Fréttablaðið - 21.12.2021, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 21.12.2021, Blaðsíða 1
2 5 0 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 2 1 . D E S E M B E R 2 0 2 1 Ný lyfjagjöf gefur góða raun Teikniklámið var sjálfbært Fréttir ➤ 6 Lífið ➤ 26 HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · hekla.is/mitsubishisalur Fullnýttu þér niðurfellingu virðisaukaskatts áður en ívilnanir tengiltvinnbíla verða lagðar af og sparaðu 960.000 krónur. Eclipse Cross PHEV frá aðeins 5.490.000 kr. og jólapakki fylgir! Mitsubishi Eclipse Cross PHEV fyrir áramót! *Um áramót falla niður ívilnanir stjórnvalda og þar með niðurfellingar á virðisaukaskatti sem eru um 960.000 kr. Tryggðu þér 4x4 tengiltvinnbíl Sparaðu 960.000 kr.* gar@frettabladid.is HÖFUNDARRÉT TARMÁL „Mergur málsins er að ritstuldur er ólíðandi lögbrot sem enginn á að komast upp með,“ segir Árni H. Kristjáns- son sagnfræðingur í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag þar sem hann heldur fast í ásakanir á hendur Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra um ritstuld í skrifum fyrir Rann- sóknarnefnd Alþingis. Eins og kunnugt er hefur Ásgeir Jónsson hafnað öllum ásökunum um ritstuld. Árni kveður Ásgeir hins vegar hafa viðurkennt ritstuldinn. „Ég var beittur miklum órétti í skjóli Alþingis og það er mikilvægt að hið sanna í öllu málinu komi í ljós,“ skrifar Árni. SJÁ SÍÐU 13 Ítrekar ásakanir á hendur Ásgeiri Ríkisstarfsmönnum hefur fjölgað um ríflega þúsund á þriggja ára tímabili. Lífeyris- og álagsgreiðslur mismun- andi eftir tímabilum. bth@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA 21.605 Íslendingar voru ríkisstarfsmenn í árslok 2020. Fjöldi stöðugilda var 18.107. Heildarlaunakostnaður nam 278,9 milljörðum króna og óx um 49,2 milljarða milli ára. Stöðugildum hjá ríkinu fjölgaði á þriggja ára tímabili úr 17.050 í 18.107 eða um 1.052 starfsmenn. Þetta má lesa í ríkisreikningi. Þar kemur einnig fram að heildar- launagreiðslur voru mun hærri árið 2018 en 2019 þannig að hækkunin er ekki alltaf línuleg milli ára. Ingþór Karl Eiríksson fjársýslu- stjóri segir að inni í þessum tölum séu ekki bara útgreidd mánaðar- laun. „Þetta er heildarlaunakostnaður. Undir það falla lífeyrisskuldbind- ingar og launatengd gjöld,“ segir Ingþór. „Álagsgreiðslur og annað kemur þarna inn, allt sem tengist launum,“ bætir Ingþór við. Í árslok 2020 fengu 6.486 karlar greidd laun úr ríkissjóði en 11.621 kona. Hlutfall kvenna var því 64,2 pró- sent af öllum ríkisstarfsmönnum árið 2020. Karlarnir voru 35,8 pró- sent ríkisstarfsmanna. Mjög er mismunandi eftir árum hve ríkisstarfsmönnum fjölgar ört. Óveruleg fjölgun varð í þeirra röðum 2019-2020, eða innan við tuttugu manns. Milli 2018 og 2019 varð skrið þegar fjölgaði um nálega 430 ríkisstarfsmenn. Mesta fjölg- unin varð milli áranna 2017-2018 eða sem nemur tæplega 600 manns. Ingþór segir að hann sé ekki rétti maðurinn til að svara þeirri spurningu hvort þessi kostnaður sé orðinn sligandi fyrir íslenska ríkið. Þá segir Ingþór að aðeins vanti upp á að hægt sé að ræða tölur fyrir árið sem er að líða. n Launakostnaður ríkisins jókst um nærri fimmtíu milljarða milli ára Ár Fjöldi starfsmanna 2017 20.039 2018 20.607 2019 21.048 2020 21.065 Heildarfjöldi ríkisstarfsmanna Ögmundur Jónasson, fyrrverandi dómsmálaráðherra, mótmælti í gær við sendiráð Bretlands vegna máls Julians Assange, stofnanda Wikileaks, sem bíður framsals til Bandaríkjanna. „Hættið að ofsækja frelsið. Látið Julian Assange lausan,“ segir í bréfi til breska sendiherrans. Í bréfinu segir Ögmundur enn fremur að hann muni árétta þessa kröfu á þar til gerðu skilti fyrir framan sendiráðið aftur í dag og á morgun klukkan 12. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.