maður sé til í makaskipti. „Umhyggjusöm vinkona: Ef þú setur ananas í körfuna þína á ákveðnum tíma í Hagkaup úti á Nesi, þá gefurðu merki að þú sért til í makaskipta-partí. Það er víst svo mikið swing-að á Nesinu!“ skrifaði Auður. Á laugardaginn greinir Kjarninn svo frá að sala á ananas hafi aukist um 27% í Hagkaupum á Seltjarnarnesi í janúar miðað við sama mánuð í fyrra. Allmargir tjáðu sig í kjölfar færslu Auðar, bæði í bundnu og óbundnu máli, og var Alfreð Guðmundsson á Sauðár- króki einn þeirra. Segir hann að þetta sé ekki alveg nýtt fyrir Skagfirðingum, sem nota mun þjóðlegra merki en Sel- tirningar. Alli orti: Úti á Nesi sést náttúran skína. Þar nautnaboð í Hagkaupum hvína. Þú vilt sénsinn taka og vilt skipt´ á maka ef ananas ávöxt munt sýna. Svona lagað hefur nú viðgengst hér á Sauðárkróki með öðruvísi hætti í áraraðir: Á Króknum eru kynórar líka og kostaboð um tilbreytni ríka. Í kjörbúð á daginn, kátur til er í slaginn ef kviknöktu lærinu flíka. /PF Makaskiptalimrur Swing-að á Króknum líka Lulla / Sigurlaug Dóra sötrar suðrænan svaladrykk.. MYND ÚR EINKASAFNI 10 05/2020

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.