Feykir


Feykir - 23.09.2020, Blaðsíða 3

Feykir - 23.09.2020, Blaðsíða 3
Stafræn prentun í Nýprenti Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Canon imagePRESS C700 skilar frábærum gæðum og gerir okkur kleift að prenta bæklinga, skýrslur, boðskort, plaggöt, markpóst og margt fleira, hratt og örugglega. Nú getum við rennt í gegn allt að 300g þykkum pappír, vélin getur prentað á allt að 70 blöð á mínútu og skilar frábærum myndgæðum. Nýprent ehf. Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Með tilkomu Canon ImagePRESS C700 getum við boðið viðskiptavinum okkar upp á hagstæðari, fjölbreyttari og skilvirkari þjónustu. Stafræn prentun hentar sérstaklega vel fyrir þá sem eru ekki að leita eftir miklu upplagi í prentun. Leitaðu ekki langt yfir skammt – kíktu í Nýprent! BÆKLINGAR ÁRSSKÝRSLUR BOÐSKORT PLAGGÖT EINBLÖÐUNGAR NAFNSPJÖLD MATSEÐLAR MARKPÓSTUR ný pr en t e hf / 0 32 01 8 Göngur í skugga Covid Grímur, spritt og tveggja kinda reglan Seinni göngur fóru víða fram um helgina og má segja að viðrað hafi misvel á gangnafólk en sum staðar var lognið heldur að flýta sér og rigningin svo mikil að engu eirði, jafnvel ekki bestu regngöllum. Svo hvasst var á tímabili að sögur hafa farið af fólki sem ekki hélst á baki. Meðfylgjandi mynd er tekin við upphaf gangna í Elliðanum undir Almenningshálsi í Kol- beinsdal sl. laugardag og veðrið þá hið spakasta. Gangna- foringinn sá til þess að allir fengju grímur frá fjallskila- nefndinni til að setja á sig í bílnum á leiðinni fram eftir og spritt á hendurnar, auk þess að skrá nöfn og kennitölur allra til þess að rekja smit ef það kæmi upp, sem varð ekki. Á myndinni eru allir með grímur nema Greta frá Garðakoti en mynda- smiðurinn, Gylfi Ísaksson, segir hana nýbúna að taka hana af sér. Frá vinstri: Eysteinn Steing- rímsson, Laufhóli með hund- inn Kjark; feðgarnir Ástvaldur Jóhannes-son, Reykjum, og Jóhannes Ástvaldsson, Selfossi; feðgarnir Friðrik Dúi Þórólfs- son og Þórólfur Sigjónsson, Hofsstaðaseli; Jakob Smári Pálmason, gangnaforingi og Katharina Sommermeier, Garðakoti; Arnaldur Gylfason og Bryndís Ernstsdóttir, Reykjavík; Greta Jakobsdóttir, Garðakoti, og Sigurlaug Bryn- leifsdóttir, Dalsmynni. /PF Grímuklæddir smalamenn í upphafi gangna. MYND: GYLFI ÍSAKSSON Smábátafélagið Drangey Gríðarlegt vantraust á starfsemi Hafrannsóknarstofnunar Smábátafélagið Drangey í Skagafirði skorar enn einu sinni á stjórnvöld að virða ítrekaðar óskir sveitarstjórnar Skagafjarðar, Landssambands smábátaeigenda og Drangeyjar um að taka upp fyrri takmarkanir á veiðum með dragnót á innanverðum Skagafirði þannig að þær verði óheimilar innan línu sem dregin er milli Ásnefs í vestri í norðurhorn Þórðarhöfða í austri. Er sú áskorun ein af mörgum sem félagið samþykkti á aðalfundi sínum sem fram fór sl. sunnudag. Þau vinnubrögð sem sjávarútvegsráðherra hafði við framkvæmd grásleppuveiða á þessu ári eru einnig fordæmd en með þeim var grás- leppuútgerðum freklega mismunað og skemmd- arverk unnið á stjórnkerfi þeirra veiða að mati félagsins. Þá var stöðvun strandveiða þessa árs, áður en lögvörðu veiðitímabili þeirra lauk harðlega mótmælt og ítrekaði fundurinn fyrri samþykktir sínar um að veiðitímabil strandveiða verði valkvætt í fjóra mánuði samfellt, alls 48 veiðidagar á tímabilinu 1. apríl til 30. september. Aðalfundur Drangeyjar mótmælir þeim hug- myndum sem kynntar eru í nýju frumvarpi um atvinnu- og byggðakvóta um að festa strandveiðar inn í „heildarpotti“ sem tekur mið af afla- markskerfinu. Með því er verið að þvinga sóknarmarksfyrirkomulag strandveiðanna inn í aflamarkskerfið. Lýst var yfir ánægju með framgöngu atvinnu- veganefndar sveitarstjórnar Skagafjarðar í tengsl- um við úthlutun byggðakvóta þessa árs. Hins vegar hvetur félagið til þess að í framtíðinni verði þessum heimildum einungis úthlutað á skip undir 50 lestum. Aðalfundur Drangeyjar styður þær hugmyndir stjórnvalda að byggðakvóta til byggðarlaga skuli dreift á grundvelli meðaltals síðustu þriggja eða tíu ára eftir því hvort meðaltalið er hagstæðara fyrir viðkomandi byggðarlag. Hins vegar telur fundurinn að ekki séu rök fyrir því að miða úthlutunina við íbúafjölda byggðarlags. Í lokin skorar félagið á stjórnvöld að beita sér fyrir því að hlutlaus úttekt verði gerð á ráðgjöf og rannsóknaraðferðum Hafrannsóknarstofnunar enda ríkir gríðarlegt vantraust sjómanna og út- gerðarmanna innan félagsins á starfsemi stofn- unarinnar. /PF Gatnagerðargjöld á Skagaströnd Afsláttur á byggingarlóðum Afsláttur verður gefinn á gatnagerðargjöldum byggingalóða við þegar tilbúnar götur á Skaga- strönd. Sérstök ákvæði gilda um úthlutun lóðanna sem hægt er að finna á heimasíðu Skagastrandar. Þær lóðir sem um ræðir eru eftirfarandi: Bogabraut - ein lóð norðan götu nr. 25. Suðurvegur - þrjár lóðir austan götu nr. 5, 7 og 11 Sunnuvegur - tvær lóðir vestan götu nr. 10 og 12 Ránarbraut - ein lóð norðan götu nr. 3 og fimm lóðir sunnan götu nr. 2,4,6,8 og 10. Oddagata- ein lóð austan götu nr. 3. Hólanesvegur - ein lóð vestan götu nr. 6. Skagavegur - tvær lóðir austan götu, nr. 4 og parhúsalóð nr. 6-8. Bankastræti - ein lóð sunnan götu nr. 5. Sveitarstjórn fól sveitar- stjóra að annast auglýsingu þessa efnis á fundi sínum fyrir skömmu. /PF Blönduós Ný göngubrú í Hrútey Skipulags-, umhverfis- og umferðarnefnd Blönduósbæjar tók fyrir á dögunum erindi frá Blönduósbæ um byggingar- og framkvæmdarleyfi fyrir göngubrú yfir í Hrútey. Samkvæmt fundargerð felst framkvæmdin í því að steypa undirstöður fyrir brúna, koma stálgrind frá 1897 fyrir á undirstöðunum, smíða nýtt brúargólf úr timbri og koma fyrir handriði á brúnni. Fyllt verður að brúarstöplum beggja vegna og brúin tengd við núverandi gönguleiðir beggja vegna. Í lok framkvæmdarinnar verður núverandi göngubrú fjarlægð. /PF 36/2020 3

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.