Feykir


Feykir - 23.09.2020, Qupperneq 7

Feykir - 23.09.2020, Qupperneq 7
Eina fundargerðarbók fann hún og einn kassa með gögnum sem afhent voru skjalasafni við sameiningu sveitarfélaga. Einnig fann hún svolítið um Menningarsetrið í Sýslunefndarsögu Kristmund- ar Bjarnasonar. Upp úr þeim gögnum vann Þóra Björk samantektina til fróðleiks fyrir íbúa sem vilja fræðast um Varmahlíðarstjórn og hlutverk hennar. En gefum Þóru Björk orðið: „Sjálfri finnst mér mikilvægt að tengja störf í nefnd eins og þessari við þann bakgrunn sem hún er sprottin úr en færa jafnframt hugsun nútímans inn í starfið. Menningarsetur Skagfirð- inga í Varmahlíð starfar eftir skipulagsskrá frá 1958 sem var staðfest af forseta árið 1965. Það var stofnað af Varmahlíðarfélaginu í Skagafjarðarsýslu. Um Varmahlíðarfélagið má lesa í Sýslunefndarsögu og Byggðasögu Skagafjarðar. Menningarsetrið er sjálfs- eignarstofnun sem rekin var af sýslunefnd Skagafjarðarsýslu fyrir hönd sýslusjóðs og þegar sýslunefnd var lögð niður ætla ég að héraðsnefnd Skagfirðinga hafi tekið við hlutverki hennar. Eftir sameiningu sveitarfélaga í Skagafirði fer skipan í stjórn Menningarsetursins samkvæmt samþykkt nr. 582 frá 29.7.2002, C. lið þar sem getið er um kosningar í stjórnir, samstarfsnefndir og ráð. Stjórnin er skipuð fimm einstaklingum og jafn mörgum til vara. Akrahreppur tilnefnir einn varamann í þessa stjórn. Verðbólga étur upp sjóði Eignir stofnunarinnar eru taldar upp í skipulagsskránni frá 1958. Þar er fyrst að nefna jörðina Reykjarhól og nýbýlið Varmahlíð. Þar með var talinn jarðhiti í Reykjarhólslandi sem Varmahlíðarfélagið eignaðist 1941 og ýmis mannvirki svo sem hluti af sundlaug og veitingahús. Einnig var nefndur Söng- skólasjóður Varmahlíðar sem gefinn var af hjónunum Guð- rúnu Björnsdóttur og Þormóði Eyjólfssyni frá Siglufirði. Ekki er getið um eigur þess sjóðs. Loks er tilgreind innistæða Varmahlíðarfélagsins að upp- hæð 24.387,89. Tilgangur stofnunarinnar kemur fram í skipulagsskránni: að hafa forgöngu um og stuðla Varmahlíð, veitinga- og gisti- hús í Varmahlíð og póstþjón- usta. Sumt sem stefnt er að þar er jafnvel þegar orðið úrelt, s.s. heimavistarbarnaskóli fyrir sem flesta hreppa sýsl- unnar, og sem best aðstaða til símaþjónustu. Loks er nefnt að tilganginum verði náð með því að efla og styðja hvers konar aðra menningar- starfsemi, eftir því sem talið verður að best henti á hverjum tíma, þar á meðal söngmálastarfsemi í samræmi við gjafabréf hjónanna frú Guðrúnar Björnsdóttur og Þormóðs Eyjólfssonar. Um þessa gjöf ritar Kristmundur og segir þar að þau hjón hafi gefið Varmahlíðarfélaginu tíu þúsund krónur árið 1943 til að stofna söngskóla. Fram kemur hjá Kristmundi að sá sjóður hafi eftir einhverjar hrakningar verið endurreistur 1967 og nú undir heitinu Söngmálasjóður Skagafjarðarsýslu. Tilgangur Menningarset- ursins sem upp var lagt með, fyrir nærri hálfri öld, stenst fyllilega tímans tönn, þótt þær leiðir sem nefndar voru séu orðnar úreltar. Eigur sjálfseignarstofnunarinnar hafa einnig breyst á þessum tíma. Verðbólga er talin hafa etið upp sjóði og peninga sem til voru í vörslu banka en jörðin Reykjarhóll stendur fyrir sínu og gefur líklega af sér meiri tekjur nú en þá. Tekjur eru nú af lóðaleigu í landi Reykjarhóls og af heitavatnsréttindum. Tekjur 2006 voru kr. 926.334.- þar af er hitaveitan kr. 731.036.- Tekjur hafa aukist með aukinni sumarhúsabyggð í landi Reykjarhóls og einnig hefur vatnssalan aukist, en tekjur vegna hitaveitunnar eru 7% af seldu vatnsmagni. Sjóðirnir í vörslu Menning- arsetursins og fram koma í ársreikningum eru tveir, Söngskólasjóður sem á 106 krónur og Vestmannasjóður sem á 1.796 krónur. Ekkert hef ég í höndum um hvað Vestmannasjóður er eða hver hafi stofnað hann. Nefnt hefur verið að eyða ætti þessum sjóðum þar sem ekki er mikil innistæða í þeim. Annað sjónarmið er að þeir geymi hluta af sögunni og þegar þeim er eytt verður ekkert til vitnis um þá hugsun sem á bak við þá er. Það þarf allavega að skrá það sem vitað er um sjóðina og þá hugsun sem stofnendur lögðu upp með áður en tekið verður til. Menningarsetur Skagfirð- inga í Varmahlíð á ýmsar eignir. Helst ber að nefna jörðina Reykjarhól sem metin er samkvæmt fasteignamati með ræktuðu landi, geymslu og hesthúsi á 1.512.000 kr. Hlutur í Húseyjarkvísl er metinn á 193.000 kr. Loks eru lóðir metnar á 28.469.000. Alls eru eignir samkvæmt fast- eignamati 31.12. 2006 krónur 30.174.000. Félagið á einnig tvær milljónir í hlutabréfum í Ferðasmiðjunni hf. Menningin lifir góðu lífi Undanfarin ár hefur Menn- ingarsetrið rækt lögbundið hlutverk sitt meðal annars með styrkveitingum. Þegar styrk- irnir eru skoðaðir kemur í ljós að þeir falla fyllilega undir yfirlýstan tilgang Menningar- setursins. Varmahlíðarskóli fékk árið 2004 hálfrar milljón króna styrk vegna tækjakaupa fyrir náttúrufræðikennslu, árið 2006 fékk sami skóli kr. 350.000 til byggingar hljóðvers og kr. 100.000 til útgáfu bæklings. Söngstarfsemi var styrkt árið 2006 á þann hátt að Karlakórinn Heimir og Rökkurkórinn fengu kr. 400.000 styrk hvor kór og Kirkjukórar Glaumbæjar- sóknar kr. 300.000. Að auki hefur uppbygging tjaldsvæðis í Varmahlíð verið styrkt um tvær milljónir króna. Stjórn Menningarseturs bíða ýmis verkefni á næstunni vegna aukins umfangs sumar- húsbyggðar og skipulagsmála í Reykjarhólslandi. Einnig er fyrirhugað að fjarlægja gamla íbúðarhúsið að Reykjarhóli, en sú ákvörðun þarf að fara til umsagnar margra nefnda áður en henni verður framfylgt. Reikningshaldari stofn- unarinnar til áratuga, Knútur H. Ólafsson, lét nú um ára- mótin af störfum að eigin ósk. Stjórn þakkar honum gott samstarf og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni. Þessir punktar eru teknir saman eftir minni bestu vitund. Mér þætti fengur að öllum frekari upplýsingum um Menningarsetur Skagfirðinga í Varmahlíð sem stundum gengur undir nafninu Varma- hlíðarstjórn, og einnig að fá að vita ef eitthvað er talið ranghermt hér að framan. Þóra Björk Jónsdóttir.“ Athugið: Millifyrirsagnir eru blaðsins að aukinni menningar- og félagsmálastarfsemi í Skaga- fjarðarsýslu. Þessi aldna skipulagsskrá nefnir leiðir til að ná markmið- unum og hefur flest sem þar er nefnt náðst svo sem skóli í Varmahlíð, félagsheimili í Menningarhúsið Miðgarður. Glæsileg sundlaug í Varmahlíð. Stór og myndarlegur grunnskóli. Hið sögulega Hótel Varmahlíð. Nýuppgert verslunarhús og stórbætt aðgengi. 36/2020 7

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.