Feykir


Feykir - 03.06.2020, Side 4

Feykir - 03.06.2020, Side 4
Óhætt er að segja að reynsla mín af sjómennsku hafi mótað mig fyrir lífstíð. Ég fór fyrst á sjóinn fyrir rúmum 30 árum síðan, þá 16 ára gamall. Í dag er ég gríðarlega þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast sjómennskunni ungur, enda kem ég af mikilli sjómannaætt úr Sandgerði. Faðir minn slasaðist alvarlega á sjó og gat því miður ekki stundað sjómennsku aftur. Afleiðingar sjóslyssins hafa ennþá mikil áhrif á líf hans. Sú reynsla hefur fylgt mér alla tíð og skýrir kannski af hverju öryggismál sjómanna hafa alltaf verið mér hugleikin. Gjöfult samstarf Síðustu 12 árin hef ég unnið hjá VÍS við að bæta öryggismenningu á sjó með öflugu forvarnasamstarfi við útgerðir og Slysavarnaskóla sjómanna. Undanfarinn ára- tug höfum við hjá VÍS átt í góðu forvarnasamstarfi við Slysa-varnaskóla sjómanna. Síðasta haust var svo samstarf VÍS við Slysavarnaskóla sjómanna innsiglað til næstu fimm ára — en allir flotgallarnir sem notaðir eru við björgunarkennslu í skólanum eru gjöf frá VÍS. Ég tel það vera mikil forréttindi að vinna við að bæta öryggi sjómanna og er þakklátur fyrir að geta lagt mitt af mörkum. Samvinna og yfirsýn Með samstilltu átaki tekst okkur að útrýma slysum á sjó. Til þess að hægt sé að stuðla að markvissu og sértæku forvarnastarfi — þarf að greina vandann. Mikilvægt er að fá yfirsýn yfir slysin: Hvernig slys eru þetta, hversu oft gerast þau og hversu alvarleg eru þau? Þess vegna höfum við hjá VÍS þróað skráningarkerfi sem kallast ATVIK-sjómenn. Til- gangurinn með ATVIK er að fækka slysum — og stuðla þar með að öruggari vinnu- umhverfi. Við viljum vera hreyfiafl í íslensku samfélagi og viljum hjálpa viðskiptavinum okkar að lenda sjaldnar í slysum. Sjómenn hugmyndaríkir og skapandi Á undanförnum árum hefur orðið gríðarleg þróun í öryggismálum og ekki síst í sjávarútvegi. Sjómenn og útgerðir eru sífellt að leita nýrra leiða til að útrýma og lágmarka hættuna á slysum. Frábært er að upplifa hversu mikið frumkvæði sjómenn sýna, hversu hugmyndaríkir þeir eru og lausnamiðaðir í öryggismálunum. Óhætt er að segja að þeir nýti þekkingu og reynslu sína til þess að efla öryggi og vinnuumhverfi sitt í allri þeirri tæknivæðingu sem á sér stað í sjávarútveginum. Rafræn sjómennska er nefnilega að ryðja sér til rúms og því má segja að margt hafi breyst frá byrjun síðustu aldar þegar langafi minn, Nils Christian Larsen, réri á árabát frá Ísafirði. Rafrænt forvarnastarf Atvikaskráningar forr it ið ATVIK-sjómenn er hluti af rafrænu forvarnastarfi VÍS. Í dag eru á fjórða tug fiskiskipa og um 800 sjómenn sem nýta sér ATVIK-sjómenn til þess að fá betri yfirsýn yfir öryggismálin og mögulegar hættur. Þannig skapast tækifæri fyrir fyrirbyggjandi aðgerðir. Nú er hægt að nota ATVIK-sjómenn í öllum snjalltækjum hvort sem er símum eða spjaldtölvum um borð í fiskiskipum. Sjómenn þurfa bara að leggja snjalltækin upp að QR-kóða og þá birtist forritið í snjalltækinu. Hægt er að skrá atvik og taka myndir, hvar sem er um borð í skipunum. Framundan eru svo fleiri nýjungar í forritinu, til dæmis sjálfvirk úrvinnsla gagna og orsakagreining atvika. Hægt verður að velja fleiri tungumál en íslensku en hlutfall sjómanna með erlent þjóðerni er sífellt að aukast. Ég fyllist mikilli bjartsýni þegar ég horfi til framtíðar því við erum að hefja nýja vegferð með rafrænum lausnum til þess að bæta öryggis- menninguna enn frekar - og fækka slysum á sjó. Gísli Níls Einarsson Sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS AÐSENT Sjómennskan mótaði mig fyrir lífstíð Fyrir góðan dag Við óskum sjómönnum til hamingju með daginn Ártorgi 1 550 Sauðárkrókur & 455 4500 www.ks.is N Ý PR EN T eh f 4 22/2020

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.