Feykir


Feykir - 23.09.2020, Síða 2

Feykir - 23.09.2020, Síða 2
Við upplifum skrítna tíma þessi misserin bæði hvað varðar Covid fárið og þriðju, eða fjórðu bylgjuna, eftir því hver telur og ekki síst pólitíkina. Það er eins og karlinginn, (þetta er ömurleg tilraun til að setja hán í gamalmennabúning), sagði: Það er ljóta tíkin þessi pólitík. Donald Trump hefur ríkt sem forseti voldugasta ríkis heims sl. fjögur ár og allt er eins líklegt að hann nái kjöri á ný í forseta- kosningunum þann 3. nóvember nk. Ég held að líklega hafi enginn landshöfðingi í gjörvöllum heiminum fengið aðra eins útreið í fjölmiðlum og hjá almenningi og Trump. En ef hann nær kjöri í nóvember má ætla að margir verði hissa. Vinstri græn hafa staðið í stafni í ríkisstjórnarsamstarfi þriggja flokka á Íslandi en með þeim eru Framsókn og Sjálfstæðisflokkur. Mér finnst þetta samstarf hafa gengið framar vonum og Katrín staðið sig afskaplega vel í vandmeðfarinni ríkisstjórn. Ekki eru allir sammála mér og sýnist mér hún fá mestu gagnrýnina frá eigin kjósendum, sem margir hverjir voru frá upphafi á móti þessari myndun stjórnar. En styttist nú verulega í annan enda kjörtímabilsins og verður fróðlegt að sjá hvort Vg liðar ná að sprengja stjórnina áður en hún rennur sitt skeið á enda. Eftir kosningar helgarinnar í nýju sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi eru sjálfstæðismenn stærsti flokkurinn en um er að ræða sameinað sveitarfélag Fljótsdalshéraðs, Djúpa- vogshrepps, Borgarfjarðarhrepps og Seyðisfjarðarkaup- staðar. Þetta hljóta að teljast tíðindi þar sem Austurland hefur í gegnum tíðina verið nefnt sem eitt af höfuðvígjum vinstri stefnunnar í landinu. Að lokum berast þær fréttir frá Akureyri að fyrirkomulag meiri- og minnihluta í bænum væri liðið undir lok þar sem kjörnir fulltrúar í bæjarstjórn ætla að starfa saman og mynda breiða samstöðu vegna sérstakra aðstæðna í kjölfar heims- faraldurs og í rekstri sveitarfélagsins. Helsta ástæða þess að bæjarstjórn telur þetta raunhæfan kost er sú að traust og virðing er til staðar á milli allra kjörinna fulltrúa auk þess sem mikill samhljómur er í grundvallarstefnumálum við núverandi kringumstæður. 1-0 fyrir Akureyri. Lifið heil. Páll Friðriksson, ritstjóri LEIÐARI Óttalega skrítin tík Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is | Soffía Helga Valsdóttir, bladamadur@feykir.is Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is Áskriftarverð: 585 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 720 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum Heimaslátrun sauðfjár 35 taka þátt í tilraunaverkefni Tilraunaverkefni um heima- slátrun sauðfjár er farið af stað og alls taka 35 býli, víðsvegar um landið, þátt í verkefninu. Markmið þess er leita leiða til þess að auðvelda bændum að slátra sauðfé heima til mark- aðssetningar þannig að uppfyllt séu skilyrði regluverks um matvælaöryggi og gætt sé að dýravelferð og dýraheilbrigði. Atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytið hefur falið Hólm- fríði Sveinsdóttur, í Skagafirði, doktor í lífvísindum og nær- ingarfræðingi að stýra verk- efninu fyrir hönd ráðuneyt- isins. Heilbrigðisskoðun fram- kvæmd af dýralæknum Á heimasíðu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins kem- ur fram að síðustu misserin hafi verið unnið ötullega að undirbúningi í samráði við Matvælastofnun, Landssamtök sauðfjárbænda og þátttakendur en í sumar undirrituðu Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Guð- finna Harpa Árnadóttir, for- maður Landssamtaka sauð- fjárbænda, samkomulag um tilraunaverkefni um heimaslátr- un. „Undirbúningi verkefnisins er nú lokið, þátttakendur verkefnisins eru 35 talsins og eru búsettir víðsvegar um landið. Fyrirkomulag verkefn- isins er með þeim hætti að þátttakendur munu sjálfir framkvæma heimaslátrun á bæjum en heilbrigðisskoðun verður framkvæmd af dýra- læknum Matvælastofnunar með tvenns konar hætti, annars vegar með heimsókn dýra- læknis á 19 bæi og hins vegar í gegnum fjarfundarbúnað í beinu streymi á 16 bæjum. Þátttakendur munu jafn- framt mæla sýrustig og taka sýni fyrir örverumælingar í því skyni að mæla gæði kjötsins. Afurðir úr verkefninu verða ekki seldar á markaði,“ segir í frétt ráðuneytisins en sam- kvæmt samningnum fjármagn- ar það sýnatökur og rannsóknir á örverumælingum. /PF Hvammstangi Mal- bikunar- fram- kvæmdir í deiglunni Um næstkomandi mánaðamót verður hafist handa við að malbika götur í Húnaþingi vestra en á heimasíðu sveitarfélagsins segir að hafi íbúar og fyrirtæki í sveitarfélaginu hug á að nýta sér ferðina og láta malbika hjá sér í leiðinni, er hægt að hafa samband við Björn Bjarnason rekstrarstjóra Húnaþings vestra. Hafinn er undirbúningur vegna malbiks á Lindarvegi á Hvammstanga og eru vegfarendur beðnir um að sýna tillitssemi og gæta varúðar og ítreka við börnin að gæta sín þar sem stórar vinnuvélar verða á ferðinni. /PF Aflatölur 13. - 19. september 2020 á Norðurlandi vestra 1.791.773 kg landað á Norðurlandi vestra SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG Elfa HU 191 Handfæri 2.438 Fengsæll HU 56 Landbeitt lína 3.092 Geir ÞH 150 Dragnót 2.128 Geiri HU 69 Handfæri 1.629 Guðrún Petrína GK 107 Landbeitt lína 3.846 Hafrún HU 12 Dragnót 30.737 Hjalti HU 313 Handfæri 472 Hrund HU 15 Handfæri 2.263 Húni HU 62 Handfæri 2.374 Jenny HU 40 Handfæri 1.033 Kópur HU 118 Handfæri 1.027 Kristinn HU 812 Landbeitt lína 46.648 Loftur HU 717 Handfæri 1.243 Ragnar Alfreðs GK 183 Handfæri 458 Rán SH 307 Landbeitt lína 11.738 Sævík GK 757 Lína 36.933 Viktor Sig HU 66 handfæri 832 Viktoría HU 10 Handfæri 1.435 Alls á Skagaströnd 189.754 HOFSÓS Bíldsey SH 65 Lína 26.865 Oddur á nesi ÓF 176 Landbeitt lína 4.644 Óli G GK 50 Landbeitt lína 3.664 Alls á Hofsósi 35.173 HVAMMSTANGI Sjöfn SH 707 IGPL 9.684 Alls á Hvammstanga 9.684 SAUÐÁRKRÓKUR Akurey AK 10 Botnvarpa 113.180 Drangey SK 2 Botnvarpa 283.277 Fjölnir GK 157 Lína 51.480 Gammur SK 12 Handfæri 1.205 Geir ÞH 150 Dragnót 25.471 Hafborg SK 54 Handfæri 1.787 Hafey SK 10 Handfæri 853 Helga María RE 1 Botnvarpa 194.768 Maró SK 33 Handfæri 664 Málmey SK 1 Botnvarpa 114.646 Már SK 90 Handfæri 136 Onni HU 36 Dragnót 26.834 Óli G GK 50 Lína 7.101 Silver Pearl BS 999 Rækjuvarpa 701.995 Skvetta SK 7 Handfæri 839 Steini G SK 14 Handfæri 2.119 Sæfari SH 25 Lína 30.147 Vinur SK 22 Handfæri 660 Alls á Sauðárkróki 1.557.162 SKAGASTRÖND Addi afi GK 97 Landbeitt lína 12.704 Auður HU 94 Handfæri 1.722 Bergur Sterki HU 17 Lína 2.809 Birta Dís GK 135 Handfæri 3.458 Blíðfari HU 52 Handfæri 725 Bragi Magg HU 70 Handfæri 2.747 Dúddi Gísla GK 48 Lína 15.263 Heildarafli síðustu viku á Norðurlandi vestra var 1.791.773 kíló. Silver Pearl átti stóran hluta eða alls 701.995 kg af rækju sem hún landaði á Króknum. Þar landaði einnig Drangey SK 2 alls 283.277 kg en alls var landað 1.557.162 kg á Króknum. Á Skagaströnd var landað 189.754 kg og var þar aflahæstur Kristinn HU 812 með rúm 46 tonn. Þrír bátar lönduðu 35.173 kg á Hofsósi og einn bátur landaði á Hvammstanga, Sjöfn SH 707, tæpum 10 tonnum. /SG 2 36/2020

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.