Fréttablaðið - 21.12.2021, Blaðsíða 24
Það
er
keppni um
besta ísinn
og stund-
um sér
maður
skilti á
vegg sem
stendur að
þarna hafi
verið
valinn
besti ís í
heimi.
Leifur Kolbeinsson, mat-
reiðslumeistari og eigandi
La Primavera, hefur dvalið
mikið á Ítalíu enda leggur
hann áherslu á matargerð
þaðan. Leifur segir að á Ítalíu
sé aldagömul íshefð sem
íbúar séu afar stoltir af.
elin@frettabladid.is
Leifur var að gefa út nýja mat-
reiðslubók, Tuttugu og fimm, þar
sem hann gefur uppskriftir að
vinsælum uppskriftum frá Norður-
Ítalíu. Fyrir 20 árum gaf Leifur út
bókina Primavera sem seldist upp
og hefur verið ófáanleg. Aðdáendur
La Primavera ættu því að fagna
þessari nýju bók. „Ég hef mikið
verið spurður um eldri bókina og
fékk stöðugt hvatningu til að gera
aðra bók. Ég lét slag standa en í
þessari bók eru nokkrar uppskriftir
sem voru í eldri bókinni auk fjölda
nýrra,“ segir hann.
Leifur gaf sömuleiðis út bókina
Ítalskir réttir með Hagkaup árið
2007 sem einnig var mjög vinsæl.
„Ég heyri það mjög oft að fólk sé
enn að elda rétti sem voru í þessum
bókum. Sérstaklega hef ég heyrt
þetta oft eftir að ég opnaði La
Primavera aftur í Marshall-húsinu
úti á Granda,“ segir hann.
Með sögu og sérstakan kúltúr
Þegar Leifur er spurður hvort
Ítalir séu mikil ísþjóð, svarar hann:
„Heldur betur. Þeir eru með gelato
sem er ekki eins rjómakenndur
og ekki eins feitur og sá ís sem
við þekkjum hér á landi. Hann
er þéttari í sér, oft bragðmeiri og
ávaxtaríkur. Ísinn er eitthvað sem
Ítalir tóku með sér í gamla, gamla
daga frá fjarlægum löndum. Fyrsta
ísgerðin var á Sikiley. Það er sér-
stakur kúltúr í kringum ítalska
ísinn. Vinir og fjölskylda koma
saman og njóta þess að fá sér ís í
sumarhitanum. Þeir nota hráefni
úr sínu eigin nágrenni í ísinn, eins
og ber, sítrónur, ávexti, súkkulaði,
möndlur og hnetur.“
Ítalir eru ekki eins og Íslendingar
í ísbíltúrum. Þeir setjast á bekk
með ísinn og njóta hitans og
mannlífsins í kring. „Þeir þekkja
ekki bragðaref né að setja sælgæti
Ís er þjóðarstolt Ítala
Leifur Kolbeinsson hefur sérhæft sig í ítalskri matargerð á veitingastaðnum La Primavera. Hann
var að gefa úr nýja matreiðslubók með ítölskum réttum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
í ísinn. Mest eru þeir með ávexti.
Hvert þorp eða hérað hefur sína
útgáfu af ísnum og íbúar eru afar
stoltir af ísgerðinni. Það er keppni
um besta ísinn og stundum sér
maður skilti á vegg sem stendur
að þarna hafi verið valinn besti
ís í heimi. Þeir eru mjög stoltir
af ísnum sínum,“ segir Leifur.
„Ísgerðin er öflug iðngrein á Ítalíu
og þar er framleitt mikið af ísvélum
og öðrum tækjum og tólum sem
þarf til.“
Einfalt hráefni
Ís er oft á borðum sem eftirréttur
á ítölskum heimilum og þeir setja
hann til dæmis út í kaffi eins og
Leifur gefur hér uppskrift að. „Það
er vinsælt að bjóða nokkrar gerðir
af ís eftir matinn ásamt öðrum
hefðbundnum eftirréttum. Ítalir
eru miklir matmenn eins og tíðkast
við Miðjarðarhafið. Þeir leggja
mikla áherslu á mat úr héraði, sem
er hollur og einfaldur að útbúa.
Frakkar eru með flóknari matar-
gerð. Þeir nota fá hráefni og það
þarf svo lítið til að gera góðan disk.
Ítalskur matur er mjög vinsæll
hér á landi eins og víðast hvar í
heiminum. Þetta er matargerð sem
heillar flesta.“
Leifur segir að La Primavera hafi
verið vel tekið og alltaf nóg að gera
þótt vissulega hafi Covid sett strik
í reikninginn hjá honum eins og
á öðrum stöðum. „Það eru margir
sem vilja njóta aðventunnar
með því að fara út
að borða. Við
opnuðum annan
stað í Hörpu í
byrjun hausts
og höfum
opið þar
þegar við-
burðir eru
í Eldborg.
Okkur hefur
líka verið vel
tekið þar og
við, eins og
aðrir, hlökkum
til þegar samkomu-
takmörkunum
verður aflétt og lífið
kemst aftur í sitt venjulega horf.
Það er mikið bókað fram í tímann
og það verður mikið um að vera
þegar fólk getur farið að lifa eðli-
legu lífi.
Leifur gefur hér uppskriftir úr
nýju bókinni. Biscotti, sem eru
mjög vinsælar kökur á Ítalíu, og ís í
espresso sem gaman er að smakka.
Biscotti
Þessar stökku, tvíbökuðu kökur
eru góðar einar og sér eða til að
bera fram með ís. Einnig er gott að
dýfa biscotti í kaffi eða vin santo.
250 g hveiti
0,5 msk. lyftiduft
125 g heilar hýðislausar möndlur
75 g dökkt súkkulaði (gróft saxað)
2 egg
1 eggjarauða
225 g sykur
3 appelsínur (bara börkurinn)
Þeytið eggin, eggjarauðuna og
sykurinn vel saman. Blandið öllum
þurrefnunum saman við og mótið
í fjórar lengjur á smurðri ofnplötu.
Bakið við 170°C í um það bil 20
mínútur.
Takið kökurnar út og látið kólna
aðeins. Skerið síðan í sneiðar, um
sentimetra á breidd, og raðið á ofn-
plötu þakta smjörpappír.
Bakið við 100°C í 60 mínút-
ur. Þessar kökur geymast vel í
lokuðu íláti.
Vanilluís með espresso
Affogato
Affogato er ljúffengur réttur
þar sem heitu espresso-kaffi
er hellt yfir vanilluís.
Svo ótrúlega einföld
og auðveld leið til
að gleðja fólk. Með
þessum einfalda rétti er
gott að bera fram biscotti.
4 vanilluískúlur
4 einfaldir espresso
Setjið ísinn í glas. Hellið kaffinu
yfir. Já, og þá er það komið. Ein-
falt, ferskt og gott. n
Espresso með ís og
ítalskt biscotti.
Dásamlegt saman.
Lorem
599kr
CANDY
FLOSS
jólaréttir huppu
Gleðileg Huppujól
Piparkökurefur
Piparkökur
kókosbolla
heit karamellusósa
Bismark refur
Bismark brjóstsykur
bismark súkkulaði
hvít súkkulaðidýfa
Bismark shake
Bismark brjóstsykur
hindberjasósa
Piparkökushake
Piparkökur
heit karamellusósa
kanill
4 kynningarblað 21. desember 2021 ÞRIÐJUDAGURÍS OG ÍSBÚÐIR