Feykir - 04.11.2020, Qupperneq 12
Um vorið
Jón Hákonarson
Espólín, er utan hafði
farið til búnaðarnáms,
kom heim eftir rúmlega
þriggja ára nám í
Danmörku og námsferðir til Noregs og Svíþjóðar og
settist að á Frostastöðum. Heimkominn fékk Jón
styrk til ferðalaga um landið; skyldi kynna sér
búnaðarástand.
Einkum vildi hann athuga búfárkyn og safna
gögnum um húsdýrasjúkdóma og gera athuganir á
jarðvegi. Ekki fékk hann styrk til þessa verkefnis
nema sumarið 1851. Hann hóf þá búnaðarkennslu á
Frostastöðum. /PF
Skagfirskur annáll
Kristmundar Bjarnasonar 1847–1947
1851
Smáframleiðendur á ferðinni | Spjallað við Þórhildi Jónsdóttur
Sendibíll fullur af góðgæti
Það hafa eflaust margir, sem fylgjast með
Vörusmiðju BioPol á Facebook eða skoða
Sjónhornið, orðið varir við smáframleiðendur á
Norðurlandi vestra þar sem þeir hafa verið
áberandi síðustu vikurnar eftir að sérútbúinn
sendibíll fór á flakk með vörurnar þeirra í þeim
tilgangi að selja þær. Þetta flotta verkefni sem
kallast Smáframleiðendur á ferðinni virkar þannig
að sá aðili sem er að framleiða afurð getur boðið
upp á hana í þessum bíl sem
staðsettur er í tiltekinn tíma á
nýjum og nýjum stað á
Norðurlandi vestranokkra daga
í röð. Áhugasamir geta svo
komið og keypt vörur frá
smáframleið-endum á þessum
fyrirfram ákveðnu stöðum eða
til að sækja það sem pantað var
í gegnum netverslunina
hjá vorusmidja.is.
Þórhildur Jónsdóttir, eða Tóta í
BioPol eins og hún er oftast
kölluð, er forsvarsmaður þessa
verkefnis sem hún fékk styrk í
maí sl. frá SSNV eftir að þeir
óskuðu eftir hugmyndum að sér-
stökum átaksverkefnum vegna
áhrifa Covid 19 á starfssvæði
samtak-anna og komu um 90 hugmyndir inn á borð
til þeirra. „Hugmyndin með verkefninu var að auka
aðgengi að vörum frá smáframleiðendum af svæð-
inu. Verkefnið tók allnokkurn tíma í undirbúningi
því erfiðlega gekk að finna bíl sem hentaði, því þeir
lágu ekki á lausu. Síðan fundum við þennan og
settum allt af stað. Þá var áskorun að hafa bílinn
huggulegan, jafnt utan sem innan, og fengu nokkra
til liðs við okkur í það verkefni,“ segir Tóta.
Þeir sem komu að þessu verkefni voru hönnuð-
urinn Sóley Lee Tómasdóttir sem hannaði útlitið á
bílnum og allt markaðsefni sem þarf að nota og
Þröstur í Myndun merkti svo bílinn. „Við vildum
líka að bíllinn tæki vel á móti okkar viðskiptavinum,“
segir Tóta og var Þuríður Helga Jónasdóttir, innan-
húsarkitekt, fengin í lið með þeim til að raða upp í
bílinn og velja með þeim liti og er ekki annað að sjá
en vel hafi tekist til. En þá var verkið bara hálfnað,
þegar bíllinn var tilbúinn, þá þurfti einhvern til að
keyra bílinn, selja vöruna og fá vörur til að selja í
bílnum. En þar sem mikil gróska er í alls konar
framleiðslu hér á Norðurlandi vestra var ekki erfitt
að finna vörur til að selja í þessum flotta bíl að sögn
Tótu því þetta er í leiðinni frábært tækifæri fyrir
Gefa fólki í neyð
40.000 máltíðir
Höfðingleg gjöf KS til Fjölskylduhjálpar
Kaupfélag Skagfirðinga og dótturfyrirtæki þess í
matvælaframleiðslu ætla að gefa fólki í erfiðleikum
matvöru, sem svarar til 40.000 máltíða, fram til jóla.
„Þetta er alger himnasending,“ segir Ásgerður Jóna
Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálparinnar, í
Morgunblaðinu sl. föstudag.
„Þetta er alger himnasending,“ er haft eftir Ásgerði
Jónu en þörfin fyrir aðstoð af þessu tagi er gríðarleg og
eykst dag frá degi. „Þetta er stærsta matargjöf allra tíma
og hún gæti ekki komið á betri tíma,“ segir Ásgerður
Jóna í fréttinni og bætir við að þörfin hafi aldrei verið
meiri, ekki einu sinni í hruninu.
„Við gerum þetta vegna þess að Kaupfélag Skagfirð-
inga hefur í langan tíma verið farsælt í matvælafram-
leiðslu bæði í landbúnaði og sjávarútvegi. Þegar skyndi-
legur vandi af þessari stærðargráðu steðjar að finnst
okkur það einfaldlega vera skylda okkar að leggja okkar
af mörkum til þeirra sem verst standa. Okkur hefur
gengið vel á undanförnum árum að skapa verðmæti úr
þeim miklu auðlindum þjóðarinnar til sjávar og sveita
sem okkur er treyst fyrir og við viljum með þessu
framlagi sýna samstöðu með þeim vanda sem öll þjóðin,
og ekki síst þeir sem mest eiga undir högg að sækja,
horfist í augu við um þessar mundir,“ sagði Þórólfur
Gíslason við Feyki.
Eins og áður segir nemur framlag kaupfélagsins ígildi
fjörutíu þúsund matarskammta og verður hjálparstofn-
unum, sem einkum sinna úthlutun matvæla, falið að
koma þessum styrkjum til skila. /PF
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
42
TBL
4. nóvember 2020 40. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
jónsdóttir tók að sér það verkefni og hefur sinnti því
af mikilli natni,“ segir Tóta.
„Fyrsta ferðin var farin í júlí með bílinn fullhlað-
inn af góðgæti, rósum, garni og kremum. Viðtök-
urnar voru frábærar og þurfti nánast daglega að fylla
á bílinn. Þar sem þetta er þróunarverkefni var byrjað
á að keyra aðra hverja viku í sumar eftir fyrirfram
ákveðnu leiðakerfi allt frá Borðeyri og út í Fljót.
Núna í haust var ákveðið að halda áfram og tekin
ákvörðun um að keyra bílinn einu sinni í mánuði út
árið. Viðtökurnar hafa ekki verið síðri á haust-
mánuðum en í sumar því salan í síðustu ferð toppaði
allar fyrri ferðir, sem er mjög ánægjulegt og greinilegt
að heimamenn kunna að meta þessa þjónustu. Nú er
bara að finna út hvernig hægt er að festa þessa
þjónustu í sessi á nýju ári því þetta kostar jú allt
peninga en við finnum fyrir þörf á að auka aðgengi
að vörum frá smáframleiðendum,“ segir Tóta að
lokum.
Þeir sem hafa áhuga á að panta vörur frá smá-
framleiðendum er bent á netverslunina á heimasíð-
unni www.vorusmidan.is en næsta ferð hjá bílnum er
áætluð í lok nóvember og verður hún auglýst nánar í
Sjónhorninu. /SG
Auðbjörg Ósk Guðjónsdóttir tekur vel á móti viðskiptavinum í sendibílnum.
MYND: FACEBOOK-SÍÐA VÖRUSMIÐJUNNAR
smáframleiðendur til að kynna hvað þeir eru með í
boði því Norðurland vestra er svo dreift svæði og
margir að gera góða hluti í smáframleiðslu. Þegar
verkefnið fór fyrst af stað voru 13 aðilar að selja sína
vöru í bílnum en í dag eru þeir orðnir 18 og vonandi
bætist í flóruna á nýju ári. „En þá var bara eftir að
finna bílstjórann og sölumanninn, það er ekki
sjálfgefið að ein og sama manneskjan hefði gaman af
því að keyra og selja vörur en Auðbjörg Ósk Guð-
Allir með Feyki!
Það er mikilvægt að halda úti fjölmiðli sem segir fréttir
og fjallar um fólk af Norðurlandi vestra. Það gerir Feykir.
Áskrifendur eru Feyki nauðsynlegir.
Er ekki upplagt að gerast áskrifandi að
góðu blaði og fréttum af þínu fólki?
Hafðu samband í síma 455 7171
eða sendu póst á feykir@feykir.is BORGARFLÖT 1 | 550 SAUÐÁRKRÓKUR | SÍMI 455 7176 | FEYKIR.IS
Höfuðstöðvar Kaupfélags Skagfirðinga, Skagfirðingabúð
og mjólkursamlag. MYND: PF