Feykir


Feykir - 30.09.2020, Blaðsíða 7

Feykir - 30.09.2020, Blaðsíða 7
verkefni og eru leiðin nú orðin um 80 sem búið er að merkja og verður það að teljast mjög gott. Þá var farið í að endurnýja gamlan göngustíg sem liggur í gegnum garðinn beint á móti sáluhliðinu. Ætlunin var að steypa eða helluleggja hann, en hætt var við það. Í þess stað voru notaðar Ecorster plastmottur frá fyritækinu Ver ehf. en þetta efni er notað víða. Kostnaður við stíginn var um 400.000 krónur og greiðir Blönduósbær helminginn af kostnaðinum.“ Allir boðnir og búnir að hjálpa Valli segir að síðasta verk- efnið sem þau eru með á prjónunum sé bygging á 23 m2 geymsluhúsnæði fyrir garðinn sem mikil þörf sé á að koma upp. „Garðurinn er með ýmsa hluti í geymslu út um allan bæ, svo sem kerruna sem geymir sigbúnaðinn sem notaður er í öllum kirkjugörðum hér í Austur-Húnavatnssýslu, stóran jólakross sem ávallt er settur upp fyrir jólin og margt fleira. Kostnaðaráætlun við þessa byggingu er um 2,5 milljónir króna. Efnið í húsið er innflutt frá Póllandi. Hægt var að staðgreiða húsið hingað komið á Blönduós. Frjálsa kótilettufélagið safnaði einni milljón króna þegar haldið var upp á fimm ára afmæli þess haustið 2019. Þá eins og ávallt voru allir boðnir og búnir að hjálpa og gefa bæði vinnu, efni, húsaleigu, skemmtiatriði og fleira. Fjármögnun stendur nú yfir á því sem út af stendur, eða um 1,5 milljón króna, en stefnt er á að koma þessu húsi upp áður en vetur konungur fer að sýna sig fyrir alvöru.“ Hverjir standa að framkvæmd- unum? „Stjórn kirkjugarðsins ásamt umsjónarmanni hefur haldið utan um allar fram- kvæmdir og verið í stanslaus- um fjáröflunum og redding- um. Allar þessar framkvæmdir eru unnar í góðu samráði við Blönduósbæ enda tekur taka hefur tekist að fjármagna hverja framkvæmd fyrir sig, t.d. viðgerðin á kirkjugarðs- veggnum, þar kom um ein hann þátt í kostnaði við sum verkefnin. Þá hafa starfsmenn Kirkjugarðasambands Íslands á Biskupsstofu verið með í öllum ákvörðunum og stutt við bakið á okkur.“ Í garðinum er kort sem sýnir hvar hver og einn er jarðaður. Segðu okkur aðeins frá þessu. „Eins og áður hefur komið fram var þetta skilti sett upp 2018. Í fyrsta lagi er saga garðsins rakin í stuttu máli en á árum áður var kirkjugarður- inn fyrir Blönduóssókn stað- settur á Hjaltabakka sem er hér skammt frá. Svo eru á skiltinu nöfn allra sem vitað er um í garðinum og númer leiða, þá er mynd af öllum garðinum þar sem hvert leiði hefur sitt númer og á það að auðvalda þeim sem heimsækja garðinn að finna þau leiði sem leitað er að. Þetta var mikil vinna sem fólst m.a. í að fara yfir kirkjubækur, Húnavöku (sér- staklega eldri árganga þess), ásamt fleiri heimildir sem bornar voru saman. Þessi vinna var að mestu leyti unn- in af Hávarði Sigurjónssyni, umsjónamanni garðsins, og Þórhöllu Guðbjartsdóttur, stjórnarmanni, en margir fleiri hjálpuðu til við þessa vinnu til að gera þetta sem best úr garði. Nú er þetta efni allt aðgengilegt á garður.is.“ Nú má sennilega fullyrða að flestar kirkjur landsins, og þar með kirkjugarðar, standa ekki vel fjárhagslega. Hvernig hefur gengið að fjármagna framkvæmdirnar? „Þegar byrjað var á þessum framkvæmdum var buddan nánast tóm eins og hjá flestum kirkjugörðum landsins eftir hrun,“ segir Valli. „En með sameiginlegu átaki fyritækja, einstaklinga og félagasam- Krikjugarðsveggurinn tekinn í gegn. Kantsteinar steyotir á bílaplaninu. Upplýsingaskiltin í kirkjugarðinum. MYND: ÓAB Núverand stjórn kirkjugarðs Blönduóskirkju ásamt umsjónarmanni. Talið frá vinstri: Bjarni Pálsson meðstjórnandi, Árný Þóra Árnadóttir ritari, Jón Aðalsteinn Snæbjörnsson gjaldkeri, Valdimar Guðmannsson formaður, Þórhalla Guðbjarts- dóttir meðstjórnandi og Hávarður Sigurjónsson umsjónarmaður kirkjugarðsins. milljón króna bara í frjálsum framlögum og svo hefur verið við flestar framkvæmdirnar. Þá gerði Blönduósbær vel, bæði við bílaplanið og göngustíginn. Einnig hafa fengist framlög frá Kirkjugarðssjóði sem hefur öll árin lagt til framlag til garðsins svo um munar,“ segir Valli að lokum. Þegar viðtalið var tekið vant- aði enn nokkuð upp á að síð- asta framkvæmdin, bygging geymsluhúsnæðisins, væri full fjármögnuð. Það er því við hæfi að minna á reikningsnúmer kirkjugarðsins á Blönduósi, eða Lukkureikninginn eins og stjórn garðsins kallar hann. Reikningurnn er nr. 0307-13- 600603 og kennitala garðsins er 460300-3980. Á vef Skagastrandar er sagt frá því að fjórir afburða leikmenn íslenska kvenna- landsliðsins í knattspyrnu eigi rætur að rekja til staðarins. Það eru þær Berglind Björg , Glódís Perla, Sonný Lára og Sveindís Jane. Berglind Björg Þorvalds- dóttir. Móðir hennar er Sólveig Gunnarsdóttir sem ólst upp á Skagaströnd, dóttir hjónanna, Bergljótar Óskarsdóttur og Gunnars Benónýssonar, Mánabraut 5. Glódís Perla Viggósdóttir. Faðir hennar er Viggó Magnússon sem ólst upp á Skagaströnd, sonur hjón- anna, Guðbjargar Viggós- dóttur og Magnúsar B. Jóns- sonar, sem eiga þar heima. Móðir hennar er Magnea Harðardóttir en langamma hennar og langafi voru Laufey Jónsdóttir og Haf- steinn Sigurbjarnarson í Reykholti. Sonný Lára Þráinsdóttir. Faðir hennar er Þráinn Þor- björnsson sem ólst upp á Skagaströnd, sonur hjón- anna, Aðalbjargar Sigurðar- dóttur og Þorbjarnar Jóns- sonar, Akurgerði. Móðir hennar er Kristjana Óladótt- ir, dóttir Gyðu Steingríms- dóttur frá Höfðakoti. Sveindís Jane Jónsdóttir. Föðuramma hennar er Birna Jóhannesdóttir sem ólst upp á Skagaströnd, dóttir hjón- anna, Helgu Þorbergsdóttur og Jóhannesar Pálssonar í Garði. /HÚNI.IS Knattspyrna | Íslenska kvennalandsliðið Afburða leikmenn með rætur til Skagastrandar Stúlkurnar fjórar. MYND AF HÚNI.IS 37/2020 7

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.