Feykir - 04.11.2020, Side 6
sínum. Þar ólust upp fjölmörg
börn auk allra sumarbarnanna
sem þar dvöldu um styttri eða
lengri hríð. Þegar fyrst var
búið að taka ákvörðun um að
gera húsið upp þá kom það
eiginlega af sjálfu sér að nýta
það sem gistiaðstöðu.“
„Það er gaman þegar
gestirnir okkar eru ánægðir“
„Það má reyndar segja að þessi
gisting hafi bara orðið því
aðstæður réðu því að á Frosta-
stöðum var stórt íbúðarhús,
Myndin er úr stúdíóíbúð í risinu. Við innréttingu íbúðanna var reynt að blanda nýju saman við gamla muni úr húsinu og víðar að til að skapa heimilislegt andrúmsloft.
MYNDIR TÓKU HILDUR MARÍA VALGARÐSDÓTTIR OG ÞÓRA KRISTÍN ÞÓRARINSDÓTTIR
Spjallað við Söru R. Valdimarsdóttur á Frostastöðum
Frostastaðir sveitagisting í Blönduhlíð í Skagafirði
er í eigu Þórarins Magnússonar, bónda, og Söru R.
Valdimarsdóttur, kennara, sem búsett eru á Frosta-
stöðum, um 12 kílómetra frá Varmahlíð. Þau sjá bæði um
reksturinn en einnig hafa tvær dætra þeirra, Inga Dóra og
Þóra Kristín, hjálpað til við framkvæmdir og rekstur
ásamt tengdasonunum Edu og Rúnari. Það er ekki langt
síðan gamla húsið var tekið í gegn og farið var að bjóða
gistingu í þremur vel útbúnum íbúðum.
UMFJÖLLUN
Óli Arnar Brynjarsson
byggt 1947, sem stóð að mestu
autt, hafði ekki fengið viðhald
í áratugi og var í afar slæmu
ásigkomulagi,“ segir Sara.
„Húsið á áhugaverða sögu því
í því bjuggu fjórir bræður, allir
bændur, ásamt fjölskyldum
Framkvæmdir hófust haust-
ið 2014. Það var Sveinn Brynjar
Friðriksson, smiður, sem ásamt
heimilisfólki hóf endurbætur á
gamla húsinu með að skipta
um jarðveg undir húsinu og
styrkja undirstöður þess. „Einn
tengdasonurinn, Eduardo,
var nýfluttur til landsins frá
Argentínu og fékk sannkall-
aða eldskírn í íslenskri Klepps-
vinnu við að moka mold upp
og út og möl inn – allt með
skóflu og hjólbörum. Seinna
tók fyrirtæki föður Sveins
Brynjars, Lambeyri ehf, við
verkinu með Guðmund Guð-
mundsson frá Fossum sem
yfirsmið. Við gætum ekki verið
ánægðari með þeirra verk og
margir gestir hafa nefnt hversu
handbragð á allri smíðavinnu
er fallegt,“ segir Sara.
Nú er búið að gera upp
þrjár íbúðir í húsinu auk
þess að skipta um þak, ein-
angra og klæða húsið utan.
Íbúðirnar þrjár eru allar í
útleigu en framkvæmdum
á neðstu hæð er enn ólokið.
„Þar er ætlunin að bæta við
gistiherbergjum. Íbúðirnar
hafa allar eldunaraðstöðu en
gestir geta keypt morgunmat
og kvöldmat hjá okkur ef þeir
óska,“ bætir Sara við.
Ansi margir bændur hafa tekið
sig til og útbúið gistiaðstöðu
hjá sér; hvers vegna, hvað er
það sem heillar? „Að reka
gistingu í sveit fer vel með
sauðfjárbúskap, því það er
mest að gera í gistingunni
á sumrin þegar fé er á
fjalli. Okkur finnst mjög
skemmtilegt að reka þessa
gistingu, við hittum fjöldann
allan af skemmtilegu og
áhugaverðu fólki og það
er gaman þegar gestirnir
okkar eru ánægðir. Þeir
nefna oft hvað þeim finnst
mikils virði að geta spjallað
við okkur, fólkið sem býr í
þessu landi, og þannig fræðst
persónulega um hvernig er
að búa hér. Við fáum oft mjög
skemmtilegar spurningar um
lífið og tilveruna á Íslandi
6 42/2020