Feykir - 04.11.2020, Síða 7
og gerum okkar besta til að
leysa úr þeim. Við höfðum
reyndar komist á bragðið
með að vera gestgjafar áður
því við vorum með Airbnb
gistingu og morgunmat í
okkar íbúðarhúsi áður en
gamla húsið var komið í
stand og líkaði það mjög vel.“
Hefur Covid-faraldurinn sett
strik í reikninginn hjá ykkur?
„Þrátt fyrir Covid var bara
þó nokkuð að gera hjá okkur
í júlí, ágúst og alveg fram í
septemberlok en með hertum
aðgerðum á landamærum
var búið með það. Við, eins
og allir aðrir gistiaðilar,
vonum að næsta ár verði
betra og að við getum haldið
áfram að kynna okkar fallega
fjörð og land fyrir gestum.“
Hvernig gestir eru það sem
heimsækja Frostastaði? „Lang-
stærstur hluti okkar gesta
eru erlendir gestir sem
eru að aka hringinn um
landið á bílaleigubílum. Við
viljum mæta okkar gestum
á persónulegum nótum, hér
eru til dæmis engin lyklabox
fyrir íbúðirnar, heldur tökum
við á móti gestunum þegar
þeir koma og við reynum
að vera dugleg að spjalla
við þá og verða þeim að liði
með fræðslu um afþreyingu
og áhugaverða staði að
heimsækja. Stundum þarf
að bregðast fljótt og vel við
eins og til dæmis þegar komu
hér franskir gestir um sjö
leytið á gamlársdagskvöldi.
Þeir höfðu bókað gistingu
en ekki áttað sig á því að hér
væru bæði veitingastaðir og
búðir lokaðar þennan dag
– voru því matarlausir og
komust ekki út að borða. Þá
var ekki annað að gera en
tína til í fljótheitum eitthvað
matar- og drykkjarkyns svo
þeir gætu útbúið sér góða
gamlársmáltíð. Sem við og
gerðum og kvöddum þá hina
ánægðustu næsta dag,“ segir
Sara að lokum.
Eins og sjá má á mynd-
unum sem fylgja umfjöllun-
inni hafa breytingar á hús-
næðinu tekist með miklum
ágætum, öll aðstaða er bæði
falleg, hlý og persónuleg og
blaðamaður er hreinlega
undrandi á að gestirnir fáist
yfirleitt til að yfirgefa Frosta-
staði sveitagistingu.
Þórarinn, Inga Dóra með dóttirina Lunu Maríu, Sara og Þóra Kristín.
Þeir sem fylgjast með ferðaþjónustubónd-
anum Evelyn Ýr Kuhne á samfélagsmiðl-
unum hafa pottþétt tekið eftir góðvini
hennar, fjárhundinum Sóma, sem er síkátur
og sæll í sinni sveit. Evelyn, sem er fædd og
uppalin í Þýskalandi, býr á Lýtingsstöðum í
Skagafirði ásamt Sveini Guðmundssyni en
saman eiga þau Júlíus Guðna sem er 17 ára.
„Þótt ég sé fæddur Þjóðverji þá slær hjarta
mitt fyrir íslenskum menningararfi í sinni
fjölbreyttustu mynd,“ segir Evelyn og bætir
við að hún sé nú búin að vera sjálfkjörinn
Lýtingur í aldarfjórðung.
Reykjavalla Íslands Sómi er einn af þremur
hundum fjölskyldunnar á Lýtingsstöðum en
hann er rúmlega ársgamall íslenskur fjár-
hundur. „Fæddur í Lýtingsstaðahreppi – sem
gefur honum auðvitað aukastig,“ segir Evelyn.
Hvernig eignuðust þið Sóma? „Örlög! Eftir
að við misstum uppáhaldstík bóndans í
fyrravor bað hann okkur í guðanna bænum
um að láta okkur ekki detta í hug að fá nýjan
hvolp. Þangað til við heimsóttum Hönnu á
Reykjavöllum,“ segir Evelyn sem viðurkennir
að hafa skipulagt heimsóknina og fjölskyldan
hafi „alveg óvart“ hitt Sóma og systkini hans
sem þá voru rétt nýbyrjuð að opna augun.
„Þá var ekki aftur snúið. Ég kolféll fyrir Sóma
þrátt fyrir að hann líktist á þessum tímapunkti
frekar naggrís en stæðilegum íslenskum fjár-
hundi. En af hverju hann? Jú, hann bar þetta
nafn sem lét hjartað mitt slá hraðar. Fyrsti
hesturinn sem ég eignaðist og fékk frá Sveini
mínum hét nefnilega Sómi. Hann var orðinn
30 vetra gamall og átti ekki langt eftir og mér
þótti svo vænt um að halda í nafnið, þó ég
gæti ekki hugsað mér að eiga aftur hest með
þessu nafni. Okkur Júlíusi tókst að sannfæra
Svein um að það væri nauðsynlegt að kaupa
hvolpinn, nema hann vildi breyta um lífsstíl
sem hann vildi auðvitað ekki. Við fjölskyld-
an sameinuðumst um að Sómi væri jóla-
gjöfin okkar það ár [2019] og hann flutti til
okkar þremur dögum fyrir aðventustorminn
fræga.“
Hvað er skemmtilegast við gæludýrið þitt?
„Sómi er skemmtilegur karakter; glaður,
brosmildur, vill vera hjá manni og er alltaf til
í allt. Hann er orkubolti og finnst gaman að
hlaupa en kann líka að liggja í rólegheitum á
skrifstofunni á meðan ég er að vinna í
tölvunni. Hann elskar fólk og öll dýr og hefur
sýnt fram á góða smalahæfileika en sem
sveitahundur hefur hann ákveðnar skyldur
sem hann þarf að sinna. Hann hefur aðstoðað
mig í móttöku gesta og finnst mest gaman að
stökkva upp á torfhúsið og horfa yfir óðalið
sitt. Hann er eðaleintak íslenska þjóðarhunds-
ins og þannig kynni ég hann!“
Hvað er erfiðast? „Að freistast til þess að taka
endalaust myndir af honum.“
Ertu með einhverja sniðuga eða merkilega
sögu af Sóma? „Uppáhaldsfréttirnar á Face-
book eru fréttir af Sóma, skrifaði vinkona
mín að austan um daginn. Einnig á Sómi
aðdáendur vestur um haf en heill vinnustaður
í Calgary sem er búinn að vera í homeoffice í
marga mánuði fær daglegar fréttir og myndir
af Sóma í gegnum vinkonu mína. Um daginn
var hann sagður flottasti viðskiptavinurinn í
Vélavali en þar fær hann alltaf hlýjar móttökur
hjá Kolla vini sínum. Fólk sem hefur ekki hitt
hann ennþá er búið að lýsa því yfir að þurfa
að gera sér ferð til að bæta úr því um leið og
Covid leyfir. Þannig hefur þessi sjarmör glatt
fólk víða þrátt fyrir ungan aldur og veitir
manni ekki af að halda í góða skapið á þessum
skrítnu og erfiðu tímum,“ segir Evelyn að
lokum.
Sómi er sjarmör og gleðigjafi
ÉG OG GÆLUDÝRIÐ | oli@feykir.is
Evelyn Ýr Kuhne | fjárhundurinn Sómi
Evelyn og Sómi ásamt hestinum Sóma frá Lýtingsstöðum síðasta vetur.
MYND: JÚLÍUS GUÐNI
42/2020 7