Feykir - 26.08.2020, Blaðsíða 5
Körfuknattleiksdeild
Tindastóls hefur gengið frá
samningum við sterkan
kjarna heimastúlkna fyrir
komandi tímabil í 1. deild
kvenna en að auki hefur
verið samið við tvo
leikmann frá Akureyri,
Kristlaugu Evu Wium
Elíasdóttir og Karen Lind
Helgadóttur, og einn
erlendan leikmann,
Dominique Toussaint, og er
liðið nú fullmannað fyrir
komandi átök að sögn Árna
Eggerts Harðarsonar
þjálfara.
Á Facebook-síðu körfu-
knattleiksdeildar kemur fram
að áætlað sé að deildakeppn-
in hefjist undir lok september
og er haft eftir Árna Eggerti
Harðarsyni að mikilvægt sé að
gengið hafi verið frá samn-
ingum við leikmenn með
góðum fyrirvara þannig að
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
Skrifað undir við sterkan kjarna Stólastúlkna
Körfuknattleikdeild Tindastóls
Murielle Tiernan var á skotskónum í Keflavík og gerði hat-trick. Mur hefur nú gert
ellefu mörk í níu leikjum í Lengjunni. Þessi mynd er frá því fyrr í sumar. MYND: ÓAB
Lengjudeildin | Keflavík – Tindastóll 1–3
Stólastúlkur á toppinn
eftir sigur í toppslagnum
Lið Tindastóls gerði sér lítið
fyrir sl. sunnudag og vann
sanngjarnan sigur á liði
Keflavíkur suður með sjó.
Fyrir leikinn voru Keflvík-
ingar á toppi deildarinnar
en liðin höfðu sætaskipti að
leik loknum. Mur reyndist
heimastúlkum erfið en hún
gerði þrennu í leiknum en
engu að síður var þetta
sigur liðsheildarinnar því
allar stelpurnar áttu
frábæran dag, gáfu allt í
leikinn og uppskáru eftir
því. Lokatölur 1-3 fyrir
Tindastól.
Lið Tindastóls komst yfir á
21. mínútu. Mur vann auka-
spyrnu við hægra vítateigs-
hornið, Jackie sendi boltann
síðan inn í hættusvæðið þar
sem Mur náði að losa sig,
kasta sér aftur og sneiða
boltann laglega í markið.
Glæsilega gert. Heimastúlkur
svöruðu með stórsókn sem
endaði með því að þær fengu
víti en Amber gerði sér hins
vegar lítið fyrir og varði vítið
og strax í kjölfarið barst bolt-
inn upp hægri kantinn þar
sem Mur hreinlega setti í
túrbóið, straujaði varnar-
menn Keflavíkur og óð inn á
teiginn og dúndraði fram hjá
Ástu Vigdísi í marki heima-
stúlkna úr þröngu færi. Allt
gerðist þetta drama á þriggja
mínútna kafla! Keflavík
reyndi að koma sér inn í
leikinn en vörn Tindastóls
var sterk sem fyrr. Jackie
Altshculd var síðan nálægt
því að skora fyrir Tindastól
þegar hún skallaði í þver-
slána eftir að hafa fengið frá-
bæra sendingu frá Hugrúnu.
Staðan 0-2 í hálfleik og ef
lið Keflavíkur hafði ætlað að
koma ákveðið til leiks í síðari
hálfleik þá fóru þær illa að
ráði sínu. Lítil hætta virtist
vera á ferð í teig heimastúlkna
á 46. mínútu þegar Hugrún
náði að pota boltanum af
varnarmanni og koma
honum á Jackie sem sendi
síðan á Mur á markteignum.
Eftir eitt gott kiks datt
boltinn vel fyrir hana og hún
skóflaði tuðrunni í markið.
Natasha Anasi minnkaði
muninn á 57. mínútu þegar
hún varð á undan Amber í
boltann. Það var því smá von
fyrir Keflvíkinga en lið
Tindastóls var einfaldlega í
ham og gaf fá færi á sér. Á
lokakaflanum voru það
gestirnir sem fengu bestu
færin og voru nær því að
bæta við mörkum en
heimastúlkur að minnka
muninn.
Vinnuframlag Stóla-
stúlkna var algjörlega til
fyrirmyndar í leiknum og
greinilegt að stelpurnar voru
meira en klárar í þennan
slag. Mur var auðvitað frá-
bær og snerpan og kraftur-
inn í henni engu lýkur – hún
er komin í gamla formið. Þá
áttu Jackie, Hugrún og
Laufey mjög góðan leik en
það er nánast ósanngjarnt að
taka einhverja sérstaklega út
úr – stelpurnar voru allar
frábærar og kvennalið
Tindastóls sennilega að spila
sinn besta leik frá upphafi.
Nú eru níu umferðir að
baki og níu umferðir eftir.
Lið Tindastóls er efst í
Lengjudeild kvenna með 22
stig. Næsti leikur er hér
heima á föstudagskvöldið
þegar lið Víkings mætir í
heimsókn. /ÓAB
Þær sem skrifuðu undir í 1238 í síðustu viku: Telma Ösp Einarsdóttir, Eva Rún
Dagsdóttir, Katrín Eva Óladóttir, Marín Lind Ágústsdóttir, Hildur Heba Einarsdóttir, Kristín
Halla Eiríksdóttir og Inga Sólveig Sigurðardóttir. MYND: TINDASTÓLL
hægt sé að einbeita sér að
æfingum.
Eftirtaldir leikmenn skrif-
uðu undir samninga við Stóla
til eins árs í síðustu viku:
Telma Ösp Einarsdóttir
Inga Sólveig Sigurðardóttir
Kristín Halla Eiríksdóttir
Katrín Eva Óladóttir
Marín Lind Ágústsdóttir
Eva Rún Dagsdóttir
Hildur Heba Einarsdóttir
Berglind Ósk Skaptadóttir
Kristlaug Eva Wium Elíasdóttir
Karen Lind Helgadóttir
Hin bandaríska Dominique
Toussaint er svo væntanleg til
landsins í byrjun september. /PF
Heimamenn í Kormáki/
Hvöt sýndu Snæfellingum
enga miskunn þegar
knattspyrnukempurnar frá
Stykkishólmi heimsóttu
Blönduós sl. laugardag.
Heima-menn gerðu þrettán
mörk í leiknum og ekki á
hverjum degi sem einn
leikmaður gerir fjögur mörk
og tveir setja þrjú í einum og
sama leiknum. Lokatölur
voru 13-1 og Húnvetningar í
öðru sæti B-riðils 4. deildar
en eiga leik til góða á
topplið KFR.
Staðan var orðin 4-0 eftir
20 mínútur en Viktor Ingi
fullkomnaði þrennuna á 41.
mínútu, hafði áður skorað á 9.
og 16. mínútu. Hilmar Kára
hafði komið heimamönnum
yfir eftir sex mínútna leik og
Ingvi Rafn fyrirliði kom sínum
mönnum í 4-0 á 20. mínútu.
Staðan 5-0 í hálfleik.
Yfirburðirnir voru svo
miklir að Bjarki Már þjálfari
gat hvílt sig í síðari hálfleik.
Síðan héldu heimamenn
áfram að sjóða sína
markasúpu. Ingvi Rafn skoraði
á 49. mínútu, Oliver Torres
skoraði mínútu síðar, Viktor
Ingi gerði fjórða mark sitt á 53.
mínútu og var þá skipt út af.
Ein ferna og tvær þrennur á Blönduósvelli
Knattspyrna karla | 3. og 4. deild
Hilmar Þór gerði annað mark
sitt á 62. mínútu og síðan gerði
Ágúst Friðjóns tvö mörk á 63.
og 65. mínútu en síðan gerðist
hið óvænta – Oliver Þrastarson
skoraði fyrir gestina á 73.
mínútu. Ingvi Rafn svaraði að
bragði og fullkomnaði sína
þrennu tveimur mínútum
síðar og á 90. mínútu gaf Ágúst
Snæfellingum síðasta selbitann
og kórónaði sitt hat-trick. 13-1
– takk fyrir og túkall. /ÓAB
Vængir Júpíters
flugu hátt á Króknum
Tindastóll fékk illa á baukinn
sl. laugardag þegar Vængir
Júpíters úr Grafarvoginum
mætti á Krók-inn í 10. umferð
3. deildar. Stólarnir unnu fyrri
leik lið-anna í sumar en nú
gekk fátt upp og gestirnir
gengu á lagið, hefðu hæglega
getað gert tíu mörk en Atli
Dagur átti nokkrar magnaðar
vörslur í leiknum. Lokatölur
1-5 og úrslitin mikil vonbrigði
fyrir Tindastólsliðið sem hefur
verið að berjast á toppi deildar-
innar í sumar.
Gestirnir komust yfir
snemma leiks en Stólarnir
urðu fyrir áfalli um miðjan
fyrri hálfleik þegar Fannar
Kolbeins varð að fara af velli
og við það riðlaðist varnarleik-
urinn. Vængirnir gengu á
lagið, voru 0-2 yfir í leikhléi og
voru fljótir að gera út um
leikinn í þeim seinni.
Í gærkvöldi mættu strák-
arnir liði KV en þá var Feykir
farinn í prentun. /ÓAB
Leikmenn raða sér upp í vítateig Tindastóls áður en fyrsta markið var skorað. MYND: ÓAB
32/2020 5