Feykir - 26.08.2020, Síða 6
Hvernig nemandi varstu? Bara
svona meðal held ég. Fram úr hófi
dagdreymin í grunnskóla, eflaust
ekkert í uppáhaldi hjá neinum
þar, en svo rjátlaðist það af mér
sem betur fer.
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? Rauði kjóll-
inn sem ég klæddist. Mig langaði
aldrei í þennan hefðbundna hvíta
kjól sem margir voru í, en hvers
vegna rauður varð fyrir valinu, það
hef ég aldrei skilið!
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Leikkona. Ég var
sífellt skrifandi og semjandi
sögur, sem varð til þess að afi
minn, Konráð Gíslason heitinn,
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Katrín Lilja Kolbeinsdóttir.
ÁRGANGUR: 1988, langbesti árgangurinn :D
FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift Hlyn Hansen síðustu sex árin. Það venst
ágætlega.
BÚSETA: Bournemouth á suðurströnd Englands.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Foreldrar mínir eru þau Linda
Gunnarsdóttir og Kolbeinn Konráðsson. Ég er Skagfirðingur í
föðurættina og Reykvíkingur í móðurætt. Skagfirsku ræturnar
rista djúpt í báðum mínum föðurættum, Frostastaðir annars
vegar og Uppsalir hins vegar. Móður-megin má sömuleiðis
finna merkismenn og konur, langalangafi minn Eggert
Benediktsson var til að mynda þingmaður Alþingis á sínum
árum. Sjálf er ég alin upp í Skagafirði svo þar mun hjartað alltaf
eiga sinn samastað.
STARF / NÁM: Ég lauk B.A námi í fjölmiðla- og boðskiptafræði
frá Háskólanum á Akureyri árið 2017 og flutti í kjölfarið út til
Englands til þess að næla mér í M.A gráðu frá Bournemouth
University. Er á milli starfa eins og er, kórónufaraldurinn hefur
svolítið sett atvinnulífið á hliðina hér eins og víða annars
staðar.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Hitt og þetta, ég hef til dæmis nýtt þennan
COVID tíma í að skrifa nokkur handrit að stuttmyndum. En þar
sem ég er hvorki leikstjóri né framleiðandi (allavega ennþá), þá
hef ég verið að senda þessi handrit á nýútskrifaða nemendur
og aðra sem eru að byrja í bransanum. Þannig hjálpa ég þeim af
stað og get bætt við kredit listann minn. Svo er reglulega hnýtt
í mig að fara að skrifa þriðju bókina mína, og hafa hana þá helst
á íslensku, það er aldrei að vita hvað gerist í þeim efnum.
Katrín Lilja
hélt því reglulega fram að ég yrði
rithöfundur. Ég svaraði honum
alltaf með því að ég ætlaði mér
að verða leikkona og leika í
öllu sem ég væri að skrifa um.
Hef nú gefið út tvær bækur en
leiklistaferillinn fór aldrei á flug
svo ætli kallinn hafi ekki bara
haft rétt fyrir sér.
Hvert var uppáhalds leikfangið
þitt þegar þú varst krakki?
Lítill bangsi sem hét Mýsla.
Hún fylgdi mér í gegnum alla
barnæskuna, gat aldrei sofið
án hennar. Við vorum bestu
vinkonur í heillangan tíma.
Besti ilmurinn? Það er jafntefli
milli hangikjötsilmsins á að-
fangadag og nýslegins grass.
Hvort tveggja fyllir mig mikilli
vellíðan.
Hvar og hvenær sástu núverandi
maka þinn fyrst? Það er dálítið
erfitt að bæði tíma- og staðsetja
það almennilega. Hann fann mig
á stefnumótasíðu árið 2012, og
bauð mér í kjölfarið út að borða
á Tapas barnum í Reykjavík, svo
upphafið að okkar sambandi
hófst 4. nóvember 2012 þegar
hann sótti mig heim til vinkonu
minnar í Vesturbænum. En
eftir að hafa spjallað svolítið
saman komumst við að því að
við höfðum oft verið á sama
stað á sama tíma, t.a.m. í
sömu partýunum, svo okkur var
greinilega ætlað að verða.
Hvað varstu að hlusta á þegar
þú fékkst bílprófið? Ég var
óttaleg popp-gelgja, hlustaði
mikið á Westlife, Backstreet
Boys, Pink og Celine Dion.
Hlustaði líka mikið á íslensku
böndin, aðallega Á Móti Sól,
Skítamóral, Írafár og Land &
syni.
Katrín Lilja er búsett í Englandi og líkar lífið þar vel. AÐSEND MYND
Hvernig slakarðu á? Ég fer í heitt
og gott bað og læt stressið líða úr
mér, sest svo fyrir framan tölvuna,
set klassíska tónlist á fóninn og
byrja að skrifa, hvort sem það er
handrit, smásögur eða bók. Það
er ekkert sem róar mig jafn mikið
og skrif.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu? Ég horfi mjög lítið á
sjónvarp ef ég á að segja eins og
er. Eiginlega bara ekki neitt, fyrir
utan fréttirnar. Ég er heldur ekki
manneskjan til þess að segja þér
hvað gerðist í nýjasta þættinum af
hverju sem þú ert að horfa á, ég er
nokkrum áratugum á eftir. Akkúrat
núna er ég alveg dottin inn í The
Dick Van Dyke Show frá 1960!
Besta bíómyndin? Stella í Orlofi.
Af því að það er ekki ein setning
í þeirri mynd sem er ekki fyndin.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Simone Biles,
fimleikakonu. Frá því að alast
upp á fósturheimilum, yfir í að
vinna samanlagt 30 medalíur á
bæði Ólympíuleikum og heims-
meistaramótum, hvernig er hægt
að toppa það?
Hvað gerir þú betur en allir aðrir
á þínu heimili? Ég vil ekki monta
mig en ég er algjörlega topp
eintak af bakara! Ég hef til dæmis
masterað skúffuköku uppskriftina
hennar mömmu, geri aðrir betur!
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Sjá ofangreint svar.
Ég er skelfilegur kokkur, er samt
að vinna mig í átt að minni fyrstu
Michelin stjörnu einn grjónagraut
í einu.
Hættulegasta helgarnammið?
Súkkulaði. Hvaða nafni sem það
kallast, ef ég kemst með puttana
í súkkulaði halda mér engin bönd.
Hvernig er eggið best? Soðið.
Egg eru samt frábær hvernig sem
þau eru elduð.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari þínu? Frestunaráráttan. Ég
er skilgreiningin á „Á morgun segir
sá lati.“
Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari annarra? Almennur
dónaskapur og tilætlunarsemi.
Fólk sem telur sig vera yfir aðra
hafið og hikar ekki við að sýna
það, er fólk sem ég forðast að
eiga samræður við.
Uppáhalds málsháttur eða til-
vitnun? Tvennt. 1) Komdu fram
við náungann eins og þú vilt að
hann komi fram við þig, og 2)
Það er björt hlið á öllum svörtum
aðstæðum. Mamma ól okkur
systkinin upp á þessum tveimur
mottóum, og eins mikið og ég var
orðin þreytt á því á gelgjunni, þá
lifi ég eftir þessu í dag.
Hver er elsta minningin sem
þú átt? Ég var þriggja og hálfs,
og man sterkt eftir því að hafa
verið að leika mér á stofugólfinu
hjá ömmu Helgu og afa Konna
í Furulundinum þegar síminn
hringdi. Amma svaraði, á hinum
enda línunnar var pabbi að
tilkynna henni að litli bróðir minn
væri fæddur. Ég man sömuleiðis
vel eftir því þegar ég svo hitti litla
gerpið í fyrsta sinn (djók, Fannar
minn þú ert ágætur alveg :D).
Þú vaknar einn morgunn í
líkama frægrar manneskju og
þarft að dúsa þar einn dag.
Hver værirðu til í að vera og
hvað myndirðu gera? Klárlega
Jennifer Aniston. Ég myndi líklega
valhoppa um höllina sem hún býr
í og fara svo og hitta eins mikið af
frægu vinum hennar og ég kæmist
yfir á einum degi.
Hver er uppáhalds bókin þín
og/eða rithöfundur? Korkusaga
– Við Urðarbrunn og Nornadómur
eftir Vilborgu Davíðsdóttur. Las
hana fyrst fyrir íslenskuverkefni í
framhaldsskóla og hef lesið hana
oftar en ég get talið síðan. Það
er eitthvað ótrúlega magnað við
þessa bók, mæli með henni!
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? „Af hverju samt?“ – Aðal-
lega af því að það er svo mikið
sturlað í þessari veröld sem að ég
væri til í að fá skýringar á.
Hvaða þremur persónum vild-
irðu bjóða í draumakvöldverð?
Bandaríska ljóðskáldið Maya
Angelou, David Attenborough
og leikkonan Hattie McDaniel.
Af því að ég nýt þess að eiga
samræður við fólk þar sem ég get
bara hlustað og fræðst, og ég veit
að þessir þrír einstaklingar gætu
kennt mér heilan helling á einni
kvöldstund.
Ef þú gætir farið til baka í
tímann, hvert færirðu? Ég myndi
vilja upplifa ‘50s tímabilið. Af
því ég held að það hafi verið
skemmtilega skrýtinn tími.
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? Kærulaus á köflum.
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél
og réðir hvert hún færi, þá
færirðu... heim í Skagafjörðinn.
Hvergi annars staðar sem mér
líður betur. Þrátt fyrir að ég þrífist
vel hvar sem er, þá eigum við
Glóðafeykirinn minn nóg eftir að
tala um.
Bucket list spurningin: Nefndu
eitthvað þrennt sem þér finnst
þú mega til að gera áður en þú
gefur upp öndina: Í heimsókn
fjölskyldunnar til Þýskalands árið
2017 röltum við yfir stærðarinnar
brú og pabba varð á orði; “Er
þetta Rín? Ef svo er, þá óð ég
þessa á í svissnesku ölpunum
fyrir 32 árum! Þetta var svo
handahófskennt að ég setti mér
það markmið að ég skyldi gera
eitthvað álíka, bara til að geta
sagt svona handahófskennda
setningu í ellinni!
1) Heimsækja ættbálk í Afríku og
sitja með þeim við varðeld, að
syngja og dansa.
2) Heimsækja búddaklaustur í
Nepal.
3) Ferðast um með sleðahundum
í Finnlandi.
6 32/2020