Dagrenning - 01.01.1941, Blaðsíða 9

Dagrenning - 01.01.1941, Blaðsíða 9
DAGRENNING 699 fyr meir hafa búiS saman norS ur viS Upernavík; en þá fékk bróSirínn óleyfilega ást á syst- ur sinni, því hún var afbragSs fögur, en hún reiddist, og fór upp í himininn en hann fór á eftir, og eltir hana, en getur ei náS henn. Fyrir því er hann orSinn fölur og fyrirgengilegur af áhuganum. Hann er næsta lausiátur og verSa allar stúlk- ur aS forSast hann. Þegar full- ur máni skín á læk. eSa vatn, verSa konur barnshafandi ef þaS vatn drekka; ekkí má hann heldur skína á þær fáklæddar, ef allt á vel aS fara. Himni hafi og jörSu fylgja ýmsir and- ar. sem varast verSur aS gera á móti eSa styggja, svo ekki komi óveSur og öll óáran. All- jr Grænlendingar, skírSir og ó- skírSir, trúa vofum og aftur- göngum, álíka og fleiri þjóSir. Alfar búa í klettum, og gegna þegar hátt er kallaS. Þegar Grænlendingar drukkna. má heyra og sjá svípi þeirra, þeg- ar þeir alvotir draga báta sína meS læri um f jöruna. Hvað lesa má í andlitunum. “Ætti ég aSkjósa um,” sagSi eitt sinn kona nokkur, “þá vildi ég heldur hafa viSkunn- anlegt andlit um fimmtugt en um tuttugu og fimm ára leitiS. HefSi ég fallegt andlit þegar ég væri 25 ára, gæti þaS ef til vill útvegaS mér gjaforS, en hefSi ég þaS um fimmtugt væri auS- séS aS þaS hefSi veriS tilvinn- andi aS eiga mig. Andlit mitt á 25 ára aldri er eins og guS hefir gert þaS, en um flmmtugt eins og ég hefi gert þaS sjálf. ” Andlit gainallar kona er lífs- saga, en andiit ungrar stúlku er — spádómur meS skilyrS- um, óskýr bending náttúrunn- ar um hvaS hún geti orSiS. Mér þykir vænt um gömul og góS andlit. Þau eru alltaf sönn lífssaga. AndlitiS er skugg- sjá sálarinnar. ViS höfum í raun og veru ekki séS andlitiS fyr en viS höfum séS allar til- finningar marka þar rúnir sínar

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.