Fréttablaðið - 21.12.2021, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 21.12.2021, Blaðsíða 20
Krydd mulin niður og blandað saman við salt og sykur. Sett yfir gæsabringur og látið standa í kæli í 2 til 3 daga, fer eftir stærð á bringu. Skolið létt og þerrið vel. Eggjabrauð Franskbrauð – skorpa skorin af og brauðsneiðin skorin til helminga 200 g rjómi 60 g eggjarauður 8 g salt Smá truffluolía – má sleppa Hrært saman, brauð bleytt stutt í blöndunni og steikt á pönnu við vægan hita á báðum hliðum. Andalifur Andalifur Andalifur sneidd niður, krydduð með salti og pipar og svo steikt á báðum hliðum við háan hita. Seljurótar- og eplahrásalat 60% seljurót, afhýdd 40% græn epli, skræld Majónes Grófkorna sinnep Truffluolía Sítrónusafi Steinselja, söxuð Salt og pipar eftir smekk Seljurótin og epli rifin niður í grófu rifjárni og blandað saman við hæfilegt magn af majónesi og smakkað til með rest. Svo er að setja þetta saman. Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is Matur skipar stóran sess í lífi fjölskyldna yfir jólahátíðina sem fram undan er og margir í óðaönn að undirbúa mat- seðlana fyrir hátíðina og þar á meðal er Sigurður Laufdal landsliðskokkur. Sigurður Laufdal á að baki glæsi- legan feril úr hinni margrómuðu Bocuse d’Or en hann var keppandi fyrir Íslands hönd á árunum 2019 til 2021 með glæsilegum árangri. Sigurður ætlar að opna eigin stað á næsta ári ásamt öðru góðu fólki. „Þegar ég var yngri þurfti allt að vera eins ár eftir ár en það hefur breyst mikið með árunum, til að mynda verður ekki kjöt á boð- stólum á aðfangadag núna. Ég hef gaman af skötuhefðinni á Þorláksmessu. Graflax á ristuðu brauði með graflaxsósu er líka alltaf klassík og svo seinustu ár hefur nautalund Wellington verið í uppáhaldi fyrir gamlárskvöld. Áhugi minn á matreiðslu kviknaði ekki fyrr en ég neyddist til að ákveða mig hvað ég vildi gera þegar ég yrði stór. Hef ekki litið við síðan,“ segir Sigurður. Manstu eftir einhverjum skemmtilegum byrjendamistökum í eldhúsinu? „Ekki yfir hátíðarnar en á nóg af mistökum í eldhúsinu í gegnum árin, hef notað salt í stað sykurs í súkkulaðiköku sem ég mat- reiddi í veiðihúsinu við Selá fyrir einhverjum árum við mikla gleði viðstaddra. Og á töluvert meira inni, lærir maður ekki mest af eigin mistökum?“ segir Sigurður. Fátt sem toppar rjúpusúpu Ertu til í að svipta hulunni af þínum Sælkera- villibráðarkræsingar Sigurður Laufdal matreiðslu- meistari hefur í hyggju að opna nýtt veitingahús á nýju ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR Uppáhaldsvillibráðarréttur Sigurðar er rjúpusúpa sem er einstaklega góð. Grafin gæs og andalifur á eggjabrauði ásamt, sult- uðum kirsuberj- um, seljurótar- eplahrásalati og valhnetum. Eggjabrauð með gæs og anda- lifur. uppáhaldsvillibráðarrétti ? „Ég smakkaði rjúpusúpu í fyrsta skipti hjá Stulla (Sturlu Birgissyni) fyrir áratug og get auðveldlega sagt að það sé minn uppáhaldsvilli- bráðarréttur. Mér fannst vel við hæfi að bjóða upp á rjúpusúpu þar sem litli bróðir minn veiddi nokkr- ar rjúpur og mér finnst mjög líklegt að ég muni gera súpu úr rjúpunni á nýársdag, hinir tveir réttirnir eru hugmyndir að villibráðarsmá- réttum í óhefðbundnum stíl. Að lokum langar mig að hvetja ykkur til dáða í matargerðinni. Ekki vera hrædd við að prófa nýjungar og fara óhefðbundnar leiðir yfir jól og áramót.“ Grafin gæs og andalifur á eggjabrauði Grafin gæs 50/50 salt og sykur Fennelfræ Rósapipar Sinnepsfræ Anís Dill, saxað Þunnsneiðið gæsabringuna, steikið eggjabrauð og andalifur. Hrásalat fer ofan á eggjabrauðið, raðið sneiðum af gæs ofan á, því næst fer steikt andalifur ofan á ásamt sultuðum kirsuberjum og sykruðum pekanhnetum. Toppið með jurtum að eigin vali. Kremuð rjúpusúpa að hætti Sigga Laufdal og Sturlu Birgis Rjúpusoð 6 rjúpubein, brúnuð í potti 4 l vatn 3 rósmaríngreinar 1 stk. lárviðarlauf 10 stk. svört piparkorn 5 stk. einiber, mulin Soðið við vægan hita í þrjár klukkustundir. Síðan sigtað í annan pott. Soðið niður í ca. 1,5 til 2 lítra. Súpa 500 ml Madeira 1,5 l rjómi 180 g 36% sýrður rjómi 250 g smjör 2 msk. kóngasveppakraftur/villi- sveppakraftur 1 msk. andakraftur 8 stk. svört piparkorn 4 stk. einiber, mulin Madeira soðið niður um helming, soð og rjóma bætt við og soðið niður um 1/3 ásamt krafti, eini- berjum og piparkornum. Hrá rjúpulifur og -hjörtu mauk- uð. Þetta er sett út í þegar súpan er næstum því tilbúin, sigtað. Smjöri og sýrðum rjóma bætt við með töfrasprota og smakkað til með salti, þykkt ef þess þarf. Hreindýratatakispjót, granat epli, sesamfræ, kryddjurtir og stökk svartrót Hreindýraspjót Hreindýravöðvi Brúnið vöðvann á háum hita í pönnu með olíu, kjötið á að vera hrátt en vel brúnað. Tataki-marinering 6 msk. soja 2 msk. hunang 4 msk. hrísgrjónavín eða sérrí 2 stk. vorlaukur, fínt skorinn 1 stk. hvítlauksgeiri, fínt saxaður Svartur pipar, mulinn Smá engifer, fínt saxað Öllu hrært saman og hreindýr marinerað yfir nótt, þunnt skorið og sett á spjót. Stökk svartrót 1 stk. svartrót/smælki kartöflur ef svartrót er ekki til Skrælið svartrót (þarf ekki að skræla smælki) þunnsneiðið á mandólíni og djúpsteikið við 150 til 160°C, þangað til orðið gullin- brúnt. Þerrið á pappír og stráið salti yfir. Sett saman. Sesam-majónes sett yfir hrein- dýraspjót, ásamt granateplum, sesamfræjum, stökkri svartrót og kryddjurtum að eigin vali. Sesam- og engifermajónes Majónes Soja Sesamolía Engifer Salt eftir smekk Skrælið engifer og rífið í rifjárni, smakkað til í majónes ásamt soja, sesamolíu og salti. n S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB Jólagjöfin hennar 4 kynningarblað A L LT 21. desember 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.