Feykir - 04.11.2020, Blaðsíða 2
Þegar þessi leiðari kemur fyrir augu þín er væntanlega búið
að kjósa um forseta í henni Ameríku, þ.e. í Bandaríkjunum.
Það má nú ýmislegt segja um þá kumpána sem þar berjast
um hituna en þeir eru vel þekktir
báðir tveir, Donald Trump alger-
lega ófyrirsjáanlegur og Joe Biden
algerlega fyrirsjáanlegur.
Þó ég hafi takmarkaðan áhuga á
bandarískum stjórnmálum, svona
almennt séð, er ekki annað hægt
en að taka einhvers konar afstöðu
þegar um voldugasta ríki heims er
að ræða. Sú hugsun hefur oftar en
einu sinni, og oftar en tvisvar,
skotist upp í kollinn á mér hvernig það má vera að eitt helsta
ríki vestrænnar menningar og viðskipta, svo ekki sé talað um
hernaðarlegu hliðina, getur ekki boðið upp á ferskari kost en
þessa tvo.
Annar þeirra skeytir ekki vitund um álit nokkurs manns né
þjóðríkis með sínum aðgerðum og lofar sem áður að gera
Bandaríkin frábær á ný. Ég veit svo sem ekki hvernig það
hefur tekist síðustu fjögur árin en samkvæmt skoðana-
könnunum þar vestra er mjótt á munum frambjóðenda svo
margir tugir milljóna íbúa hljóta að vera ánægðir með
framgöngu Trump.
En svo er það Biden. Fyrir hvað stendur hann? Ekki
hugmynd, nema að hann reynir að fella sitjandi forseta. Ekki
man ég í augnablikinu á hvað hann leggur áherslu í
kosningabaráttu sinni. Ég man bara eftir honum gagnrýna
Trump og svo ætlar hann að gera eitthvað allt annað og
örugglega miklu betur en forsetinn. Einhverjir frasar dúkka
upp, jafnrétti og fleiri störf. Man ekki meir. En margir tugir
milljóna íbúa Bandaríkjanna styðja einnig Biden og nú þegar
þessi pistill er í smíðum gefa margar kannanir það til kynna
að hann sé mun sigurstranglegri.
Það er magnað að þessi volduga þjóð sem byggir Bandaríki
Norður-Ameríku skuli ekki hafa fleiri valkosti en þessa tvo
herramenn sem í raun hafa ekkert, að mér finnst, merkilegt
fram að færa til framfara né velmegunar síns eigin ríkis né
vinaþjóða. Ekki svo að ég sé að setja mig í spámannssæti en
einhvern tímann heyrði ég þá speki að allt eigi sinn
vitjunartíma og ekki síst heimsveldin í gegnum tímans rás. Er
kannski farið að hausta þar vestra?
Lifið heil.
Páll Friðriksson,
ritstjóri
LEIÐARI
Fölna lauf af trjánum
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Sigríður Garðarsdóttir siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir klara@nyprent.is
Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir
Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 585 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 720 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Mikilvæg ályktun fjögurra sveitarfélaga
Þungar áhyggjum af lágu afurðaverði
Sameiginleg ályktun sveitarstjórna Húnaþings
vestra, Dalabyggðar, Strandabyggðar og
Reykhólahrepps þar sem lýst er yfir þungum
áhyggjum af lágu afurðaverði til sauðfjár-
bænda hefur nú verið send til sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, þingmanna Norð-
vesturkjördæmis, atvinnumálanefndar
Alþingis, Bændasamtaka Íslands, Landssam-
taka sauðfjárbænda, afurðastöðva landsins og
á fjölmiðla.
Bent er m.a. á að líkt og í öðrum rekstri sé
mikilvægt að sauðfjárbændur fái viðunandi verð
fyrir sína vöru og hafi þannig forsendur til
áætlanagerðar og ákvarðanatöku.
,,Sveitastjórnir Húnaþings vestra, Dalabyggðar,
Strandabyggðar og Reykhólahrepps lýsa yfir
þungum áhyggjum af lágu afurðaverði til sauð-
fjárbænda og seinagangi við birtingu afurðaverðs
haustið 2020. Sauðfjárrækt er mikilvæg búgrein
þessara sveitarfélaga og ein af forsendum búsetu í
dreifbýli. Í þessum sveitarfélögum var rúmlega
21% framleiðslu lambakjöts árið 2019.
Á undanförnum árum hafa orðið ábúenda-
skipti á þó nokkrum bújörðum í sveitarfélögun-
um og yngra fólk með fjölskyldur tekið við. Þessar
fjölskyldur efla samfélagið, styðja við þjónustu
ásamt því að halda uppi atvinnustigi.
Líkt og í öðrum rekstri er mikilvægt að sauð-
fjárbændur fái viðunandi verð fyrir sína vöru og
hafi þannig forsendur til áætlanagerðar og
ákvarðanatöku. Því er skorað á afurðastöðvar að
gefa út afurðaverð 2021 fyrir komandi áramót.
Samkvæmt samantekt Landssamtaka sauðfjár-
bænda var afurðaverð til íslenskra sauðfjárbænda
á síðasta ári það lægsta sem finnst í Evrópu og
miðað við nýbirtar verðskrár 2020 er vegið
meðalverð 502 kr./kg. Hefði afurðaverð fylgt
almennri verðlagsþróun frá 2014 ætti það að vera
690 kr./kg. Því vantar enn tæpar 200 kr./kg. upp á
afurðastöðvaverð fylgi verðlagsþróun.
Í heimsfaraldri vegna COVID-19 fengu Íslend-
ingar áminningu um mikilvægi innlendrar
matvælaframleiðslu. Skapa þarf greininni stöðug-
leika í rekstri til lengri tíma og styðja á öflugan hátt
við innlenda matvælaframleiðslu.“
„Öll viðbrögð við erindinu og sú aðstoð sem
viðtakendur geta lagt málinu er þegin með þökk-
um,“ segir í tilkynningu sveitarfélaganna. /PF
Húnabraut 4 á Blönduósi
Þrír aðilar hafa tekið til starfa í
endurbyggðu húsnæði Ámundakinnar
á Húnabraut 4, Blönduósi. Þetta eru
Ungmennasamband Austur-Húna-
vatnssýslu (USAH) og Ungmenna-
félagið Hvöt, Húnakaffi (brauðgerð)
og Hárgreiðslustofa Bryndísar Braga.
Undanfarin tvö ár hafa farið fram
gagngerar endurbætur á húsinu og
lóðinni í kring um það sem sér nú brátt
fyrir endann á. Þá mun ÁTVR flytja
verslun sína í húsið og opna þar á
næstunni.
Koma þessara aðila í húsið fellur vel að
þeim markmiðum Ámundakinnar, að á
þessu svæði verði að finna fjölþætta
þjónustu í þágu íbúa héraðsins. /Húni.is
Þrír nýir aðilar taka til starfa
Aflatölur 25. – 31. október 2020 á Norðurlandi vestra
Rólegt á miðunum í síðustu viku
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Sæfari HU 212 Landbeitt lína 1.471
Særif SH 25 Lína 15.541
Alls á Sauðárkróki 465.700
SKAGASTRÖND
Auður HU 94 Landbeitt lína 1.427
Dagrún HU 121 Handfæri 312
Hafrún HU 12 Dragnót 17.274
Kristinn HU 812 Landbeitt lína 21.871
Sævík GK 757 Landbeitt lína 11.625
Alls á Skagaströnd 52.509 HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 21.932
Steini HU 45 Handfæri 3.570
Alls á Hvammstanga 25.502 SAUÐÁRKRÓKUR
Akurey AK 10 Botnvarpa 99.992
Drangey SK 2 Botnvarpa 142.360
Helga María RE 1 Botnvarpa 81.048
Málmey SK 1 Botnvarpa 106.919
Onni HU 36 Dragnót 6.779
Stakkhamar SH 220 Lína 11.590
Fimm bátar lögðu upp á Skagaströnd í síðustu viku og var samanlagður afli þeirra rétt tæp
53 tonn. Á Sauðárkróki var landað tæpum 466 tonnum, þar áttu togararnir Drangey SK 2 og
Málmey SK 1 tæp 250 tonn. Enginn bátur landaði á Hofsósi en tveir bátar lönduðu á
Hvammstanga, rúmum ellefu tonnum. Heildarafli síðustu viku á Norðurlandi vestra var
543.711 tonn. /SG
Jóhannes Torfason, framkvæmdastjóri Ámundarkinnar, afhendir Bryndísi
Bragadóttur lykil að nýju húsnæði hárgreiðslustofu sinnar. MYND: HÚNI
2 42/2020