Fréttablaðið - 21.12.2021, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 21.12.2021, Blaðsíða 22
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Gelato er sérstök tegund af ís en byrjað var að búa hann til á Ítalíu á 17. öld og á hann sér því langa sögu. Gelato-ísinn inniheldur minni rjóma en hefðbundinn rjómaís og er því fituminni. Ísinn er alltaf ferskur og nýlagaður og blandaður hægar en venjan er með rjómaís. Ísinn er því þéttari í sér og áferðin er sérstaklega mjúk og silkikennd. „Við opnuðum ísbúðina í maí 2020 og höfum því verið að gera ítalskan gelato á Íslandi í eitt og hálft ár. En við höfum verið að búa hann til og þróa á Ítalíu í 25 ár. Ég flutti svo til Íslands og opnaði ísbúð hér,“ segir eigandinn Michele Gaeta, en ísbúðirnar eru staðsettar á Aðalstræti 6 og á Hlemmi mat- höll. „Ísinn hefur slegið í gegn hér á Íslandi. Við opnuðum búðina i miðju Covid en fólk beið samt í röðum eftir að kaupa ís. Íslend- ingar kunna greinilega vel að meta ekta ítalskan gelato.“ Michele leggur áherslu á að búa til ekta ítalska vöru í sem mestum gæðum. Allt hráefnið í ísinn er innflutt frá Ítalíu nema mjólkin og rjóminn. Það er gert til að tryggja ekta ítalskan gelato úr besta ítalska hráefni sem völ er á. Girnilegar gelato-kökur og ljúffengt sikileyskt cannoli „Við erum nýlega farin að gera gelato-kökur. Þær fást í hefð- bundnum bragðtegundum eins og tiramisù og crème brûlée. Svo erum við líka með Oreo-köku, köku með hindberja og ostabragði og köku með hvítu súkkulaði og pistasíuhnetum,“ segir Michele. Michele segir gelato-kökurnar fullkomnar sem eftirrétt á jól- unum. „Þær eru mjög fallegar og eru til í ýmsum stærðum fyrir allar stærðir af fjölskyldum og hópum. Það er líka hægt að kaupa bara eina sneið af gelato-kökunum hjá okkur. Þó við séum bara nýbyrjuð að bjóða upp á þessar kökur hafa þær verið mjög vinsælar,“ segir hann. „Við eigum þær tilbúnar í búðinni svo það þarf ekki að bóka þær fyrir fram nema þær eigi að vera fyrir mjög stóran hóp.“ Fyrir tveimur vikum byrjaði Michele líka að bjóða upp á sikil- eyskt cannoli í búðunum sínum. „Cannoli er eftirréttur frá Sikil- ey. Cannoli er djúpsteikt deig fyllt með ricotta-osti, súkkulaði og pistasíuhnetum. Það kom mér á óvart hvað það er vinsælt og hversu margir hér þekktu þennan eftirrétt,“ útskýrir Michele. „Það er ekki auðvelt að finna Hindberja- og osta- ístertan frá Gaeta er fullkominn eftirréttur á jólunum. Crème brûlée ísterta frá Gaeta úr ekta ítölskum gelato-ís. Ísinn frá Gaeta er til í ýmsum bragðtegundum og búinn til úr bestu ítölsku hráefnum sem völ er á. Hjá Gaeta er úrval af girnilegum gelato-kökum og eftirréttum sem eru full- komnir til að njóta eftir jólamáltíð með fjölskyldunni á aðfangadagskvöld. Verslanir Gaeta eru tvær, ein rúmgóð og björt á Aðalstræti og önnur minni á Hlemmi mat- höll. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR cannoli hér á Íslandi þar sem það er erfitt að fá ricotta-ost. En við flytjum ricotta-ostinn inn frá Ítalíu og búum cannoli-ið okkar til í búðinni á Aðalstræti.“ Michele segir tilvalið að fá sér cannoli með kaffibolla eða heitu súkkulaði í búðinni en svo megi einnig kaupa það til að taka með heim og borða eftir góðan mat. Ítalskt heitt súkkulaði Í ísbúðum Gaeta er hægt að kaupa ekta ítalskt súkkulaði sem er þykkara en heita súkkulaðið sem Íslendingar eiga að venjast. „Við bjóðum upp á fjórar útgáfur af heitu súkkulaði. Fyrir utan venjulegt súkkulaði erum við með heitt súkkulaði með saltkaramellu, heitt súkkulaði með ástaraldini og heitt súkkulaði með te-bragði, það bragðast eins og chai latte með kryddblöndu,“ segir Michele. „Svo núna í tilefni jólanna bjóðum við upp á ítalskt panettone. Það er ítölsk jólakaka. Allir Ítalir borða hana á jólunum, yfirleitt borða þeir hana eftir mat- inn og svo afganginn í morgunmat daginn eftir. Panettone er búið til úr eggjum, rúsínum og rifnum appelsínuberki,“ útskýrir hann. „Við erum með þrjár tegundir af panettone hjá Gaeta. Ein er með pistasíum, ein með heslihnetum og súkkulaði og svo venjulegt panettone. Við seljum panettone í tveimur stæðum, þau eru hálft kíló og eitt kíló. Það er óhætt að kaupa það nokkrum dögum fyrir jól því það geymist alveg. Panettone er að verða vinsæll jólaeftirréttur um allan heim.“ Michele segir að lokum að það hafi komið honum svolítið á óvart hvað Íslendingar eru sólgnir í ís á veturna. „Þeir elska ís á veturna. Á Ítalíu borðar fólk ís yfirleitt bara á sumr- in og mörgum ísbúðum er lokað yfir vetrartímann, en hér borðar fólk ís allt árið. Það er áhugavert af því veturnir hér er miklu kaldari en á Ítalíu,“ segir hann hlæjandi og bætir við að hann hlakki til að opna Gaeta-ísbúðir á fleiri stöðum á landinu svo fleiri geti notið þessa gæðaíss. Auk ísbúðanna er hægt að kaupa panettone og Gaeto-ís í Melabúð- inni og Fjarðarkaupum. n Þeir elska ís á veturna. Á Ítalíu borðar fólk ís yfirleitt bara á sumrin og mörg- um ísbúðum er lokað yfir vetrartímann, en hér borðar fólk ís allt árið. Michela Gaeta 2 kynningarblað 21. desember 2021 ÞRIÐJUDAGURÍS OG ÍSBÚÐIR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.