Fréttablaðið - 21.12.2021, Blaðsíða 17
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
ÞRIÐJUDAGUR 21. desember 2021
Hildur Þórðardóttir verslunarstjóri og Björn Þór Heiðdal, eigandi Rúmföt.is, með draumajólagjöfina í ár: dásamlega Black Forest dúnsæng. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Himneskar sængur og rúmföt
Rúmföt.is er ein flottasta rúmfata- og sængurbúð landsins. Þar fást dýrindis dúnsængur frá
Svartaskógi í Þýskalandi og lúxusrúmfatnaður í gæðum sem á sér fáar hliðstæður. 2
Jólahefðir eru misjafnar eftir
löndum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
elin@frettabladid.is
Í nýrri alþjóðlegri rannsókn sem
Festive Feels framkvæmdi á meðal
18 þúsund neytenda í 18 löndum
kemur fram að margt er ólíkt milli
landa þegar kemur að jólum. Til
dæmis upplifði rúmlega þriðj-
ungur Svía mikla streitu fyrir jólin
á meðan aðeins 22% Ítala svöruðu
því játandi. Rannsóknin sýnir að
aðeins 38% Svía eru áhugasöm
um kaup á jólagjöfum á meðan
um 48% annarra þjóða eru það.
Tæplega helmingi Svía, 49%, fannst
erfitt að velja jólagjafir. Þá kaupa
Svíar færri jólagjafir en margar
aðrar þjóðir eftir því sem sænski
vefmiðillinn Expressen greinir frá.
Blaðið segir að Svíar séu óskipu-
lagðir fyrir jólin sem auki stressið.
Gott skipulag kemur í veg fyrir of
mikla eyðslu sem eykur sömuleiðis
streitu.
Ísland ekki með
55% Svía töldu hefðir mikilvægar
um jólin en 60% í öðrum löndum.
26% Svía vilja hafa allt hreint og
fínt um jólin en meðaltalið annars
staðar var 60%. Svíar kaupa að
meðaltali fimm leikföng fyrir jólin
en heimsmeðaltal er 6,5. Margir
töldu að jólagjöfin ætti að hafa per-
sónulega þýðingu á meðan fjórða
hverjum fannst verðið skipta máli.
23% Svía telja samveru dýrmæt-
asta við jólin en meðaltal annars
staðar var aðeins 9%. Jólamatur
var mikilvægur fyrir 44% Svía en
aðeins hjá 32% í öðrum löndum.
Ísland var ekki með í þessari rann-
sókn. n
Staðreyndir um
jólahefðir