Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.10.2001, Side 98

Strandapósturinn - 01.10.2001, Side 98
um milli félaganna Eflingar og Leifs heppna sem á tímabili voru árlegir viðburðir. Stærsta verkefnið er Efling réðst í var bygging félagsaðstöðu árið 1947. Sótt var um styrk til hreppsnefndar er veitti 1.500 krónur er var all rausnarlegt. Keyptur var braggi suður á Kefla- víkurflugvelli, rifinn þar af félagsmönnum og fluttur til Djúpa- víkur og settur þar upp. Allt var þetta unnið í sjálfboðavinnu, og var rnikið verk. Þó nokkur kostnaður var við þessar framkvæmd- ir og datt þeirn félögum þá í hug að halda skemmtun til að afla fjár eins og verða vill. A þessum árum var reist félagsheimili í Árnesi, eitt fyrsta sinn- ar tegundar á landinu. Leitað er eftir því að fá félagsheimilið lyr i 1 skemmtanahaldið og rætt við oddvita Pétur Guðmundsson, Ófeigsfirði. En þá kem- ur í Ijós að leigan fyrir húsið er það há að þeim félögum fannst vandséð að skemmtunin mundi standa undir sér. Þessi mál eru rædd við oddvitann en hann er ófáanlegur til að lækka leiguna sem átti að vera ákveðinn hluti af aðgangeyri. Ekki vildu þeir félagar una þessari niðurstöðu og fóru þeir Skúli Alexandersson Kjós og undirritaður, með lista um sveitina þar sem skorað var á oddvita að halda sveitafund um rnálið. Þessi háttur var algjört einsdæmi að tveir strákar varla komnir af barnsaldri væru með svona upphlaup við löglega kjörin og virðuleg yfirvöld. Þó munu þá hafa verið til nýlega samþykkt lög sem skylduðu sveitarstjórnir til að boða til fundar ef nægilega margir kosningabærir menn færu fram á það. Undirtektirnar voru góðar og listinn sendur til oddvitans. Tæplega bjuggust þeir félagar við jákvæðum undirtektum. En svo kemur fundar- boð, þar sem oddviti boðar til fundar í Arnesi, samkvæmt ósk hóps kjósenda í hreppnum. Ef til vill var þetta í fyrsta skipti er reyndi á þessi lög í landinu og er það vissulega sveitarstjórninni til sóma þó varla hafi mönnum verið það ljúft að hlaupa eftir duttlungum strákanna. Fundurinn var svo haldinn og mjög fjölmennur. Þar var hart deilt og þóttu strákarnir standa sig vonum framar, en ekki var frítt við að þeir þættu nokkuð ósvífnir sem afsaka verður með æsku þeirra og ákafa. 96
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.