Feykir - 30.09.2020, Blaðsíða 4
Sauðárkrókur
Listaverkið var 26 ár
utan á húsnæði Fisk Seafood!
Að undanförnu hafa verið
miklar framkvæmdir við og
í kringum húsakynni Fisk
Seafood á Sauðárkróki,
Hofsósi og Skagaströnd.
Það hafa ekki bara verið
fjarlægð mörg hundruð tonn
af alls konar rusli og drasli
heldur var einnig bætt um
betur og byggingar fyrirtæk-
isins á Sauðárkróki málaðar
bæði að innan og utan.
En eitt er þó víst að einhverjir
eiga eftir að sakna þess að sjá
ekki lengur listaverkið skemmti-
lega sem þeir félagar, Sverrir
Bergmann Magnússon og
Pálmi Jónsson, sköpuðu fyrir
rúmum 26 árum því núna er
búið að mála yfir myndina
góðu.
Feykir hafði samband við þá
félaga, Sverri Bergmann og
Pálma, og lagði fyrir þá nokkrar
spurningar.
Munið þið hversu langan tíma
það tók ykkur að mála mynd-
ina og hvernig kom það til að
þið voruð valdir í verkið? „Ég
man ekki alveg hvað við vorum
lengi að gera þetta. En mig
minnir að þetta hafi tekið okkur
um viku í heildina. Við vorum
að safna okkur peningum til
þess að geta farið í sumar-
listaskóla og fengum greitt fyrir
að gera þessa list á vegginn.
Minnir að þetta hafi verið 10-
15.000 kr. á haus plús 10 kg. af
fiski,“ segir Sverrir Bergmann.
Þá segir Pálmi aðspurður að
þeir félagar hafi verið búnir að
kynnast Erni Inga áður en það
kom að þessu sem hafi öruggleg
verið ástæðan fyrir því að þeir
hafi verið valdir í verkið en í
minningunni hafi verið hér
mikil bæjarhátíð, sem bar
nafnið Sumarsælan, á sama
tíma og verkin voru vígð. Á
henni voru alls konar menn-
ingarviðburðir og var þetta einn
liðurinn í því. Þá hafi einnig
tveir togarar, sem voru að koma
úr Barentshafinu, landað á sama
UMFJÖLLUN
Sigríður Garðarsdóttir
Í sumar komu þeir félagar, Sverrir og Pálmi, saman fyrir framan listaverkið og smelltu nýrri mynd af sér áður en málað var yfir herlegheitin.
MYND: KRISTÍN EVA GEIRSDÓTTIR
tíma og slegið var upp heljar-
innar bryggjuballi eftir vígsluna.
Hver var sagan á bak við
myndina og bjuggust þið við
því að myndin fengi að vera
upp í 26 ár? „Okkur langaði að
gera mynd af firðinum og
teikna þessar eyjar og hafa svo
einhverjar fígurur til þess að
lífga myndina við. Sumar
fígúrur, eins og t.d. kallinn sem
var á sjóskíðum, haldandi í
halann á nauti, voru byggðar á
sögum sem við höfðum heyrt af
Eyrinni,“ segir Sverrir varðandi
söguna á bak við myndina.
„Það var gaman að myndin
skyldi fá að vera þetta lengi uppi
og veit ég að hún var vinsæl
meðal bæjarbúa og ferða-
manna, sem gjarnan stilltu sér
upp hjá henni til myndatöku.
Myndin hefur meira að segja
ratað í landkynningarbækur,“
segir Pálmi.
Aðspurður um hvort þeir
hafi verið beðnir um að mála
nýja mynd segir Sverrir að þeim
hafi boðist að gera verkið upp
en þeir félagar verið sammála
um að það væri kominn tími á
það. Að auki væri mikil vinna
við svona verkefni og í það færi
mikill tími sem þeir höfðu því
miður ekki þegar erindið var
borið upp. „Þar sem þessir
veggir standa auðir núna finnst
mér tilvalið að FISK myndi
bjóða einhverjum upprennandi
listamönnum í Skagafirði að
skreyta þá því rammarnir eru til
staðar, þá væri hægt að nýta alla
rammana. Mála svo nýja mynd
yfir þá elstu að einhverjum tíma
liðnum. Það gæti orðið lifandi
listaverk sem tæki reglulega
breytingum,“ segir Pálmi og
Sverrir tekur undir þetta.
Hvað eru félagarnir
að bralla í dag?
Sverrir er eins og flestir vita
tónlistarmaður á Covid tímum
sem þýðir að það er lítið um
vinnu en hann situr nú sjaldan
auðum höndum og er því á
fullu að semja tónlist. „Akkúrat
þessa stundina er ég að taka upp
lag sem ég samdi um fjörð-
inn fagra,“ segir Sverrir.
Pálmi hins vegar hefur brall-
að mikið sem við kemur sjónum
og sjómennsku því hann hefur
verið á togurum fyrir FISK
ásamt siglfirskum togara. Hann
lauk varðskipadeildinni í stýri-
mannaskólanum og var hjá
Gæslunni í ellefu ár. Hjá Land-
helgisgæslunni var hann m.a. á
Óðni gamla sem nú er hluti af
Sjóminjasafninu. en einnig var
hann á Ægi og Tý og sótti Þór
til Chile. „Í dag vinn ég á
bryggjunni, ekki langt frá þeim
stað sem myndin var máluð,“
segir Pálmi að lokum.
Á myndinni með þeim félögum er Örn Ingi Gíslason fjöllistamaður, sem var strákunum
innan handar með verkið. Örn Ingi lést í september árið 2017 en hann var sjálfmenntaður
myndlistarmaður og fékkst við landslagsmálverk, ljósmyndir, abstrakt, skúlptúra og
innsetningar. Hann tók virkan þátt í menningarlífi Akureyrar þar sem hann bjó en var
einnig iðinn við að halda alls konar námskeið fyrir börn í grunnskólum landsins.
MYND: ÁSTA PÁLÍNA RAGNARSDÓTTIR
Í 24. tölublaði Feykis árið 1994 var birt mynd af þeim félögum þegar listaverkið var
fullklárað og voru þeir nokkuð sáttir við niðurstöðuna.
4 37/2020